Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 39
hagvangur.is
Allar nánari upplýsingar er að finna á hagvangur.is.
Umsjón með störfunum hafa Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
og Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is
Umsóknarfrestur til 8. febrúar 2022. Sótt er um störfin á hagvangur.is
Reginn er framsækið og leiðandi fasteignafélag sem leggur áherslu á
sjálfbærni í sínum rekstri. Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni
sem öll beinast að því að byggja upp og efla félagið enn frekar. Reginn
hefur farið í ýmsar aðgerðir og verkefni á sviði sjálfbærni með það að
markmiði að minnka neikvæð umhverfisáhrif af rekstri sínum og hvetur
viðskiptavini sína til þess sama.
Markaðs- og samskiptastjóri
Við leitum að hugmyndaríkum og lausnamiðuðum aðila til að bera
ábyrgð á markaðs- og samskiptamálum Regins auk tengdra vörumerkja,
s.s. Hafnartorgs og Egilshallar. Viðkomandi aðili starfar náið með
markaðsteymi Smáralindar auk þess að vinna að ýmsum verkefnum
með öðrum teymum félagsins, m.a. við kynningu á sjálfbærniverkefnum,
útleiguverkefnum og fjárfestatengslum.
Verkefnastjóri í sjálfbærum fasteignarekstri
Við leitum að kraftmiklum verkefnastjóra með brennandi áhuga á
sjálfbærni í uppbyggingu og rekstri fasteigna. Verkefnastjóri tekur þátt í
að móta nýjar áherslur í fasteignarekstri og vinnur við umhverfisvottanir
og áætlanagerð vegna umhverfis-, sjálfbærni og framkvæmdaverkefna.
Reginn er eitt stærsta fasteignafélag landsins
og skráð í Kauphöll Íslands. Félagið leigir út
og annast rekstur á atvinnuhúsnæði fyrir yfir
400 viðskiptavini. Reginn hefur einsett sér að
vera leiðandi í mótun og rekstri fasteigna með
sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Tugir
þúsunda einstaklinga sækja daglega störf,
verslun, þjónustu eða afþreyingu í fasteignum
Regins og leggur félagið ríkan þátt í að móta
umhverfi fólks þannig að daglegt líf verði betra,
ánægjulegra og öruggara.
Félagið hefur í gildi jafnlauna- og jafnréttisstefnur
ásamt jafnlaunakerfi sem fyrirbyggir beina og
óbeina mismunun vegna kyns. Við ráðningar er
leitast við að jafna hlutföll kynjanna að uppfylltum
hæfniskröfum.
Reginn leitar að fólki í spennandi störf
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar