Fréttablaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 32
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Verslunin Innréttingar og tæki í
Ármúla í Reykjavík er eitt af rót-
grónustu fyrirtækjum á höfuð-
borgarsvæðinu, enda stofnað
árið 1945. Í dag er fyrirtækið ein
fremsta sérverslun landsins fyrir
baðherbergið, en seldi áður fjöl-
breyttari vörur, t.d. borvélar og
bílskúrshurðajárn, að sögn Írisar
Jensen, sem svo tók við rekstrinum
árið 2014 ásamt eiginmanni sínum
Grétari Þór Grétarssyni. „Þetta er
ekta fjölskyldufyrirtæki en amma
mín stofnaði fyrirtækið upphaf-
lega. Bæði börnin og foreldrar
mínir eru hér með annan fótinn,
svo það kemur ekki á óvart að við
leggjum mikla áherslu á persónu-
lega og góða þjónustu.“
Verslunin heldur útsölu árlega í
janúar þar sem ýmsar spennandi
vörutegundir eru á góðum afslætti.
„Vörumerkin sem við seljum koma
flest öll með nýjar línu á hverju ári,
þannig að á janúarútsölunni erum
við að bjóða eldri línur á góðum
afslætti. Auk þess seljum við
sýningareintök á spottprís.“
Fjölbreytt vöruúrval
Meðal nýrra vara sem eru komnar
í sölu hjá versluninni nefnir Íris
nýjustu baðherbergisinnrétt-
inguna frá Elita. „Þetta vörumerki
er frá Póllandi og það hefur komið
mjög sterkt inn á undanförnum
árum enda með flottar línur. Við
seljum m.a. baðinnréttingar frá
þeim í svartmöttu og hvítmöttu
útliti. Þessi lína kom stuttu fyrir
síðustu jól og vakti mikla athygli.
Elita Mable byrjaði t.d. að setja
aftur óhreinatauskörfur í innrétt-
ingar en það var vinsælt hér áður
fyrr. Auk þess eru fleiri spennandi
hlutir að koma inn hjá þeim sem
voru dottnir út áður. Við fáum
fleiri spennandi vörur frá þessu
fyrirtæki á árinu.“
Einnig nefnir hún spænska
merkið Gala sem selur m.a. stein-
sturtubotna. „Þeir eru eins og
ein stór flís með tilbúnum halla
í. Þeir fást í fimmtán litum og í
26 stærðum. Við seljum einnig
handlaugar og klósett frá þessu
vörumerki.“
Svarti liturinn vinsæll
Globo er ítalskt merki sem býður
upp á gott úrval af salernum og
hreinlætisvörum í sextán litum,
t.d. í bleiku, bláu, gulu og svörtu.
„Svarti liturinn hefur verið mjög
vinsæll í gegnum tíðina hjá okkur.
Við höfum líka selt bleik klósett,
sem er skemmtilegt.“
Að lokum nefnir hún Fima sem
er ítalskt merki. „Þetta vörumerki
býður m.a. upp á blöndunartæki
í svörtum lit, 24 karata gull-
húðun og ýmsa spennandi hluti.
Fyrirtækið vinnur með mörgum
þekktum hönnuðum, m.a. þeim
sem hanna fyrir ítalska bílafram-
leiðandann Lamborghini. Þetta
fyrirtæki er svo sannarlega að gera
skemmtilega og öðruvísi hluti
sem við sjáum ekki mikið af hér á
landi.“ n
Útsalan í Innréttingum og tækjum
stendur yfir dagana 17.-31. janúar. Sturtusett í krómi og svörtum lit. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Flottasta úrvalið í bænum af handlaugum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Litríku handklæðaofnarnir frá TERMA eru mikil prýði.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
GLOBO er þekkt fyrir sitt slétta postulín. MYND/AÐSEND
Nesti Dante eru náttúrlegar vörur frá Ítalíu. MYND/AÐSEND
FIMA CF er með nútímahönnum á blöndunartækjum.
MYND/AÐSEND
Metallínan króm, gull og brons frá spænska merkinu GALA. MYND/AÐSEND
Frægu steinsturtubotnarnir frá GALA. MYND/AÐSEND
Salerni, handlaug og bidet frá spænska vörumerkinu GALA. MYND/AÐSEND
Nýja línan frá ELITA er glæsileg og stílhrein. MYND/AÐSEND
2 kynningarblað 15. janúar 2022 LAUGARDAGURÚTSÖLUR OG OUTLET