Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 85
Sigurborg sýnir 25 ný
akrýl málverk með
lögum af mynstrum
sem mynda til dæmis
óræð götu- eða lands-
hlutakort.
Norðurljósin dönsuðu í tónlistinni
Þremenningarnir eru allir frábærir spilarar, segir Jónas Sen. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Sýningin Hjáleiðir eftir Sigur-
borgu Stefánsdóttur er á Mokka og
stendur til 3. febrúar næstkomandi.
Sigurborg sýnir 25 ný akrýlmál-
verk með lögum af mynstrum sem
mynda til dæmis óræð götu- eða
landshlutakort.
Sigurborg Stefánsdóttir nam
myndlist við Skolen for Brugs kunst
– Danmarks design skole í Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist frá
teikni- og grafíkdeild skólans. Auk
þess hefur hún tekið þátt í ýmsum
námskeiðum meðal annars í Banda-
ríkjunum, Japan og Mexíkó. Hún
starfaði um árabil sem kennari við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
og Listaháskóla Íslands, en vinnur
nú eingöngu að eigin myndlist. ■
Hjáleiðir á Mokka
Sýning Sigurborgar er á Mokka. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Kristbergur Ó. Péturs-
son opna r sý ning u
þann 18. febrúar næst-
komandi í sýningarsal
Wg Kunst í Amsterdam.
Á sý ning unni verða
málverk, grafíkverk og
verk í blandaðri tækni.
Öll verkin eru unnin á
liðnum tveimur árum
sérstaklega fyrir þessa
sýningu. Ljóð eru stór
þáttur í sýningunni og er Kristberg-
ur að gefa út ljóðabók um
þessar mundir í tengsl-
um við sýninguna. Ljóð-
in eru bæði á íslensku
og í enskum þýðingum
Aðalsteins Ingólfssonar
listfræðings. Bókin er
myndskreytt af höfundi.
Sýningin stendur til og
með 27. febrúar. ■
Kristbergur sýnir í
Amsterdam í febrúar
Sýning Kristbergs verður
í febrúar. MYND/AÐSEND
TÓNLIST
Verk eftir Dvorák,
Mozart, Kodaly og Mist
Þorkelsdóttur
Flytjendur: Rannveig Marta
Sarc, Brian Hong og Svava
Bernharðsdóttir.
Salurinn í Kópavogi
þriðjudaginn 11. janúar.
Jónas Sen
Eins og venjulega voru allir með
grímur á tónleikum í Salnum í
Kópavogi á þriðjudagskvöldið.
Tónlistarf lytjendurnir, sem voru
þrír, voru það þó ekki og stóðu í
þokkabót þétt saman. En annar
f iðluleikari hópsins, Rannveig
Marta Sarc, afsakaði það með því
að benda á að þau væru fjölskylda.
Sara Bernharðsdóttir víóluleikari
er móðir Rannveigar og Brian Hong
fiðluleikari er eiginmaður hennar.
Og ekki nóg með það, eitt verkið á
efnisskránni var eftir frænku þeirra
Rannveigar og Söru, Mist Þorkels-
dóttur. Meira um það á eftir.
Slátrarinn varð tónskáld
Þremenningarnir eru allir frábærir
spilarar, og frammistaðan nú olli
ekki vonbrigðum. Þau hófu leik sinn
á Terzetto í C-dúr op. 74 eftir Dvo-
rák (borið fram Dvorsjak). Hann
var tékkneskur og tónlistin hefur
á sér slavneskt yfirbragð. Upphaf-
lega ætlaði Dvorák að feta í fótspor
föður síns og gerast slátrari, en var
uppgötvaður af Jóhannesi Brahms,
sem hrósaði ekki hverjum sem var.
Þegar Brahms sagði „ekki slæmt“ þá
meinti hann „alger snilld“. Hann var
yfir sig hrifinn af Dvorák.
Tónlist Dvoráks er lagræn og
ávallt grípandi, og svo var um tón-
smíðina nú. Hljóðfæraleikararnir
spiluðu afskaplega fallega, hver
einasti tónn var tær og vel mótaður,
samspilið nákvæmt og í góðu jafn-
vægi. Túlkunin var full af innlifun
og tilfinningaþrunginni áfergju sem
hitti beint í mark.
Svo gott sem fullkomið
Næst á dagskránni var Dúó eftir
Mozart, KV 426, fyrir fiðlu og víólu.
Þær mæðgur spiluðu af nákvæmni,
nostruðu við hvert smáatriði í
tónblæ; túlkunin var létt og leik-
andi, en þó brá fyrir hástemmdri
alvöru þegar við átti. Samspilið var
nánast fullkomið og því rann tón-
listin ljúflega niður.
Hápunktur tónleikanna var þó
hvorki Mozart né Dvorák, heldur
frænkan fyrrnefnda, Mist Þorkels-
dóttir. Verk hennar heitir Kaleido-
scope in the Frozen Sky, samið fyrir
fiðlu og víólu. Aftur léku þær Rann-
veig og Sara og miðluðu einstaklega
heillandi skáldskap til áheyrenda.
Eins og í hugleiðslu
Mikið var um liggjandi, merkingar-
þrungna hljóma sem tóku stöðugum
breytingum. Hljóðfæraleikararnir
voru aldrei á sama stað frá einu
augnabliki til annars, voru ýmist
langt frá hvor öðrum eða þétt saman.
Raddirnar komu því úr mismunandi
áttum sem jók á galdur tónmálsins.
Stemningin var íhugul, nánast eins
og í hugleiðslu. Maður gat ímyndað
sér nakið og fagurt landslag að nóttu
til þegar norðurljósin dansa á himn-
inum. Þetta var magnað.
Ein önnur tónsmíð var á dag-
skránni, Serenaða fyrir tvær fiðlur
og víólu eftir Zoltan Kodaly. Bættist
þá Brian Hong aftur í hópinn. Seren-
aðan er lífleg og hress, og flutning-
urinn var í takti við það, þrunginn
snerpu og krafti. Maður var hins
vegar orðinn dálítið þreyttur er hér
var komið sögu, enda tónleikarnir
um einn og hálfur tími án hlés. Að
mínu mati hefði því mátt sleppa
Kodaly, töfrarnir í tónlist Mistar
voru verðugur lokahnykkur og ekki
neinu þar við bætandi. ■
NIÐURSTAÐA: Sérlega glæsi-
legir tónleikar með skemmtilegri
tónlist.
Stemningin var íhugul,
nánast eins og í hug-
leiðslu.
Fulltrúar launamanna í stjórn
Birtu lífeyrissjóðs
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að
taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2022 til 2024.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta
tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu
og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu
stjórnarmanna.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og
einn varamann (konu) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu
framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið
valnefnd@birta.is fyrir kl. 16:00 mánudaginn 31. janúar 2022.
• vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð.
• ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar.
• vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv.
31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim
kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum
lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar.
• Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir
uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu.
Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og
sjóðinn má finna á vefnum birta.is
ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU
Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta.is
LAUGARDAGUR 15. janúar 2022 Menning 45FRÉTTABLAÐIÐ