Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 19
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Heildarfjárhæðin nemur 23.000.000 án
vsk. Fyrir fyrsta sætið verða verðlaunin 15.000.000 kr., fyrir annað sætið 5.000.000
kr. og þriðja sætið 3.000.000 kr. Auk þess áskilur dómnefnd sér rétt til að kaupa
áhugaverðar tillögur.
Á Breið eru lóðir og fasteignir sem áður nýttust fyrir útgerð og fiskvinnslu en breytingar
í atvinnuháttum opna nú á einstakt tækifæri til þróunar og uppbyggingar í takt við breytta
tíma og nýja framtíðarsýn. Samkeppnissvæðið er einstakt hvað varðar staðsetningu, sögu,
menningu, fjörugerð og fuglalíf.
Nýsköpun, breyttir atvinnuhættir, stafræn þróun, sjálfbærni, hringrásarhagkerfið og græn
orka geta lagt grunn að metnaðarfulllu skipulagi á Breiðinni og leitt okkur í spennandi
áskoranir. Breiðin tekur til vestasta hluta Akraness í nálægð hafnar og miðbæjar, en um
er að ræða alls um 16 hektara svæði, aðallega í eigu Brims hf. og Akraneskaupstaðar.
Breið þróunarfélag, f.h. Brims hf. og Akraneskaupstaðar, í samstarfi við Arkitektafélag
Íslands býður til opinnar hugmyndasamkeppni um skipulag Breiðar á Akranesi.
Markmið samkeppninnar er að fá fagaðila til að leggja fram tillögur sem eru í samræmi
við þá framtíðarsýn að svæðið verði íbúðabyggð fyrir ólíka aldurshópa í bland við
atvinnusköpun með áherslu á hátækni, nýsköpun og sjálfbærni.
Hugmyndasamkeppnin er öllum opin.
Tillögum í samkeppnina er skilað undir nafnleynd.
Samkeppnisgögn og upplýsingar um skráningu
verða aðgengileg á heimasíðu Breiðar
þróunarfélags www.breid.is og á heimasíðu
Arkitektafélags Íslands, www.ai.is frá og með
14. janúar 2022. Tillögum skal skilað fyrir
29. apríl 2022. Niðurstaða dómnefndar mun
liggja fyrir í júní 2022.
BREIÐ Á AKRANESI
OPIN HUGMYNDASAMKEPPNI
Falin perla framtíðar