Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 36
Háskólinn á Hólum er elsta menntastofnun
landsins. Við skólann er boðið upp á gæðanám
á grunn- og framhaldsnámsstigi sem og
öflugt rannsóknastarf. Háskólinn er miðstöð
þekkingar á þremur fræðisviðum: hestafræði,
ferðamálafræði og fiskeldis-, sjávar- og
vatnalíffræði.
Við háskólann leggja um 250 einstaklingar
stund á nám á ári hverju og starfsmenn eru um
50 talsins. Starfsstöðvar skólans eru tvær, að
Hólum í Hjaltadal og á Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar er að finna á www.holar.is.
Leitað er að framsýnum og metnaðarfullum leiðtoga í krefjandi og fjölbreytt starf rektors.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi brennandi áhuga á háskólamálum og skýra framtíðarsýn fyrir
akademískt hlutverk skólans. Rektor er æðsti stjórnandi háskólans og talsmaður hans út á við.
Starfssvið:
• Ábyrgð á að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir
og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma.
• Stjórnun skólans, stefnumótunarvinna og umbótastarf.
• Daglegur rekstur, þ.m.t. áætlanagerð og kostnaðareftirlit.
• Samskipti við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.
Hæfniskröfur:
• Akademískt hæfi og þekking á rannsóknum og starfi háskóla.
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni.
• Reynsla af stefnumótunarvinnu og breytingastjórnun.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Hæfni til nýsköpunar og að hrinda breytingum í framkvæmd.
• Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
• Þekking og reynsla af stjórnsýslu er kostur.
Hæfni umsækjenda um embættið verður skoðuð í ljósi heildarmats á öllum ofangreindum
þáttum með tilliti til þess hvernig þeir munu nýtast í starfinu.
Gert er ráð fyrir að ráðherra háskólamála skipi í embætti rektors til fimm ára frá og
með 1. júní 2022 skv. tilnefningu háskólaráðs. Háskólaráð tilnefnir valnefnd sem metur
hæfi umsækjenda.
Nánari upplýsingar veita Jensína K. Böðvars dóttir (jensina@vinnvinn.is)
og Auður Bjarna dóttir (audur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn og Edda Matthíasdóttir,
sviðsstjóri mannauðs, gæða og rekstrar hjá Háskólanum á Hólum (edda@holar.is).
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfs-
ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu auk
þess staðfest eintök af prófskírteinum.
Umsóknarfrestur er til og með
7. febrúar næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Rektor
Embætti rektors við Háskólann á Hólum er laust til umsóknar
LYFSALINN GLÆSIBÆ LYFSALINN VESTURLANDSVEGI BÍLAAPÓTEK LYFSALINN URÐARHVARFI
LYFJAVAL MJÓDD LYFJAVAL HÆÐASMÁRA BÍLAAPÓTEK APÓTEK SUÐURNESJA
OKKUR VANTAR LYFJAFRÆÐINGA
TIL SUMARAFLEYSINGA
Lyfsalinn og Lyaval auglýsa eftir lyafræðingum til sumaraeysinga.
Einnig eru í boði hlutastörf allt árið.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir eða umsóknir ásamt ferilskrá
á netfangið svanur@lyfsalinn.is.
Lyfsalinn festi nýlega kaup á Lyavali og rekur nú 6 apótek:
www.lyfsalinn.is www.lyaval.is