Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 55
faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir sf. eru með starfsemi í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi.
Öll kyn eru hvött til að sækja um en fyrirtækið hefur skýr jafnréttismarkmið og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Starfsstöð beggja starfanna er í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður gisli@faxafloahafnir.is
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 6. febrúar n.k.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða réttindamanneskjur til starfa í hafnarþjónustu.
Störfin í hafnarþjónustu felast í leið- og hafnsögu skipa, skipstjórn og vélstjórn
á dráttarbátum, einnig hafnarvörslu, móttöku skipa og öðrum tilfallandi störfum.
Hjá Faxaflóahöfnum starfa 70 manns, en fyrirtækið leggur áherslu á að vera
leiðandi í umhverfismálum og að þróa snjallar og grænar hafnir. Einnig felst
í starfsemi fyrirtækisins þróun lands, umsýslu og skipulagi lóða, hafnarþjónustu
og gæðavottunum.
Unnið er samkvæmt fyrirliggjandi vaktaplani.
Erum við að leita að þér?
Skipstjóri / Hafnsögumaður
Hæfniskröfur
Skipstjórnarréttindi D (3 stig)
Slysavarnaskóli sjómanna
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og ensku kunnátta
Kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg
Vélstjóri
Hæfniskröfur
Vélstjórnarréttindi VF.1
Slysavarnaskóli sjómanna
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og ensku kunnátta
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Ný stofnun, Gæða- og eftirlitsstofnun
velferðarmála, hefur tekið til starfa með
gildistöku laga nr. 88/2021. Stofnunin
sinnir eftirliti með gæðum þjónustu sem
veitt er meðal annars á grundvelli
barnaverndarlaga, laga um félags-
þjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu
við fatlað fólk með langvarandi
stuðningsþarfir og laga um samþættingu
þjónustu í þágu farsældar barna.
Hjá stofnuninni starfa sérfræðingar með
margvíslegan bakgrunn og sérhæfingu á
sviði félags- og menntavísinda.
Stofnunin er staðsett í nýuppgerðu
skrifstofuhúsnæði á Suðurlandsbraut 24.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
leitar að fólki með fjölbreytta reynslu,
þekkingu og menntun sem er reiðubúið
að taka þátt í áhugaverðum og krefjandi
verkefnum hjá nýrri stofnun í metnaðar-
fullu vinnuumhverfi.
Sérfræðingar í leyfateymi
Lausar eru stöður í leyfateymi Gæða- og
eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Stofnunin gefur út leyfi til einkaaðila sem
veita þjónustu samkvæmt þeim lagabálkum
sem stofnunin sinnir eftirliti með, til að
mynda leyfi til fósturforeldra, leyfi til
stuðningsfjölskyldna og leyfi til að reka
skammtímadvalir fyrir fatlað fólk, svo fátt
eitt sé nefnt.
Lögfræðingur
Lögfræðingar hjá Gæða- og eftirlitsstofnun
velferðarmála sinna lögfræðilegri ráðgjöf
þvert á verkefnasvið stofnunarinnar.
Um er að ræða spennandi starf þar sem
viðkomandi hefur tækifæri til að móta
verklag nýrrar stofnunar.
Skjalastjóri
Fjölbreytt starf skjalastjóra stofnunarinnar
er laust til umsóknar. Í starfinu felst meðal
annars ábyrgð á þróun verklags við
skjalastjórnun og fræðsla og ráðgjöf til
starfsmanna um skjalamál.
Fjölbreytt og
krefjandi störf
hjá nýrri stofnun
Nánari upplýsingar um ofangreind störf
má finna á vef stofnunarinnar, gev.is
og á Alfred.is
ATVINNUBLAÐIÐ 21LAUGARDAGUR 29. janúar 2022