Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 30
„Ísland hefur einstakt tækifæri
til að vera leiðandi í sjálfbærni
og umhverfismálum, sérstaklega
þegar kemur að endurnýtanlegri
orku og nýtingu auðlinda á sjálf-
bæran máta. Við höfum nú þegar
komið á stöðluðu kerfi í kringum
gerð sjálfbærniuppgjöra sem
tryggja rekjanleika og gagnsæi.
Þetta kerfi byggir á hugbúnaðar-
lausn Klappa og þeim innviðum
sem Klappir og viðskiptavinir hafa
byggt í sameiningu,“ greinir Þor-
steinn frá og segir að margt spenn-
andi sé á döfinni hjá fyrirtækinu.
Miklu fleiri gögn á ábyrgan hátt
Segja má að Klappir séu fyrirtæki
sem er nokkuð á undan sinni
samtíð. Þorsteinn tekur undir
það og segir að fyrirtækið hafi
verið byrjað í sjálf bærniferðalagi
áður en hin mikla umhverfis-
verndarbylgja reið yfir heiminn.
Það voru fá fyrirtæki að halda
utan um kolefnisspor. Þetta voru
fyrst og fremst stórfyrirtæki sem
voru með eigin deildir þar sem
starfsmenn söfnuðu gögnum
handvirkt, eða ráðnir voru sér-
fræðingar til að gera það. Með
tilkomu Klappa tengjast fyrirtæki
við hugbúnað okkar. Hann gerir
fyrirtækjum kleift að safna miklu
fleiri gögnum á mun meiri hraða
og alveg sjálfvirkt, byggja upp
sjálf bærni skýrslur auk þess sem
rekjanleikinn verður öruggari.
Til dæmis eru endurskoðendur
fyrirtækja farnir að taka sjálf-
bærniskýrslur til skoðunar með
ársreikningi. Það er lagaskylda hjá
ákveðnum tegundum fyrirtækja
að skila inn ESG-skýrslu um sam-
félagslega ábyrgð (umhverfismál,
félagslega þætti og stjórnarhætti)
með ársreikningi. Nauðsynlegur
hluti af þessu er að upplýsingarnar
séu rekjanlegar, aðgengilegar og
skiljanlegar. Okkur hefur tekist að
safna þessum upplýsingum saman
á rafrænan hátt.
Með því að hafa þessar upp-
lýsingar geta fyrirtæki síðan deilt
þeim með öðrum, gert þær sýni-
legar og gegnsæjar í gegnum gagna-
grunninn okkar. Okkar vinna
er því á grundvelli samstarfs,“
útskýrir Þorsteinn.
Samfélagsleg ábyrgð í fyrirrúmi
„Ég segi stundum að við séum í
sögulegu samhengi eins og Guten-
berg prentsmiðjan. Allt í einu tókst
okkur að dæla út ótrúlegu magni
af upplýsingum og koma þeim
til þeirra sem á þurfa að halda í
stafrænu formi. Við höfum líka
staðlað skýrslurnar og gert þær
að einföldum bókhaldslyklum.
Sjálfbærni og umhverfisvernd
skipta allt samfélagið máli, ekki
bara einstaka hluthafa í fyrir-
tækjum. Ef fyrirtæki eru að leita sér
að einhvers konar þjónustu eins
og þrifum, tryggingum eða öðru
slíku geta þau séð hvort þau séu
umhverfisvæn eða láti til sín taka í
slíkum málum,“ segir Þorsteinn.
Klappir búa að því að vera
fjölskyldufyrirtæki og byggja
starfsemi sína á norrænum gildum
þar sem samfélagsleg ábyrgð er í
fyrirrúmi. Markmið og framtíðar-
sýn Klappa snýr að þeim gildum,
ásamt því að vilja auka skýrleika á
sjálfbærniupplýsingum á alþjóða-
vísu og auðvelda alla upplýsinga-
miðlun um þá þætti sem snúa að
sjálfbærni fyrirtækja.
Þar af leiðandi eru verkefni sem
skapa ávinning fyrir samfélagið í
heild sinni mikilvæg fyrir Klappir.
Margt áhugavert er að gerast hjá
Klöppum og bendir Þorsteinn á
skógræktarmál og mótvægisað-
gerðir. „Við ætlum að láta til okkar
taka þar og nýta okkar tækni í staf-
rænni nálgun. Með þessu viljum
við aðstoða bændur og landeig-
endur að ná betur yfir löndin sín,
til dæmis rækta skóga eða endur-
heimta vistkerfi og búa til kolefnis-
einingar sem hægt er að selja. Við
ætlum að styðja við landbúnaðinn
í heild sinni. Einnig erum við að
stíga það skref að ná betur utan
um umhverfisfótspor við fram-
leiðsluvarning, en hingað til höfum
við einblínt á rekstur fyrirtækja,“
útskýrir hann.
