Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 45
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) óskar eftir að ráða kynningarstjóra til starfa sem fyrst. Um er að ræða starf sem snýr að markvissri miðlun og
kynningu á starfsemi félagsins, stefnu og baráttumálum hjúkrunarfræðinga. Viðkomandi mun bera ábyrgð á samræmingu kynningarmála, gerð
kynningarefnis og samskiptum við fjölmiðla.
Kynningarstjóri
• Ábyrgð á kynningarmálum félagsins
• Upplýsingamiðlun til innlendra og erlendra fjölmiðla
• Gerð kynningarefnis og birtingaráætlun fyrir alla miðla
• Ábyrgð á ritstjórn og þróun vefs og annarra samfélagsmiðla félagsins
• Þátttaka í stafrænni þróun félagsins
• Árangursmælingar og eftirfylgni
• Þátttaka í öðrum verkefnum sem tengjast starfi og þjónustu félagsins
• Skipulag, kynning og framkvæmd viðburða í samstarfi við starfsmenn
félagsins
Helstu verkefni og ábyrgð
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
á því sviði
• Reynsla af textaskrifum og miðlun upplýsinga
• Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti og hæfni til að setja
fram efni á skýran hátt
• Góð tölvukunnátta, þekking á innsetningu efnis á vefsíður
og samfélagsmiðla
• Leikni í mannlegum samskiptum, hugmyndaauðgi og sveigjanleiki
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileiki
Menntunar- og hæfniskröfur
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þjónar rúmlega 4.500 félagsmönnum um allt land. Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að vinna að hagsmuna-
gæslu á sviði kjara- og réttindamála hjúkrunarfræðinga ásamt þátttöku þeirra í þróun og stefnumótun á hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu landsins.
Gildi félagsins eru ábyrgð, áræðni og árangur og tekur ráðning mið af þeim.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðu þess www.hjukrun.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2022. Umsóknum skal skila rafrænt á formadur@hjukrun.is, ásamt ferilskrá og ítarlegu kynningarbréfi, þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Um er að ræða 80 - 100% starf sem fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gegnum netfangið gudbjorg@hjukrun.is
BSRB eru stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi. Aðildarfélög BSRB eru 19 talsins og fjöldi félagsmanna um 23.000.
BSRB óskar eftir að ráða kynningarfulltrúa og hagfræðing til starfa í fjölbreytt og krefjandi störf
sem reyna á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð í áhugaverðum verkefnum. Þetta eru störf fyrir
fólk sem brennur fyrir þjóðfélagsumræðuna og réttlátu samfélagi.
Hagfræðingur BSRB
Um er að ræða nýja stöðu á skrifstofu
BSRB. Hagfræðingurinn annast greiningar
á velsæld og efnahagsmálum, safnar saman
og tryggir gott aðgengi að upplýsingum
um vinnumarkaðinn og byggir þannig undir
stefnumótun bandalagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.
Starfssvið
• Rannsóknir og greiningar á velsæld og efnahags
málum í samvinnu við aðra sérfræðinga BSRB
• Samskipti við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins
í samráði við formann og framkvæmdastjóra
• Ráðgjöf um hagfræðileg efni
• Seta í ýmsum nefndum og ráðum samkvæmt
ákvörðun stjórnar BSRB
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í hagfræði
• Marktæk reynsla af hagfræðistörfum
• Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og
framsetningu upplýsinga
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði og metnaður
Starfssvið
• Ábyrgð á kynningarmálum
• Ritstjórn á öllu útgefnu efni
• Umsjón með fjölmiðlasamskiptum og svör við
fyrirspurnum fjölmiðla
• Ráðgjöf til stjórnenda BSRB og starfsfólks aðildar
félaga um miðlun upplýsinga og fjölmiðlasamskipti
• Skipulagning og framkvæmd viðburða á vegum
bandalagsins
• Umsjón með samfélagsmiðlum
• Markviss vöktun á fjölmiðlum og umræðu um málefni
BSRB og málefnum tengdum vinnumarkaðinum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Góð færni í íslensku og gott vald á ritun og
framsetningu texta er nauðsynleg
• Reynsla af störfum á fjölmiðlum og af
kynningarmálum er æskileg
• Þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og útgáfu
• Geta til að vinna hratt og undir álagi
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Starfið krefst skipulagshæfileika, nákvæmni,
hugmyndaauðgi sem og gagnrýninna og
sjálfstæðra vinnubragða
Kynningarfulltrúi BSRB
Kynningarfulltrúi BSRB ber ábyrgð á
kynningar málum bandalagsins, stuðlar að
sýnileika þess í opinberri umræðu, heldur
utan um ritstjórn á öllu útgefnu efni og
kemur að skipulagningu viðburða.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar.
Sótt er um störfin á alfred.is
Umsóknum um störfin þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfsemi BSRB og hvernig umsækjandi uppfylli hæfniskröfur starfsins.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB (magnus@bsrb.is)
Spennandi störf hjá BSRB