Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 2
Frábær byrjun á mótinu
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf í gærkvöldi leik á Evrópumótinu þegar liðið atti kappi við Portúgal í Búdapest. Íslenska liðið fór með sigur af hólmi í
leiknum en það mætir Hollandi í annarri umferð riðlakeppninnar á morgun. Holland lagði Ungverja að velli í fyrstu umferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/EWPA
Sólheimar 25
Endurnýjun svalahandriða og svalalokanir.
Húsfélagið Sólheimum 25 óskar eftir tilboðum í verkið
Endurnýjun svalahandriða og svalalokanir.
Verkið felst í endurgerð svalahandriða á fjölbýlishúsið að Sólheimum 25 í Reykjavík
ásamt því að leggja til og setja upp svalalokanir hjá þeim íbúum sem eftir því óska.
Helstu verkliðir eru rif og förgun á núverandi stálhandriðum, smíði og uppsetning á
nýjum svalahandriðum, glerjun handriða og frágangur.
Útboðsaðili: Húsfélagið Sólheimum 25.
Tegund: Framkvæmd
Útboðsgögn afhent: 19. janúar 2022 kl: 13:00
Skilafrestur: 17. febrúar 2022 kl: 13:00
Opnun tilboða: 17. febrúar 2022 kl: 17:00
Verktími:
Upphaf verktíma: 15. mars 2022
Upphaf framkvæmda: 16. maí 2022
Verklok 31. ágúst 2022
arib@frettabladid.is
REYKJAVÍK Íbúi í Árbæ hefur kært
tæmingu Árbæjarlóns til umhverf-
is- og skipulagssviðs Reykjavíkur, á
grundvelli skipulagslaga. Lónið var
tæmt haustið 2020.
Einar Ágústsson segir að hann
sé í forsvari fyrir stóran hóp sem
stendur að kærunni, hann hefur
búið við Elliðaárnar alla ævi. „Ég er
seintekinn til vandræða en ég skil
ekki hvað er á bak við þetta. Það
kemur hvorki skýring frá Orku-
veitunni eða borginni af hverju
þetta var tæmt.“
Orkuveita Reykjavíkur hefur sagt
að tilgangur lónsins sé horfinn og
því sé ekki heimilt að halda áfram
að trufla náttúrulegt rennsli Elliða-
ánna. Fram kom í skýrslu stýrihóps
borgarinnar um Elliðaárdal sem
kom út í fyrra að það væri niður-
staða borgarlögmanns að lónið
væri ekki friðað og ekki hefði þurft
að fá leyfi fyrir tæmingunni.
Í kærunni er vísað til deiliskipu-
lags þar sem gert er ráð fyrir lóninu.
Er farið fram á að stíf lunni verði
lokað á ný og lónið fyllt á ný.
Einar segir fuglalíf hafa minnað
mikið fyrir ofan stíf luna eftir að
lónið var tæmt. „Myndi þetta fara
svona í gegn ef menn tæmdu Tjörn-
ina?“ n
Íbúi kærir tæmingu Árbæjarlóns
Lónið var tæmt varanlega haustið
2020. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Í gær voru fjórir í öndunarvél með
Covid-19. MYND/AÐSEND
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 43 einstaklingar lágu á
sjúkrahúsi í gær með Covid-19. Átta
voru á gjörgæslu og fjórir þeirra í
öndunarvél.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítala hafa mest verið 15
manns í öndunarvél á sama tíma
vegna Covid. Það var frá miðjum
apríl fram í miðjan maí í fyrra. Mán-
uðina á eftir fækkaði svo sjúklingum
í öndunarvél, þar til um miðjan ágúst
þegar á bilinu þrír til fimm voru í
öndunarvél til 25. ágúst.
Í nóvember fjölgaði svo aftur
þeim sem þurftu á öndunarvél að
halda vegna Covid, en frá því í lok
desember hafa verið á bilinu þrír til
átta í öndunarvél á hverjum degi.
