Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 10
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Hljóðritasjóður Auglýst er eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð. Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs. Umsóknarfrestur er til 15. mars kl. 15.00. Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári í mars og september. Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði. Umsóknargögn eru á rannis.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skilað rafrænt. Rannís, Borgartúni 30, sími 515 5838, hljodritasjodur@rannis.is. Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022 Framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar Menningarfélag Akureyrar rekur Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof. H E L ST U V E R K E F N I : • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri félagsins • Yfirumsjón með rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð • Umsjón með mannauðsmálum, mannaforráðum og ráðningum • Leiðir teymisvinnu sviðsstjóra og vinnur áætlanir í samráði við þá • Yfirumsjón með öllu bókhaldi, launavinnslu, afstemmingum og uppgjörum • Eftirfylgni með stefnu félagsins Menningarfélag Akureyrar I Strandgötu 12 I Akureyri I 450 1000 H E L ST U K R Ö F U R : • Haldgóð reynsla af rekstri, stjórnun og starfsmannahaldi • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfileikar • Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun Menningarfélag Akureyrar er þungamiðja öflugs menningarstarfs þar sem listir og mannlíf dafnar og blómstrar. Það skapar ný samfélagsleg verðmæti með vandaðri frumsköpun. Hlutverk Menningarfélagsins er að auka lífsgæði og næra samfélagið sem öflugur vettvangur upplifunar, fræðslu, listsköpunar, og viðburða sem uppfylla fjölbreyttar þarfir samfélagsins. Ástríða, áræðni og fagmennska eru grunngildi og leiðarljós Menningarfélags Akureyrar. Ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, sendist á umsoknir@mak.is Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2022. Bensínleki úr birgðatanki N1 gerði hús fjölskyldu frá Hofs­ ósi óíbúðarhæft. Umfangs­ mikil hreinsunaraðgerð stendur yfir en húseigandi segir farir sínar ekki sléttar. tsh@frettabladid.is UMHVERFISSLYS Valdís Brynja Hálf­ dánardóttir þurfti að flýja heimili sitt að Suðurgötu á Hofsósi í desem­ ber 2019 ásamt eiginmanni sínum, Rúnari Þór Númasyni, og þremur börnum þeirra. Mörg þúsund lítrar af bensíni láku úr birgðatanki N1 við Kaupfélag Hofsóss og dreifðust um nærliggjandi svæði. Valdís segir farir sínar af samskiptum við Umhverfis­ stofnun og N1 ekki sléttar. „Þetta er búið að vera ógeðslega sorglegt ferli, ef ég á að vera alveg hreinskilin við þig.“ Umfangsmikil hreinsunaraðgerð stendur nú yfir í þorpinu á vegum Verkís og Umhverfisstofnunar. Skurðir hafa verið grafnir umhverfis húsin sem lentu í lekanum og sér­ stökum loftunarbúnaði, eins konar blásurum sem ætlað er að hreinsa loft og jarðveg, verður komið fyrir við hús Valdísar og Rúnars. Umhverf isstofnun áætlar að hreinsunarstarfið geti tekið allt að þrjú ár, en telur að húsin eigi að verða íbúðar­ og notkunarhæf fyrr. Valdís setur þó spurningarmerki við þessar fullyrðingar, enda er alls óvíst hver árangurinn af hreinsun­ inni verður og gæti hún hæglega dregist á langinn. Tveimur blásurum hefur þegar verið komið fyrir utandyra hjá heimili Valdísar og Rúnars og einn­ ig er stefnt að því að koma nokkrum fyrir innandyra. Búnaðurinn er á stærð við meðalstóra þvottavél og Valdís furðar sig á því að Umhverfis­ stofnun telji ásættanlegt að bráðum sex manna fjölskylda, því Valdís á von á sínu fjórða barni, búi við slík­ ar aðstæður inni á heimilinu. „Ég skil alveg og ég vil leysa þetta, en þetta er samt ekki lausn, það er ekki hægt að bjóða fjölskyldu upp á að hafa þarna fullt af græjum í gangi og flytja svo inn í þetta hús.