Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 34
Þegar kemur að því
að taka myndir af
þeim fötum sem á að
selja þarf að vanda til
verka.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
ÚTSALAN
í fullum gangi
40-50%
afsláttur
Útsölubuxur
50% afsláttur
Str. Str. 36-56
Það er hægt að fá ágætis
pening fyrir að selja notuð
föt, sérstaklega ef rétt er
farið að. Hér á landi eru
ýmsir markaðir með notuð
föt þar sem hægt er að leigja
bás og selja.
Til að salan gangi sem best verður
samt að passa upp á að markaðs-
setja básinn sinn svolítið. Taka
góðar myndir af fötunum, deila á
samfélagsmiðlum og lýsa hverri
einustu flík vel. Tilgreina stærð,
efni og verð og hversu mikið notuð
flíkin er. Því meiri upplýsingar
sem hugsanlegur kaupandi fær um
flíkina, því betra.
Ef ætlunin er að selja fötin á net-
inu þar sem ekki er hægt að koma
og máta fötin er enn mikilvægara
að gefa greinargóða lýsingu á þeim.
Til dæmis með því að taka mynd af
manneskju í fötunum og gefa upp
mál módelsins. Þannig getur fólk
auðveldar fundið út hvort flíkin
muni passa og getur séð hvernig
hún lítur út á manneskju en ekki
bara á herðatré.
Oft tímir fólk ekki að losa sig
við einhverjar flíkur vegna þess
að því þykir vænt um þær. Þær
tengjast hugsanlega einhverri
kærri minningu. En ef ætlunin
er ekki að nota flíkina meira, til
hvers að halda upp á hana? Það er
hægt að taka mynd af sér í f líkinni
og gleyma minninguna þannig.
Fallegar flíkur sem þú tímir ekki
að selja gætu nefnilega komið sér
að góðum notum fyrir aðra og eru
auka peningur í budduna þína.
Myndir mikilvægar
Þegar kemur að því að taka myndir
af þeim fötum sem á að selja þarf
að vanda til verka. Krumpuð föt
sem hanga skökk á herðatré eða
eruð lögð í óreiðu á illa um búið
Smá fyrirhöfn
eykur söluna
Það er sniðugt
að næla sér í
aukapeninga
með því að selja
gömlu fötin sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
rúm eru ekki líkleg til að fanga
athygli hugsanlegra kaupenda.
Það er mikilvægt að passa upp á að
fötin séu hrein og slétt. Það gæti
jafnvel borgað sig að strauja þau.
Og ef það er gæludýr á heimilinu er
mikilvægt að fjarlægja öll gælu-
dýrahár af fötunum, til dæmis með
límrúllu.
Góð ljósmynd af fötunum er í
raun mun mikilvægari en lýsingin
á þeim því myndin er það fyrsta
sem kaupandinn tekur eftir og
vekur áhuga hans á að lesa nánari
upplýsingar um flíkina. Tilgangur
myndarinnar er tvíþættur. Að
fanga athygli kaupandans og
að gefa upplýsingar um ástand
flíkurinnar.
Hafið góða birtu
Til að flíkin komi vel út á mynd
skiptir umhverfið miklu máli. Það
er sérstaklega mikilvægt að hafa
góða birtu í herberginu þar sem
myndin er tekin. Ef myndin er
illa lýst þá sjást ekki réttir litir á
flíkinni og rétt áferð.
Þá er gott að hafa einlitan bak-
grunn sem tekur ekki of mikla
athygli frá vörunni sem á að selja.
Það er hægt að leggja flíkina ofan
á hreint og slétt, hvítt eða grátt
lak, með áherslu á slétt, krumpað
lak fælir burt viðskiptavinina.
En svo má líka leggja hana ofan á
einlita ljósa pappírsörk sem hægt
er að finna í ritfangaverslun eða
föndurbúðum sem dæmi. Ef flíkin
hangir á herðatré er hægt að notast
við ljósan vegg. En passið að flíkin
hangi fallega á herðatrénu. Það er
betra að leggja hana slétta á ljósan
bakgrunn ef hún er of stór fyrir
herðatréð.
Sýnið smáatriðin
Til að hugsanlegir notendur átti
sig sem best á hvernig flíkin er, er
gott að taka nokkrar myndir. Eina
af flíkinni að framanverðu, eina að
Þegar selja á notuð föt á netinu skiptir myndatakan miklu máli. Það eykur
líkur á sölu til muna ef myndin er aðlaðandi og fötunum snyrtilega uppstillt.
Það er
mikilvægt að
flíkin passi vel
á herðatréð sé
það notað, og
að bakgrunnur-
inn sé hlutlaus.
aftanverðu, eina mynd af mið-
anum á flíkinni sem sýnir stærðina
og merkið og aðra af miðanum
sem gefur upp efnið sem flíkin
er úr. Ef verið er að selja jakka er
líka gott að taka mynd af fóðrinu.
Eins er gott að taka nærmyndir
af smáatriðum eins og mynstri,
tölum og skrauti. Ef flíkin er slitin
einhvers staðar borgar sig að vera
hreinskilin og taka mynd af því
líka. Þá er gott að taka einhverjar
nærmyndir sem sýna vel áferð
efnisins.
Þetta gæti hljómað eins og smá
fyrirhöfn en það margborgar sig að
leggja dálitla vinnu í að selja fötin
sín, sérstaklega þegar margir aðrir
eru að gera það sama. Örlítil auka-
vinna í að þvo fötin, slétta og leggja
þau vel út fyrir myndatöku getur
haft úrslitaáhrif á söluna. n
4 kynningarblað 15. janúar 2022 LAUGARDAGUR ÚTSÖLUR OG OUTLET