Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 73
Pálína Guðnadóttir
notar REPAIR
,,Undrabætiefni! Ég var búin að vera mjög slæm og með
verki í öllum vöðvum og liðamótum, þá aðallega í mjöðm,
hné og fingrum. Ég var búin að prufa ýmislegt til að reyna að
hjálpa mér en ekkert virkaði nægilega vel. Ég kynnist
GeoSilica í desember 2017 og strax á fyrstu flöskunni fann ég
mun á sjálfri mér! Ég ákvað að halda áfram og í dag eru allir
verkir horfnir og ég get nánast allt. Það mætti halda að ég
hafi yngst um mörg ár, eða mér líður allavega þannig. Ég er
svo innilega þakklát fyrir geoSilica og hvað það hefur hjálpað
mér að líða betur”.
Ingibjörg er í
áskrift af PURE
,,Ég hef verið í áskrift af fæðubótaefnum sem
eru úr kísilsteinefnum frá GeoSilica núna í tvö
ár og get mælt með þeim. Þessar vörur eru
einstaklega góðar og ég hef fundið jákvæðan
mun á húð, hári og nöglum. Líður vel af
þessum vörum, hárið er ræktanlegra og
neglurnar vaxa hraðar. Einstaklega þæginlegt
að fá þær sendar heim að dyrum
mánaðarlega”.
Áskriftarleið
Gott er að taka steinefni inn daglega.
Við vitum það að í daglegu amstri er
það líklegt til þess að gleymast. Til
þess að auka við þægindi ákváðum
við að bjóða viðskiptavinum okkar upp
á áskriftarleið. Þar geta viðskiptavinir
fengið sitt uppáhalds steinefni með
15% afslætti og ókeypis sendingu í
hverjum mánuði. Með þessari leið er
líklegra að viðskiptavinir haldi í þann
árangur sem hefur náðst með inntöku.
Áskriftarleiðin hefur fengið frábærar
undirtektir á vefsíðu okkar
www.geosilica.is
Vörurnar koma í vökvaformi og dagleg
inntaka er ein matskeið. Hver flaska
dugar í mánuð. Vörurnar fást í
vefverslun GeoSilica, Fjarðarkaup,
Hagkaup, Vegan búðinni og í völdum
apótekum.
REPAIR fyrir liði og bein inniheldur kísil
og mangan en varan hefur slegið í
gegn hjá einstaklingum sem glíma við
liðverki. RENEW fyrir hár, húð og
neglur er vinsæl vara meðal þeirra
sem glíma við hárlos, húðvandamál og
brothættar neglur. RECOVER fyrir
vöðva og taugar inniheldur kísil og
magnesíum en sú vara hefur verið
vinsæl meðal þeirra sem stunda
reglulega hreyfingu og glíma við
eymsli í vöðvum. REFOCUS fyrir hug
og orku inniheldur kísil, D vítamín og
járn er vinsæl meðal þeirra sem glíma
við járnskort og mikla þreytu,
sérstaklega þegar skammdegið er
sem mest Einnig hefur REFOCUS verið
vinsæl meðal vegan einstaklinga þar
sem það er sjaldgæft að finna vörur
með D vítamín í vökvaformi sem er
vegan vottað. Allar vörur GeoSilica
hafa hlotið vegan vottun og innihalda
engin slæm rotvarnar- eða aukaefni".
,,Hvernig vel ég mér vöru?"
Algengasta spurning sem Steinunn
Ósk markaðsstjóri GeoSilica til margra
ára fær. ,,Þetta er algeng spurning
sem ég fæ frá bæði nýjum
viðskiptavinum og einnig þeim sem
langar að prufa aðrar tegundir. Við
bjóðum upp á 5 vörur í vörulínu
GeoSilica. Hver og ein vara inniheldur
kísil ásamt viðbættum steinefnum fyrir
heilsubætandi áhrif. PURE inniheldur
eingöngu kísil og er fyrir alhliða heilsu.