“ Fjölskyldan var á vergangi um nokkurra mánaða skeið, eftir að hún neyddist til að yfirgefa húsið að Suðurgötu. Þau dvöldu fyrst í herbergi hjá móður Valdísar á Hofs­ ósi, en fluttu svo í 85 fermetra hús í um fimm kílómetra fjarlægð frá þorpinu. Húsið fylgdi jörð sem þau höfðu keypt skömmu áður en lekinn gerði vart við sig, en var þó mjög illa farið, með tilheyrandi músagangi og rakaskemmdum, og þarfnaðist margra mánaða endurnýjunar áður en það varð íbúðarhæft. „Þetta var bara í raun hræðilegt ástand, en sem betur fer eigum við ógeðslega gott bakland og fjölskyld­ an bara tók sig saman,“ segir Valdís. Ljóst er að 85 fermetra illa farið hús dugar ekki sem framtíðarheim­ ili fyrir sex manna fjölskyldu. N1 bauð fjölskyldunni 100.000 króna skaðabætur á mánuði til að nota upp í leigu annars staðar, upphæð sem dugar þó skammt fyrir leigu, jafnvel á landsbyggðinni. „Þú færð hvergi leiguhúsnæði fyrir 100.000 krónur, hvað þá fyrir fimm manna fjölskyldu. Meira að segja á Hofsósi er það ekki í boði,“ segir Valdís. Þá er hún ekki bjartsýn á að fjöl­ skyldan geti f lutt aftur inn í húsið á Suðurgötu í bráð, það er talið óíbúðarhæft af dómkvöddum mats­ mönnum. Spurð um hvenær hún telji fjöl­ skylduna geta snúið heim aftur segir Valdís: „Guð, ég veit það ekki, ef það verður einhvern tíma. Ég meina, það er búið að dæma húsið ónýtt eins og staðan er núna.“ Að sögn Valdísar er óvissan verst. Í desember 2019 lofaði hún dóttur sinni að fjölskyldan væri bara að fara í heimsókn til ömmu í nokkrar nætur, en rúmum tveimur árum síðar eru þau enn ekki snúin aftur heim. Á meðan sitja þau uppi með húsnæðislán, fasteignagjöld, hita og rafmagn, af húsi sem er óíbúðarhæft og háa reikninga fyrir lögfræði­ kostnaði. Auk þess að þurfa sjálf að borga fyrir rafmagnið á hreinsunar­ búnaðinn. Valdís segir litlar sem engar bjarg­ ir fyrir fólk í þeirra stöðu. Þau hafi verið öll af vilja gerð að vinna með N1 að lausn, en olíufyrirtækið hafi þó ekki komið hreint fram í málinu. Það hafi til að mynda upphaflega reynt að draga í efa að mengunin í húsinu að Suðurgötu væri tengd lek­ anum úr birgðatankinum. „Maður er alltaf í þessari baráttu, maður er alltaf einhvern veginn að reyna að sanna líf sitt og tilveru. Mér finnst eitt að þurfa að flytja út úr húsinu með fjölskylduna þína og leggja þetta á hana, en annað að þurfa í raun að berjast fyrir lífi þínu og réttlæti við olíufyrirtæki sem virðist í raun vera ósnertanlegt.“ ■ Fjölskylda á hrakhólum í á þriðja ár vegna olíuleka N1 Valdís Brynja Hálfdánar- dóttir, Rúnar Þór Númason og börn þeirra, Valgerður Rakel, Vanda María og Þorvaldur Helgi. MYND/AÐSEND Umfangsmikil hreinsunaraðgerð stendur nú yfir við hús Valdísar og Rúnars að Suðurgötu 6. MYND/AÐSEND Húsið sem fjölskyldan þurfti að flytja í var mjög illa farið, með tilheyrandi músagangi og rakaskemmdum. MYND/AÐSEND 10 Fréttir 29. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.