Í gær var 9.671 einstaklingur í ein-
angrun með Covid-19 á Íslandi, yfir
ellefu þúsund manns voru í sóttkví.
Sólarhringinn á undan greindust
1.133 smit innanlands, tæp 50 þeirra
sem greindust jákvæð voru í sóttkví
við greiningu. n
Mest fimmtán í
öndunarvél í einu
Hertar samkomutakmarkanir
tóku gildi á miðnætti. Tíu
manns mega koma saman og
skemmtistöðum hefur verið
gert að loka. Eigandi fjölda
skemmtistaða í borginni segir
hertar aðgerðir mikinn skell.
birnadrofn@frettabladid.is
hjorvaro@frettabladid.is
COVID-19 Hertar samkomutakmark-
anir tóku gildi á miðnætti og mega
nú tíu manns koma saman. Skólar
verða áfram opnir og vinna sam-
kvæmt reglugerð en viðburðir með
hraðprófum eru ekki lengur heimilir.
Sundstaðir og líkamsræktarstöðvar
verða opin en þó aðeins með heimild
fyrir helming leyfilegs fjölda gesta.
Spilasölum og skemmtistöðum
hefur verið gert að loka en veitinga-
staðir mega taka við tuttugu gestum
í rými til klukkan 21, allir gestir
skulu hafa yfirgefið staðinn ekki
seinna en klukkan 22.
Arnar Þór Gíslason, eigandi fjölda
veitinga- og skemmtistaða í Reykja-
vík, segir það mikinn skell að fá svo
harðar aðgerðir „í andlitið“ eftir að
hafa verið undir hörðum reglum í að
verða tvö ár.
„Við erum að þjónusta viðskipta-
vini sem eru eldri en 20 ára og eru
f lestallir þríbólusettir. Svo finnst
mér vanta milliveginn á milli þess
að fá að hafa opið og að vera gert að
loka algjörlega,“ segir Arnar Þór.
Þá segir hann skjóta skökku við
að loka þurfi börum algjörlega sem
ekki selja mat á meðan sportbörum
sem selja áfengar veitingar og mat sé
heimilt að hafa opið.
„Hver er til að mynda munurinn
á því að panta langborð á sportbar
og drekka hálfan lítra af bjór og
gera það á bar? Það eru að mínu viti
engin rök að baki því að það sé lík-
legra að fólk smitist, hvort sem það
situr inni á krá um 22.00 eða síð-
degis á sportbar,“ segir Arnar Þór.
English Pub er einn þeirra staða
sem Arnar Þór rekur og segir hann
staðinn hafa kært sóttvarnaað-
gerðir síðustu tveggja daga. Hann
býst við því að fá úrskurð úr þeirri
kæru í upphafi næstu viku. Eftir að
sá úrskurður verður kveðinn upp
muni ákvörðun verða tekin um
næstu skref hjá þeim stöðum sem
Arnar Þór er eigandi að.
Ríkisstjórnin kynnti í gær sér-
stakar aðgerðir fyrir veitingageir-
ann samhliða hertum samkomu-
takmörkunum. Um er að ræða
efnahagsaðgerðir sem lúta að fresti
á staðgreiðslu skatta og tryggingar-
gjalds og framlengingu umsóknar-
frests vegna almennra viðspyrnu-
styrkja fyrir nóvember 2021.
Enn fremur er unnið að framleng-
ingu lokunarstyrkja og að frumvarpi
um sérstakan veitingastyrk sem
fyrirtækjum stæði til boða vegna
minni tekna frá desember 2021 út
mars 2022. n
Ekki líklegra að smitast á
skemmtistað en á sportbar
Skemmtistöðum er gert að loka með hertum samkomutakmörkunum en
staðir sem selja mat mega hafa opið. Arnar segir það skjóta skökku við.
FRÉTTABLAÐAIÐ/VALLI
Við erum að þjónusta
viðskiptavini sem eru
eldri en 20 ára og
flestallir þríbólusettir.
Arnar Þór Gísla-
son, veitinga- og
skemmtistaða-
eigandi
2 Fréttir 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