Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 41
Nánari upplýsingar veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225.
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Michelsen ehf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að stjórnanda sem hefur vilja og
getu til að stýra traustu, rótgrónu en framsæknu fjölskyldufyrirtæki. Michelsen er eini sölu- og
þjónustuaðili margra af þekktustu vörumerkjum heims á Íslandi.
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og
mannauðsmálum
• Umsjón með markaðsmálum
• Áætlanagerð og stefnumótun
• Þátttaka í vörustjórnun og birgðahaldi
• Þátttaka í samskiptum við innlenda og erlenda
viðskiptaaðila
• Afgreiðsla viðskiptavina þegar þörf krefur
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Michelsen ehf. rekur tvær verslanir, á Hafnartorgi og í Kringlunni 4-12, en einnig heldur fyrirtækið úti öflugri heimasíðu
og vefverslun. Fyrirtækið hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu en það var stofnað 1.júlí 1909 og er eitt elsta fyrirtækið
í verslun og þjónustu á Íslandi. Fyrirtækið hefur tekið mikinn vaxtarkipp undanfarin ár og eru fastráðnir starfsmenn
fyrirtækisins nú níu talsins.
Michelsen sérhæfir sig í innflutningi og sölu tímamæla allt frá armbandsúrum upp í klukkukerfi, ásamt sölu á breiðri
línu af skartgripum og rekur fullkomnasta úrsmíðaverkstæði landsins. Michelsen er eini sölu- og þjónustuaðili margra af
þekktustu vörumerkjum heims á Íslandi, þar á meðal Rolex, Tudor, TAG Heuer og nú nýlega Gucci. Stefna fyrirtækisins er
að veita framúrskarandi og persónulega þjónustu sem byggist á yfirgripsmikilli þekkingu á úrum og skartgripum. Sjá nánar
á www.michelsen.is
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og áhugi á tækni og viðskiptum
• Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu liðsheildar
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
• Framsýni og hugmyndaauðgi
• Traust og trúverðug framkoma
• Góð tölvukunnátta
Menntunar- og hæfniskröfur:
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri rekstrarstofu
Þjóðkirkjunnar
Þjóðkirkjan óskar eftir að ráða öflugan einstakling í stöðu framkvæmdastjóra rekstrarstofu. Viðkomandi kemur til með að annast daglegan
rekstur Þjóðkirkjunnar og bera ábyrgð á fjármála- og fasteignasviði. Auk þess gegnir framkvæmdastjóri lykilhlutverki í að ná fram aukinni
skilvirkni og hagræðingu í rekstri. Framkvæmdastjóri heyrir undir framkvæmdanefnd kirkjuþings.
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
• Umsjón með og ábyrgð á daglegum rekstri Þjóðkirkjunnar
• Regluleg upplýsingagjöf til framkvæmdanefndar og fylgir eftir
ákvörðunum kirkjuþings
• Yfirumsjón með störfum fjármála- og fasteignasviðs
• Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf er kostur
• Leiðtogahæfileikar og sterk framtíðarsýn
• Farsæl reynsla af stjórnun hjá stóru fyrirtæki eða stofnun æskileg
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Reynsla af áætlanagerð og eftirfylgni
• Sjálfstæði, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Torfi Markússon (torfi@intellecta.is)
í síma 511 1225. Farið verður með allar og umsóknir sem trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega.
Öllum umsækjendum verður svarað að ráðningu lokinni.