Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 11
Eftirtöldum upplýsingum vegna ársins 2021 þarf að skila á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is
Skilafrestur er til 20. janúar
Launa- og verktaka upplýsingar
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi
launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og
söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, greiðslur
til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar
greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í
ferðaþjónustu o.fl.).
Einnig allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri
starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum
vélknúin ökutæki í té til afnota.
Hlutafjárupplýsingar
Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög,
samlagshlutafélög og sparisjóðir.
Stofnsjóðsupplýsingar
Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög
og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög.
Viðskipti með hlutabréf/afleiður
og önnur verðbréf
Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir
aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra
umsýslu með hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf.
Innstæður
Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir
aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar, eða
hafa milligöngu um ávöxtun, vörslu eða aðra
ráðstöfun fjármuna.
Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi
Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa
kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt
staðfestri kaupréttaráætlun.
Sama á við um söluréttar samninga.
Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera
takmarkaða skattskyldu hér á landi.
Lánaupp lýsingar
Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur
lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir
(bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög,
fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé
til einstakl inga og lögaðila.
Greiðslur fyrir leigu eða afnot
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé,
fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum
réttindum. Einnig þeir sem hafa í atvinnuskyni
milligöngu um útleigu.
Fjármagnstekjur
Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila
upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og tilgreina
sundurliðun á móttakendur og þá staðgreiðslu
fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir.
Hér er einkum um að ræða innheimtu aðila,
t.d. lögmannsstofur.
Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum
(listi yfir þátttakendur)
Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög
sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að
þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á
hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt
til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr.
90/2003.
Mótteknar gjafir og framlög til félaga sem skráð
eru á almannaheillaskrá Skattsins
Skilaskyldir eru allir þeir lögaðilar sem samþykktir
hafa verið til skráningar á almannaheillaskrá Skattsins
og skal skila upplýsingum um fjárhæðir móttekinna
gjafa/framlaga, sundurliðað eftir gefendum ásamt
kennitölum. Það athugist að á árinu 2021 gildir þetta
eingöngu um gjafir/framlög sem móttekin eru eftir
1. nóvember 2021.
Sjá nánar auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 1568/2021 í B-deild Stjórnartíðinda.
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Munið að skila upplýsingum vegna
framtalsgerðar 2022