Alþjóðlegt skólaverkefni
Þetta er ekki það eina því Klappir
eru að hefja samstarf við grunn-
skóla landsins í gegnum verkefnið
Grænskjáir. „Við höfum safnað
gögnum frá skólunum og ætlum
að gera glæsilegt viðmót sem
krakkar geta lesið. Þannig ættu þau
að geta skoðað orku- og vatns-
notkun sína, úrgangsmyndun og
fleira í rauntíma. Landvernd er að
vinna með okkur í þessu verkefni
og ætlar að vera með umhverfis-
fræðslu og sjálfbærnimenntunar-
prógrömm innan grunnskólans.
Þannig er hægt að nýta stafræna
tækni til að fræða krakkana um
umhverfisáhrif. Reykjavíkurborg,
Sorpa, Faxaflóahafnir og Origo eru
einnig með okkur í þessu verkefni.
Við erum með sams konar verkefni
í Noregi og Slóveníu á sama tíma.
Þetta er því upphafið á alþjóð-
legu skólaverkefni. Með þessu er
hægt að gefa krökkunum miklu
fyrr grunnþekkingu um sjálf-
bærni og þekkingu í umhverfis- og
auðlindamálum. Þeir lenda þá
ekki í því sama og við hin eldri að
vera á byrjunarreit þegar kemur
að umhverfismálum. Við höfum
safnað gögnum frá 2015 og nú
tökum við skrefið að færa þau
nær nemendum í grunnskólum.
Gagarín hannar viðmótið og við
stefnum á að þetta verði komið í
alla skóla næsta haust. Í grunninn
er hugmyndin unnin út frá því að
nýta sjálfbær vistkerfi Klappa til
að mæla kolefnisspor grunnskóla
Reykjavíkur. Ávinningurinn er
að efla gagnadrifið umhverfis-
læsi grunnskólanema og efla getu
þeirra til þess að hugsa um lofts-
lags- og umhverfismál á gagnrýn-
inn hátt,“ segir Þorsteinn, sem segir
skipta miklu máli hinn mikla með-
byr sem Klappir hafa fengið. „Við
erum skráð félag í Kauphöll Íslands
og við horfum til alls heimsins
í starfi okkar. Við erum búin að
skipa okkur sess í Danmörku og
þegar farin að vinna með nokkrum
stórum fyrirtækjum þar í landi.
Sömuleiðis erum við með fyrirtæki
í Lettlandi og Litáen. Útrásin er því
hafin og gengur mjög vel. Með því
að vera á markaði gefum við fólki
kost á að vera þátttakendur með
okkur í þessu ferli. Við erum núna
með um 350 hluthafa, bæði ein-
staklinga og stóra fjárfesta,“ segir
Þorsteinn og bendir á að Klappir
séu mjög umhverfisvænt fyrirtæki.
Aðgengi að grænu fjármagni
„Klappir fengu á dögunum stað-
festingu á grænni starfsemi og
grænum fjármálaramma frá
alþjóðlegum úttektaraðila, sem er
mikil viðurkenning og stórt skref í
sögu félagsins. Slíkur rammi mun
gagnast Klöppum við fjármögnun
frá lykilaðilum á fjármagnsmark-
aði líkt og bönkum, lífeyrissjóðum
og almennum fjárfestum, sem eru
með grænar áherslur.
Klappir er fyrsta fyrirtækið á
Íslandi og líklega á Norðurlönd-
unum sem hefur grænan fjár-
málaramma um alla starfsemi
félagsins. Þar sem meira en 90% af
tekjum Klappa kemur frá gjald-
gengri „grænni þjónustu“ beita
Klappir „hreinni leikaðferð“ (pure
play) sem auðveldar allt utanum-
hald og skýrslugjöf til hagaðila.
Klappir Nordic
Byggt á þeirri góðu reynslu sem
Klappir hafa á Íslandi og góðum
viðtökum við lausn Klappa í Dan-
mörku, er unnið að því að opna
skrifstofu í Danmörku, Klappir
Nordic, sem mun sjá um sölu og
markaðsstarf á Norðurlöndunum.
Klappir einbeita sér fyrst að því
að fjölga notendum og gagna-
lindum í Danmörku, því þar er
kominn góður grunnur til vaxtar.
Frá Danmörku fara Klappir inn í
hin Norðurlöndin í áföngum eftir
því sem þeir markaðir opna sig
fyrir samvinnu við Klappir. n
Þorsteinn
Svanur Jónsson
er einn stofn-
enda Klappa og
framkvæmda-
stjóri vöruþró-
unar.
MYND/BIRGIR
ÍSLEIFUR GUNN-
ARSSON
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson,
oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@
frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Markmið og
framtíðarsýn
Klappa snýr að þeim
gildum ásamt því að
vilja auka skýrleika á
sjálfbærniupplýsingum
á alþjóðavísu og auð-
velda alla upplýsinga-
miðlun um þá þætti
sem snúa að sjálfbærni
fyrirtækja.
2 kynningarblað A L LT 15. janúar 2022 LAUGARDAGUR