Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 72
www.hei.is
CPH spítalinn í Kaupmannahöfn hefur
þjónustað Íslendinga varðandi
liðskiptiaðgerðir og fleira.
Þeir sem þurfa að bíða eftir aðgerð í 3
mánuðir eða lengur eiga rétt á að
Sjúkratryggingar Íslands greiði allan kostnaði
við aðgerð og ferðalag.
Nánari upplýsingar:
www.hei.is/lidskipti/
Sími 8 200 725
Liðskiptiaðgerðir í Kaupmannahöfn
Bryndís Stella Birgisdóttir
innanhússhönnuður, sem
ávallt er kölluð Stella, keypti
síðasta vor glæsilega pent-
house-íbúð á Mýrargötunni
ásamt manninum sínum Jak-
obi Helga Bjarnasyni, tilbúna
undir innréttingar. Íbúðin
stendur á besta stað í hjarta
miðbæjarins, þar sem mann-
lífið iðar að lífi.
Stella, sem festi kaup á íbúð-
inni í vor, hefur hannað
og innréttað hana eftir
draumastíl þeirra hjóna og
er útkoman glæsileg.
„Hönnun íbúðarinnar er stíl-
hrein og tímalaus. Hönnun í
mínum huga er að samræma bæði
ytra og innra útlit hússins, þar
sem öll smáatriði skipta ekki síður
máli en heildarmyndin sjálf,“ segir
Stella, sem naut þess að gera íbúð-
ina að þeirra.
Stella veit fátt skemmtilegra en
að bjóða vinum og vandamönnum
Stílhrein
og tímalaus
penthouse-íbúð
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.iss
Bryndís Stella
Birgisdóttir
innanhússhönn-
uður, sem ávallt
er kölluð Stella,
er þekkt fyrir
sinn tímalausa
og stílhreina stíl
þar sem ólíkum
efniviði er
blandað saman.
MYNDIR/VALLI
Stellu finnst blóm vera orkugefandi
og breyta umhverfinu til hins betra.
Svefnherbergið
er ekki síður
mikilvægt en
önnur rými
hússins. Fátt
er betra en að
koma heim að
kvöldi í fallega
uppbúið rúm.
„Barnaherbergið þarf að vera aðlaðandi og notalegt, hér upplifir dóttir mín
öryggi og hlýju innan um hluti sem hún heldur mest upp á.“
Stella segir að
stofunni sé
ætlað að bjóða
fólk velkomið,
stórar kertalukt-
ir skapi notalega
stemningu og
vellíðan.
Hér nýtast
opnar hillur í
eldhúsinu vel
undir það leir-
tau sem er mest
notað.
Stílhreint eldhús með rúmgóðri eyju.
Eldhúsið býður upp á þann mögu-
leika að hafa það opið og loka því svo
alveg af, hreinir töfrar sem hér gerast.
heim og þá eru eldhúsið og borð-
stofan aðalatriðin. „Við elskum að
bjóða gestum heim í mat og bröns
og því lögðum við mikla áherslu
á vera með rúmgóða borðstofu,“
segir Stella, en þegar gengið er inn
í íbúðina blasir stór og björt borð-
stofa við í opnu og miklu rými. Í
framhaldi af því opna rými er svo
stofan.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er
með eyju og ég er ótrúlega ánægð
með hana, bæði nýtinguna og
stálið sem við völdum,“ segir
Stella og bætir því við að hinum
megin við eyjuna nýtist glugga-
syllurnar sem sæti og þar geti
gestirnir setið og fengið drykk. n
Hefðarköttur
heimilisins
nýtur sín á
besta stað.
32 Helgin 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