Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 69
 Haltu áfram að stunda líkams- rækt til að þú getir notið alls annars í lífinu til fullnustu. Gunnar Peterson Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr @frettabladid.is Líttu við á BeLLadonna.is Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna GOZZIP Maya Gallajakki Stærðir 38-56 Verð kr. 15.980 GOZZIP Molly skyrtukjóll Stærðir 38-56 Verð kr. 15.980 GOZZIP Siff tunika Stærðir 38-56 Verð kr. 16.980 STUDIO Ditte Tunika Fæst líka með bleiku mynstri Stærðir 38-56 Verð kr. 11.980 Það getur verið erfitt að hafa metnað og orku til að stunda líkamsrækt í svartasta skammdeginu og án efa eru margir sem fóru af stað með góðar áætlanir í byrjun árs, en eru að missa taktinn. Hér eru góð ráð frá þjálf- urum stjarnanna til að finna kraftinn til að taka á því. Mörgum finnst mjög erfitt að finna metnaðinn til að stunda líkams- rækt á þessum tíma árs, en hér eru góð ráð frá þremur einkaþjálfurum sem þjálfa fræga íþróttamenn og leikara, til að hjálpa fólki að kveikja neistann. Ráðin birtust fyrst á vefnum The Zoe Report. Skammtímamarkmið eru góð Ashley Borden er einkaþjálfari sem þjálfar meðal annars Christina Aguilera, Mandy Moore og Ryan Gosling. Hún segir að það sé eðli- legt að vera stundum orkulaus en vandinn sé að viðhalda þeirri venju að æfa, þrátt fyrir það. „Það er mikilvægt að setja sér skammtímamarkmið,“ segir hún. „Langtímamarkmið geta verið yfir- þyrmandi fyrir suma, en skamm- tímamarkmið eru auðveldari og byggja upp skriðþunga í líkams- ræktinni. Í staðinn fyrir að ætla sér að missa ákveðna kílóatölu er betra að setja aðgengilegri markmið. Ef þú hleypur til dæmis alltaf sama hringinn er gott að taka tímann sinn og reyna að bæta hann í hvert skipti, þó að það sé bara um eina sekúndu.“ Hún segir að þessi aðferð auð- veldi fólki að leggja harðar að sér, sem skili betri árangri og viljinn til að sanna sig fyrir sjálfum sér valdi jákvæðum breytingum á líkama og sál. Hafðu millimarkmið í huga Gunnar Peterson, sem þjálfar meðal annars Angelina Jolie, Bruce Willis, Dwayne Johnson og leik- menn í NBA, er sammála, en vill að fólk setji líka langtímamarkmið. „Svo má ekki heldur gleyma millimarkmiðum,“ segir hann. „Hugsaðu um sumarlíkamann, en líka vorlíkamann. Svo skaltu hugsa um líkama helgarinnar. Manni líður auðvitað oft eins og maður sé ekki að ná árangri, en þú ert að gera það í hverri viku. Þú ert að leggja grunninn sem framtíðin hvílir á. Sjáðu það, skildu það, gerðu það og njóttu þess.“ Búðu til rútínu Jeanette Jenkins er stofnandi og yfirmaður Hollywood Trainer Club (sem sinnir meðal annars Alicia Keys og Pink), einkaþjálfari og talsmaður MyFitnessPal snjall- forritsins. Hún ráðleggur fólki að halda sig við rútínu. „Gerðu ráð fyrir æfingunum í vikulegu áætluninni þinni, rétt eins og öðrum mikilvægum fundum, og ekki aflýsa,“ segir hún. „Þetta er fundurinn sem snýst um þína heilsu.“ Peterson tekur undir þetta en bætir við að fólk eigi að æfa þegar það hefur í raun og veru tíma, í stað þess að reyna að búa til tíma. „Ef það er erfitt að ná æfingu á morgnana skaltu hafa hana eftir vinnu og ef eftirmiðdagurinn gengur ekki skaltu vakna fyrr á morgnana og klára þetta af á meðan aðrir sofa,“ segir hann. „Ekki láta þetta passa, finndu tímann þar sem þetta passar.“ Ekki dæma þig Borden segir að fólk eigi líka ekki að dæma sig. „Það er allt í lagi að taka stundum styttri og minna glæsi- legar æfingar. Með því að reyna á sig, þó að það sé bara pínulítið, Finndu kraftinn til að taka á því Það eru líklega margir sem ætluðu að vera duglegri í ræktinni á nýja árinu sem eru í vandræðum með að við- halda metnað- inum, en von- andi gagnast þessi ráð frá einkaþjálfurum fræga fólksins einhverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Hér er Gunnar Peterson að vinna með JaVale McGee, atvinnumanni í NBA-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY byggist upp kraftur,“ segir hún. Ef þú getur bara fengið þig til að gera eitthvað smávegis er betra að gera það en ekki neitt, segir Borden. Það er allt í lagi að komast hægt í gang og það getur verið gott að gefa sér tímabil þar sem maður dæmir sig ekkert fyrir þær æfingar sem maður tekur eða tekur ekki. Mataræði er mikilvægt Jenkins minnir á tvö lykilatriði, að drekka nóg vatn og huga vel að mataræðinu. Hún bendir á að vatn sé nauðsynlegt fyrir eðli- lega líkamsstarfsemi og verði enn mikilvægara þegar fólk stundar líkamsrækt. Hún segir líka mikilvægt að taka ábyrgð á mataræði sínu og það kemur kannski ekki á óvart að þessi talsmaður MyFitnessPal mæli með því að nota forritið til að skrá niður og fylgjast með mataræðinu. „Það er gott að læra hvernig maturinn sem þú borðar hefur áhrif á orkustig, svefn, einbeitingu, fitubrennslu, vöðvaaukningu, meltingu og fleira,“ segir hún. Notaðu netið Borden segir að faraldurinn hafi gert það að verkum að farið var að bjóða upp á mikið af líkams- rækt í gegnum netið. Það hefur verið mikill léttir fyrir marga að geta fengið þjálfun í gegnum netið því það getur sparað fólki mikinn tíma, peninga og óþægindi. Þetta hefur því breytt ótrúlega miklu og gert það mun auðveldara og aðgengilegra að stunda líkams- rækt. Hafðu önnur markmið í huga Peterson bendir á að ein auðveld leið til að hvetja sig áfram sé að líta á allt annað sem maður hefur í lífinu. „Haltu áfram að stunda líkamsrækt til að þú getir notið alls annars í lífinu til fullnustu,“ segir hann. Það skiptir ekki máli hvort þig langar að geta leikið við börn, klifið fjöll eða farið í frí á ströndina, líkams- ræktin hjálpar þér að njóta þess alls til hins ítrasta.“ ■ ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 29. janúar 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.