Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hvenær er
frásögn
fréttnæm
og hvenær
ekki?
Ég bara trúði því ekki
að þetta væri hann.
thorarinn@frettabladid.is
Chanel Björk Sturludóttir er nýtt
andlit á skjáum landsmanna en hún
er nýgengin til liðs við Kastljósið hjá
RÚV.
„Það er erfitt að velja enda gerðist
ótrúlega margt í þessari viku og
þetta ár hefur verið annasamt.
„En mikilvægustu fréttir vik
unnar hljóta að vera fréttir af kyn
ferðisbrotamálum. Það virðast vera
ákveðin siðaskipti að eiga sér stað og
uppgjör í þeim málum.
Umræðan um aðgerðir fyrir
tækja þykir mér áhugaverð og sýnir
að það er komin ákveðin pressa á
aðila í viðskiptalífinu að átta sig
á því að þau þurfa líka að taka til í
sínum málum því að þótt eitthvað
gerist ekki á vinnustað þá erum við
öll hluti af samfélaginu og það sem
gerist þar hefur líka áhrif á það sem
gerist innan veggja fyrirtækisins.
Þá finnst mér umræðan um hlut
verk og ábyrgð fjölmiðla í þessum
málum mjög áhugaverð. Hvenær er
frásögn fréttnæm og hvenær ekki?“
spyr Chanel.
„Á léttari nótum fannst mér fréttin
af því að Meghan Fox og Machine
Gun Kelly hefðu drukkið blóð hvort
annars þegar þau trúlofuðu sig alveg
stórkostleg. Hún kom mér á óvart, en
samt eiginlega ekki.“ n
Ákveðin siðaskipti að eiga sér stað
Chanel Björk Sturludóttir, sjónvarpskona.
John Paul Jones, þekktastur
sem bassaleikari Led Zepp
elin, semur tónlistina fyrir
kvikmyndina And Anne sem
gerð er eftir handriti Elíasar
Helga Kofoed Hansen og
gerist á Íslandi.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég bara trúði því ekki að þetta
væri hann. Það fyrsta sem ég hugs
aði þegar ég sá nafnið var bara hvað
það væri óheppilegt fyrir tónlistar
mann að heita John Paul Jones! Nei,
nei, nei! Svo fattaði ég bara að þetta
er hann,“ segir Elías Helgi Kofoed
Hansen, handritshöfundur kvik
myndarinnar And Anne, um fyrstu
viðbrögð sín við því að John Paul
Jones ætli að semja tónlistina fyrir
myndina.
Jones, sem vitaskuld er þekkt
astur sem bassaleikari hinnar goð
sagnakenndu rokkhljómsveitar
Led Zeppelin, semur tónlistina
með hljómsveitinni Snoweye, sem
hann stofnaði árið 2017. Sveitin
hefur aðeins komið saman örfáum
sinnum á tónleikum þannig að hér
er um allnokkur tíðindi að ræða.
Spennandi teymi
Elías getur að öðru leyti lítið sagt
um verkefnið enda myndin enn í
svokallaðri forframleiðslu þótt línur
séu óðum að skýrast. Tim Kaza leik
stýrir myndinni en hann framleiddi
myndina Iceland Is Best sem kom út
árið 2020 og vakti nokkra athygli en
heldur blendin viðbrögð.
And Anne gerist á Íslandi og
fjallar um Anne sem reynir að
komast yfir áfall úr æsku og býr til
ímyndaða vininn Mani, manninn
í tunglinu, til að einangra sig og
skapa sér öruggan veruleika. „Þetta
er virkilega spennandi teymi þarna
á bak við,“ segir Elías sem sjálfur
bjó í Bandaríkjunum þegar hann
skrifaði handritið.
Breska leikkonan Issy Knopfler
fer með hlutverk Anne og ástralski
leikarinn Dan Ewing fer með hlut
verk Mani. Þá fer Jesse Heiman,
einn frægasti bakgrunnsleikari
allra tíma, með stóra rullu í mynd
inni. Honum hefur brugðið fyrir í
mýflugumynd í ýmsum þáttum og
kvikmyndum eins og Big Bang The
ory, NCIS, Entourage, The O.C, The
Social Network og Van Vilder, svo
fátt eitt sé nefnt.
Skrifað á rúntinum
„Ég fór til Los Angeles að læra hand
ritaskrif og bjó síðan aðeins í Banda
ríkjunum eftir það. Það var einmitt
á því tímabili sem ég skrifaði þessa
mynd og þá bjó ég í húsbíl og keyrði
um landið. Myndin gerist einmitt
ansi mikið í svona húsbíl og þá
átti myndin að gerast í Bandaríkj
unum,“ segir Elías sem tekið hefur
þátt í verkefnum hérlendis eins og
Svörtu söndum og Venjulegu fólki.
Hann segir að eftir samráð við
f ramleiðslutey mið haf i ver ið
ákveðið að gera Ísland að sögusviði
myndarinnar. „Ég skoðaði það
og hún varð eiginlega bara miklu
betri fyrir vikið. Það hentaði mjög
vel af því að ég var að f lytja aftur
til Íslands þannig ég bara endur
skrifaði það hér og þá fór þetta að
rúlla.“ n
Íslandsferð undir tónum frá
bassaleikara Led Zeppelin
Bassaleikarinn heimsfrægi John Paul Jones hefur engu gleymt og spilar nú með Snoweye. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Elías samdi handritið að myndinni
þegar hann bjó í Bandaríkjunum.
n Frétt vikunnar
Chanel Björk Sturludóttir
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
MIAMI lyftistóll
Stillanlegur lyftistóll með tveimur
öflugum mótorum. Leður á
slitflötum. Svartur, grár eða
brúnn. Fullt verð: 259.900 kr.
Aðeins 194.925 kr.
C&J SILVER stillanlegur botn + Natures Rest
Luxury heilsudýna
Stærð í cm
Fullt verð:
Botn + dýna
Útsöluverð:
Botn + dýna
Luxury 80x200 187.900 kr 158.900 kr
Luxury 90x200 193.900 kr 164.100 kr
Luxury 90x210 201.900 kr 170.900 kr
Luxury 100x200 201.900 kr 170.900 kr
Luxury 120x200 207.900 kr 176.100 kr
Luxury 140x200 223.900 kr 190.100 kr
• C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hljóðlátum mótor.
• Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tveimur minnum og ljósi.
• Botn rúmsins dregst að vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá
náttborði og lampa.
• Sérstakur takki á fjarstýringunni kemur rúminu í upphaflega stöðu.
Opið
sunnudaga
13-17 á
Smáratorgi
25%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR AF
C&J SILVER
CANNES hægindastóll
Hægindastóll og skammel. Saddle, grár, rauður
eða svartur í PVC áklæði. Fullt verð: 199.990 kr.
Aðeins 139.993 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
52 Lífið 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