Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 28
Konur
voru
beittar
ofbeldi og
þeim
nauðgað.
Þau not-
uðu
ofbeldi
gegn
mótmæl-
endum og
það getum
við ekki
sætt okkur
við.
Edith
Með skýrslunni erum
við að mótmæla því
hvernig lögregla tekur
skýrslu af þolendum
og bendum á að hún
svari konum með
ofbeldi, misnoti vald
sitt og berji og lemji
þær, til að sýna þeim
hver ræður.
Edith
Í desember komu hingað
til lands þær Edith Olivares
Ferreto, framkvæmdastýra
Amnesty International í
Mexíkó, og aðgerðasinninn
og femínistinn Wendy Andrea
Galarza, til að ræða kvenna-
morð í Mexíkó, vekja athygli
á þeim og fá Íslendinga til að
sýna þeim samstöðu.
Í Mexíkó eru tíu konur myrtar
á hverjum degi. Sem vitað er
um. Í nýrri skýrslu Amnesty
International, Justice on Trial,
sem gefin var út í september
2021, voru 3.723 kynbundin morð
á konum skráð í landinu árið 2020.
Í skýrslunni kemur fram að rann-
sókn málanna sé verulega ábóta-
vant. Sem dæmi er vettvangur
glæps ekki skoðaður nægilega vel,
sönnunargögn týnast eða áhugi er
ekki til staðar á að sinna rannsókn.
Það leiðir svo til þess að málin rata
sjaldan til dómstóla og að hinir seku
sæta ekki ábyrgð.
„Við höfum unnið í þessu í mörg
ár, en í september í fyrra sendum
við tilkynningu til lögreglunnar
um að við værum sjálfar að rann-
saka kvennamorð, og þá sérstak-
lega í Ciudad Juares,“ segir Edith og
bætir við að þær geri það vegna þess
að þær telji lögregluna óhæfa til að
rannsaka morðin.
„Það hefur eitthvað verið að ger-
ast með rannsóknirnar undanfarið,
en það er ekki nóg. Það er enn stórt
verkefni fyrir höndum, sem er að
fá yfirvöld til að sinna sínum verk-
efnum og gera það vel,“ segir Edith.
Yfirvöld óhæf
Hún segir frá því að markvisst
hafi verið unnið að því, af hálfu
Amnesty, að fá stjórnvöld til að
hlusta. Það hafi verið sendar út til-
kynningar auk þess sem samtökin
hafi stutt skipulögð mótmæli.
„Með skýrslunni erum við að
mótmæla því hvernig lögregla tekur
skýrslu af þolendum og bendum á
að hún svari konum með of beldi,
misnoti vald sitt og berji og lemji
þær til að sýna þeim hver ræður. Það
sem gerðist 9. nóvember í Cancun
var út í hött. Það var kornið sem
fyllti mælinn,“ segir Edith, og á þar
við mótmæli sem voru skipulögð
af femínistum árið 2020 til að mót-
mæla kvennamorði og ofbeldi gegn
konum. Það fór ekki betur en svo að
á mótmælunum sjálfum voru konur
skotnar, þeim nauðgað og einhverj-
um skellt í fangaklefa fyrir þátttöku.
„Konur voru beittar of beldi og
þeim nauðgað. Þau notuðu ofbeldi
gegn mótmælendum og það getum
við ekki sætt okkur við. Ekki nóg
með að konum sé sýnd mikil harka
og ofbeldi, heldur er þeim ekki sýnd
virðing,“ segir Edith.
Wendy tók sjálf þátt í umræddum
mótmælum og er ein þeirra sem
voru skotnar af lögreglunni.
„Konur fóru út á götu til að mót-
mæla og sýna samstöðu með þeim
sem hafa verið beittar of beldi eða
myrtar. En meðal kvenna er almenn
hræðsla um það hver verði næst,
sama hvort um er að ræða of beldi
eða morð. Þetta var auðvitað tilraun
til þess, í mínu tilfelli, þennan dag,
9. nóvember. Við mótmæltum fyrir
Alexis, sem var myrt, en auðvitað
líka fyrir aðrar konur sem voru
myrtar á hrottalegan hátt og fleiri
sem hafa horfið sporlaust.“
Skotin tvisvar á mótmælunum
Wendy segir að mótmælin hafi
hafist við skrifstofu embættis sak-
sóknara – þangað sem konur fari til
að gefa skýrslu.
