Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 84
Sýning Sigurðar Árna Sigurðs- sonar, Hjáform, er á Galleríi Skilti, Dugguvogi 43, á horni Dugguvogs og Kænuvogs. Sýningin stendur til 15. júní. Kolbrún Bergþórsdóttir Birgir Snæbjörn Birgisson og Sigrún Sigvaldadóttir reka Gallerí Skilti. „Þegar þau fluttu inn í húsið í Duggu- vogi var skilti utan á húsinu og þau breytti því í gallerí,“ segir Sigurður Árni. Fyrsta sýningin í galleríinu var árið 2007 og eru sýningarnar orðnar 30 talsins og galleríið verður 15 ára á næsta ári. Um verk sitt segir Sigurður Árni: „Ég pakka skiltinu inn í plexí glerhjúp og leik mér með birtu, ljós og skugga. Sýningin stendur í sex mánuði þann- ig að hún fer úr dimmasta tíma árs- ins yfir í bjartasta tímann. Á fyrsta tímabilinu er rafmagnsljós í aðal- hlutverki, en smám saman tekur dagsbirtan við og þegar sól hækkar á lofti munu kvöldgeislar skína á verkið.“ Spurður um titil sýningarinnar Hjáform segir Sigurður Árni: „Ég held upp á þetta orð. Ég spurði Pál Valsson, rithöfund og útgefanda sem allt veit, hvort orðið væri til, en hann hélt ekki og benti á hliðstætt orð sem er hjáleið. Ég tengi orðið við skugga. Hjáform er þá skugginn af forminu. Í þessu tilviki er það plexíið, lituð filma sem varpar lituðum skugga og verður hjáform.“ Sýning Sigurðar Árna smellpassar inn í tíðarandann. „Þetta er kjörin Covid-sýning því verkið er utan á húsinu og fólk getur komið á bílnum og séð það, svona „drive through“ sýning eða „lúgusýning“. Svo er auð- vitað upplagt að fá sér göngutúr um nýja hverfið í Vogabyggð og virða fyrir sér listaverkið í leiðinni,“ segir hann. Sigurður Árni hefur starfað sem myndlistarmaður bæði í Reykjavík og í Frakklandi frá því að hann lauk námi frá Institut des Hautes Études en Art Plastiques í París árið 1991. Hann hefur haldið tugi einkasýn- inga og tekið þátt í fjölmörgum sam- sýningum. Yfirlitssýningu á verkum hans á Kjarvalsstöðum lauk fyrr á þessu ári. Verk eftir hann er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi sem og í opinberum söfnum og einkasöfnum víða í Evrópu. Hann er nú að vinna að einkasýningu sem verður í lok næsta árs í Frakklandi. „Þó svo að ég sé búinn að fá mína yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum þá er ég sannar- lega ekki sestur í helgan stein,“ segir Sigurður Árni. n Kjörin Covid-sýning Sigurður Árni fyrir framan verk sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Á fyrsta tímabilinu er rafmagnsljós í aðal- hlutverki en smám saman tekur dags- birtan við og þegar sól hækkar á lofti munu kvöldgeislar skína á verkið. Kolbrún Bergþórsdóttir Listakonurnar Jóhanna V. Þórhalls- dóttir og Hrönn Björnsdóttir mæt- ast undir sýningarheitinu Upphaf, í Galleríi Gróttu á Seltjarnarnesi. Sýningin verður opnuð 20. janúar og stendur til 12. febrúar. Öll verk á sýningunni eru abstrakt og express- jónísk málverk unnin með bland- aðri tækni árin 2021-22. Upphaf er fyrsta sýning þeirra beggja saman en Jóhanna og Hrönn hafa átt samstarf í Anarkíu Listasal í Kópavogi, sem síðar varð Artgall- erí Gátt, sem þær ráku ásamt fleiri listamönnum um árabil. Báðar eiga að baki nokkrar einkasýningar ásamt fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Listakonurnar eru félagar í SÍM. n Upphaf í Galleríi Gróttu Mynd eftir Hrönn á sýningunni í Galleríi Gróttu á Seltjarnar- nesi. MYND/AÐSEND MENNING 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ö n n u n Umsóknarfrestur til 15. febrúar Þróunarsjóður námsgagna Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna. Námsefnið þarf að henta til kennslu á þremur fyrstu skólastigunum. Námsefni fyrir háskólastig og fullorðinsfræðslu er ekki styrkt. Forgangsatriði sjóðsins fyrir árið 2022 eru þrjú: 1. Námsefni sem styður við skapandi kennsluhætti á sviði list- og verkgreina. 2. Námsefni sem styður við náms- og starfsfræðslu. 3. Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum. Við úthlutun verður tekið tillit til hvort námsefnið styðjist við stafræna tækni, Menntastefnu 2030 og hversu aðgengilegt námsefnið verður nemendum. Umsóknarfrestur er til kl. 15.00, 15. febrúar 2022. Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Hægt verður að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2 milljónum króna, en einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4 milljónum króna. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að skilyrðum settum. Upplýsingar um sjóðinn má finna á www.rannis.is/sjodir/ rannsoknir/throunarsjodur-namsgagna/. Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843, throunarsjodur.namsgagna@rannis.is Undirbúningsstyrkir Styrkir til sýningaverkefna Útgáfu-/rannsóknastyrkir og aðrir styrkir M yn d lis ta rs jó ð ur Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr. Umsóknafrestur er til kl. 16:00 þann 14. febrúar 2022 Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunar­ reglur og leiðbeiningar má finna á vefsíðu myndlistarsjóðs, myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í marsmánuði. Um er að ræða fyrri úthlutun úr sjóðnum árið 2022. Opið er fyrir umsóknir í myndlistarsjóð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.