Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 42
Deildarstjóri
Sérdeildar Suðurlands
Sunnulækjarskóli á Selfossi auglýsir lausa til umsóknar
stöðu deildarstjóra í Sérdeildar Suðurlands
Leitað er að öflugum og farsælum leiðtoga til að stýra starfi
deildarinnar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. apríl 2022 eða
eftir nánara samkomulagi.
Sérdeild Suðurlands, Setrið Sunnulækjarskóla, er deild í
Sunnulækjarskóla en sérstakur deildarstjóri ber ábyrgð á
faglegu skólastarfi hennar. Deildin veitir nemendum með
sérþarfir í Árborg, Árnesþingi og Rangárvalla- og Ves-
tur-Skaftafellssýslu fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum
þeirra og stöðu, í samvinnu við heimaskóla. Um 40 börn
stunda nám við deildina frá öllum þjónustusvæðunum.
Deildin sinnir einnig ráðgjafarhlutverki og leiðir þverfagleg
stuðningsteymi nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Veita deildinni faglega forystu
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi deildarinnar
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
• Samstarf við heimaskóla og foreldra barna
• Tengiliður í þverfaglegum stuðningsteymum nemenda
Menntunar og hæfniskröfur
Deildarstjóri sérdeildar skal hafa kennsluréttindi.
Framhaldsmenntun á sviði fötlunar og margbreytileika
ásamt reynslu í kennslu og þjálfun nemenda með sérþarfir
er æskileg.
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er
skilyrði
• Reynsla af stjórnun er æskileg
• Heildstæð og góð þekking á málefnum nemenda með
sérþarfir
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í
samstarfi og mannlegum samskiptum
• Hreint sakavottorð er skilyrði
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er
100%. Vakin er athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar
að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að
vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 24. janúar 2022.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá auk kynningarbréfs.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um störfin eru á ráðningarvef sveitar-
félagsins starf.arborg.is og hjá skólastjóra í síma 480-5400
og netfang birgir@sunnulaekjarskoli.is.
Sækja þarf um stöðurnar á vef sveitarfélagsins,
starf.arborg.is
Umsóknir gilda í 6 mánuði.
Skólastjóri
VILT ÞÚ GANGA TIL LIÐS
VIÐ ÖFLUGAN HÓP
LÖGFRÆÐINGA PERSÓNUVERNDAR?
Persónuvernd leitar að drífandi og kraftmiklum lögfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og
krefjandi verkefni í samhentu teymi stofnunarinnar. Fjölbreytni þeirra mála sem eru til meðferðar hjá
Persónuvernd er mikil – allt frá rafrænni vöktun á vinnustöðum til álitamála sem tengjast vísindarannsóknum
á heilbrigðissviði – og varða þau oft grundvallaratriði í íslensku samfélagi. Mikið er lagt upp úr frumkvæði,
ábyrgð og getu starfsmanna til að sinna krefjandi verkefnum í öflugu teymi lögfræðinga stofnunarinnar.
Um 100% starf er að ræða. Ráðið verður í starfið frá 1. mars 2022 eða samkvæmt
samkomulagi en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald sem annast eftirlit með framkvæmd laga nr. 90/2018 um persónuvernd
og vinnslu persónuupplýsinga, laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglna
settra samkvæmt þeim. Persónuvernd er fjölskylduvænn vinnustaður.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2022. Umsóknir skulu berast á netfangið postur@personuvernd.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum
umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri hjá Persónuvernd, í síma 510-9600.
Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá móttöku þeirra, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
HELSTU VERKEFNI:
• Öll hefðbundin afgreiðsla og meðferð mála
sem heyra undir Persónuvernd, m.a. vinna að
úrskurðum í ágreiningsmálum og álitum
• Vinna við afgreiðslu kvartana, þ. á m. í samstarfi
við persónuverndarstofnanir innan EES
• Verkefni tengd erlendu samstarfi, einkum
í tengslum við þátttöku Persónuverndar
í Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB)
• Önnur lögfræðistörf samkvæmt ákvörðun
sviðsstjóra eða forstjóra
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Að lágmarki 5 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil þekking á persónuverndar-
löggjöfinni er kostur
• Reynsla og/eða þekking á sviði stjórnsýsluréttar
• Mikil áhersla er lögð á gott vald á íslensku og
ensku, auk færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu norðurlandamáli er kostur
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnubrögðum
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum
samskiptum er skilyrði
farskolinn.is Faxatorg 550 Sauðárkrókur & 455 6010 / 455 6011
Laust starf náms- og
starfsráðgjafa
Farskólinn leitar að öflugum starfsmanni til að vinna að
fjölbreyttum verkefnum í fullorðins- og framhaldsfræðslu.
Farskólinn | miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
Verkefni sem um ræðir eru: Náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimat, mat á fræðsluþörfum
og þróun og umsjón með fræðslu. Farskólinn leitar að einstaklingi sem er fær í samskiptum
og sýnir frumkvæði í úrlausn verkefna, getur unnið sjálfstætt og í teymisvinnu.
Helstu verkefni
• Náms- og starfsráðgjöf til einstaklinga á
Norðurlandi vestra
• Umsjón og skipulag raunfærnimats fyrir
einstaklinga
• Þróun fræðsluverkefna; skipulag og
umsjón
• Upplýsingagjöf og samskipti við
þátttakendur, stofnanir og aðra
hagsmunaaðila
• Önnur verkefni sem til falla
Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra var stofnaður árið 1992. Farskólinn er
sjálfseignarstofnun sem sinnir verkefnum á sviði fullorðins- og framhaldsfræðslu á Norðurlandi vestra.
Skrifstofa Farskólans er á Sauðárkróki. Hjá Farskólanum starfa að jafnaði 4–5 starfsmenn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Williams Þráinsdóttir
í síma 455 6014. Einnig má senda fyrirspurnir
á netfangið bryndis@farskolinn.is.
Umsóknir sendist á fyrrgreint netfang
fyrir 15. febrúar næstkomandi.
ný
pr
en
t e
hf
|
0
12
02
2
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun, til dæmis á svið kennslu og ráðgjafar.
Gerð er krafa um leyfisbréf í náms- og starfsráðgjöf
• Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu er kostur
ásamt því að þekkja til íslensks vinnumarkaðar
• Almenn og góð tölvukunnátta
• Mjög gott vald á íslensku og hæfni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Gott vald á ensku
• Frumkvæði og sjálfstæði í allri verkefnavinnu
• Þjónustulipurð og mikil samstarfs- og samskiptahæfni
intellecta.is
RÁÐNINGAR