„Starfsfólkið er óhæft til að taka
skýrslur af konum og því er illa sinnt
þegar konur kvarta undan ofbeldi.
Okkur fannst þetta því góður staður
til að hefja mótmælin. Við vorum
um þúsund þar og mörgum var
mjög heitt í hamsi vegna ástands-
ins. Það var búið að kveikja eld á
nokkrum stöðum og þannig vildi
fólk sýna að því væri alvara,“ segir
Wendy.
Óþolandi að búa á stað þar
sem þú getur engum treyst
Edith og Wendy eru sammála um að yfirvöld þurfi að gera betur í þágu kvenna í Mexíkó. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Wendy var skotin tvisvar af lögreglu á mótmælum gegn
kvennamorði þann 9. nóvember 2020.
Edith segir að ofbeldið gegn konum á mótmælunum
9. nóvember 2020 hafi verið kornið sem fyllti mælinn.
Hún segir að eins hafi margir
notað veggjakrot til að lýsa yfir
megnri óánægju sinni með ýmsar
stofnanir.
„Næst tókum við stefnuna á
ráðhúsið og það var aðeins um tíu
til fimmtán mínútum eftir komu
þangað sem of beldið hófst fyrir
alvöru,“ segir Wendy og að þá hafi
lögreglan byrjað að skjóta, fyrst upp
í loftið, en svo á mannfjöldann.
Wendy varð á mótmælunum sjálf
fyrir tveimur skotum. Önnur kúlan
fór í annan fótinn, en hin fór fyrst í
rassinn og út um sköpin.
„Eftir þetta fréttum við að tveir
blaðamenn hefðu orðið fyrir skoti,
að tveimur konum hefði verið
nauðgað, tvær hlutu alvarlega höf-
uðáverka og átta konur voru fluttar
á lögreglustöðina þar sem þær voru
settar í fangaklefa.“
Wendy segir að fyrir mótmælin
hafi þessar konur ekkert þekkst, en
í kjölfar þeirra hafi verið búinn til
sameiginlegur vettvangur fyrir þær
til að eiga samskipti.
„Okkar markmið er að halda
áfram að berjast fyrir rétti okkar
til að mótmæla og við viljum hvetja
aðrar konur til að gera það sama.
Við viljum láta heyra í okkur,“ segir
Wendy.
Hún segir að núna, ári eftir að
mótmælin áttu sér stað, hafi ekki
enn farið fram rannsókn á því
of beldi sem hún varð fyrir og því
hafi hún ekki fengið neitt réttlæti,
eða nein önnur kona sem var beitt
ofbeldi á mótmælunum.
„Við viljum ekki peninga en við
förum fram á að það sé viðurkennt
að þetta var óþarft of beldi og að
yfirvöld viðurkenni að þau séu óhæf
til að rannsaka hvert og eitt mál sem
kemur á borð til þeirra.“
Wendy segir að í gegnum þetta
allt hafi Amnesty stutt þær, í
skýrslutöku og í kröfu þeirra um
gagnsæi.
Getur ekki hætt
Kom aldrei til greina að hætta að
mótmæla eftir að þú varst skotin?
„Nei, það hefur ekki hvarflað að
mér að hætta. Fyrst og fremst vegna
þess að það er nokkuð til sem heitir
reisn. Ég get ekki hætt. Ég verð að
koma þeim skilaboðum áleiðis að
það sé ekki hægt að koma svona
fram við okkur.“
Hvaðan kemur kvenhat ur í
Mexíkó og eru mótmælin fyrsta
skrefið til að breyta því, ef það er
hægt?
„Fyrst og fremst kemur þetta
hatur frá yfirvöldum. Að bæla niður
allt sem heitir mótmæli. Sérstaklega
þegar konur eiga í hlut. Og þá eru
það ekkert bara „yfirvöld“. Ég er að
tala um forseta Mexíkó. Hann hefur
sýnt virðingarleysi gagnvart öllu sem
mætti kalla mótmæli gegn kvenna-
morðum. Það er hægt að byrja þar
og þegar hann hundsar mótmælin
er alveg hægt að líta svo á að hann
sé að hvetja hina til að drepa niður
þetta andóf. Þessar raddir sem eru
að reyna að fæðast og vilja að á þær
sé hlustað. Ef við byrjum þar og á því
valdi sem hann hefur, það fara allir
að hans fordæmi,“ segir Edith og
bætir við að lögreglan hafi sýnt fem-
ínistum mikla hörku og tengir það
sérstaklega við viðhorf forsetans.
Hún segir að Mexíkó sé karlaveldi
og að hlutverk kvenna sé mjög hefð-
bundið, almennt séð.
„Hvernig við högum okkur og
klæðum okkur. Konur verða að
vera penar og mega ekki sýna styrk-
leika. Þær eiga að vera undirgefnar
og sýna að þær þurfi á karlmanni að
halda til að vernda þær,“ segir Edith
og að margar konur í Mexíkó hafi
tileinkað sér þetta.
„En þetta er að breytast. Ný kyn-
slóð kvenna kemur inn með þrýst-
ing og þær eru sterkar og það fer í
taugarnar á mörgum. Þeir eru hrein-
lega hissa á að sjá konur í hlutverki
sem þeir eru ekki vanir að sjá þær
í. Og það eru ekki bara karlar sem
eru hissa, það eru líka konur,“ segir
Edith, og að femínistar séu teiknaðir
upp sem of beldisfullar konur sem
verði að forðast.
Tíu morð toppurinn á ísjakanum
Hvernig er að vera kona í Mexíkó?
Er stanslaus ótti og hræðsla við að
vera næst?
„Þær tölur sem við sjáum eru bara
toppurinn á ísjakanum og eru langt
frá því að sýna fram á raunverulega
tíðni of beldis. Við vitum það og
það sem er hættulegast af öllu er að
það sé gert lítið úr þessu of beldi,“
segir Wendy og að í raun sé vanda-
málið svo stórt að konur séu orðnar
samdauna of beldinu og geri sér
stundum ekki grein fyrir því að um
ofbeldi sé að ræða, því ofbeldisfull
samskipti eru svo tíð.
„Það er absúrd að segja það en við
erum búin að normalísera ofbeldi.
Sem er ómögulegt. En þetta er bara
þannig.“
Edith tekur undir þetta og segir
að Mexíkó sé mjög hættulegur stað-
ur fyrir konur. Tíu konur séu myrtar
á hverjum degi og þá sé ekki talinn
sá fjöldi sem er beittur ofbeldi.
„Morðin geta verið margvísleg, en
f lest tengjast þau heimilisof beldi.
Þetta eru hræðilegar tölur. Hættan
er ekki bara á heimilinu, sem á að
vera athvarf, heldur er of beldi þar,
á vinnustaðnum, úti á götu og kyn-
ferðislegt ofbeldi og áreitni úti um
allt. Svo er ekki nóg með það, heldur
þegar konur fá nóg og mótmæla, þá
eru þær líka beittar of beldi þar, af
bæði samborgurum sínum og lög-
reglu. Það er óþolandi að búa á stað
þar sem þú getur engum treyst og þú
býrð alltaf við einhverja ógn. Þetta
er ógeðfellt.“
Íslendingar geta hjálpað
Geta íslensk stjórnvöld gert eitthvað
til að aðstoða, eða Íslendingar?
„Ég er bjartsýn og held að Íslend-
ingar og íslensk stjórnvöld geti
aðstoðað okkur við að minnka
of beldið. Það sem yfirvöld hérna
þola ekki er þegar einhver annar
segir þeim fyrir verkum, eða ef ein-
hver bendir þeim á hversu bagalegt
og slæmt ástandið er. Það getur því
verið gott að láta marga vita og ef
þið látið í ykkur heyra um ástandið
í Mexíkó. Við viljum gagnsæi og
það er okkar eina von fyrir betri
aðstæður fyrir konur í Mexíkó,“
segir Wendy og bætir við:
„Okkar tími er kominn. Við erum
að vakna eftir langan dvala og erum
að reyna að koma ýmsu til skila, en
við byrjum á mótmælum.“
Edith tekur undir þetta og hvet-
ur íslensk stjórnvöld til að beita
sér fyrir samstöðu með konum í
Mexíkó.
Grípa má til aðgerða og skrifa
undir mál Wendy og annarra þol-
enda mannréttindabrota á vefnum
amnesty.is, en undirskriftasöfnunin
er opin fram á sunnudag. n
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
28 Helgin 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