Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 79

Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 79
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Ólafsson Faxabraut 13, Keflavík, lést, á Hrafnistu Hlévangi, miðvikudaginn 19. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 1. febrúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á www.facebook.com/groups/arniolafsson Ármann Árnason María Þorgrímsdóttir Guðný Árnadóttir Guðmundur Einarsson Ólasteina Árnadóttir Rúnar Eyberg Árnason Hildur Björg Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra Kristjana Richter píanókennari, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli, föstudaginn 21. janúar, verður kvödd frá Áskirkju mánudaginn 31. janúar klukkan 13. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Vinsamlega kynnið ykkur sóttvarnareglur þann dag. Aðstandendur Útför elskulegs sonar okkar og bróður, Steingríms S. Jónssonar rafmagnsverkfræðings, fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 13.00. Athöfninni verður streymt. Jón Hilmar Stefánsson Elísabet Bjarnadóttir Bjarni Hilmar Jónsson Stefán Hrafn Jónsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristín Sveinsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Skógarbæ, sunnudaginn 9. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Vigfússon Robin Vigfússon Freysteinn Vigfússon Anna Bára Pétursdóttir Vigfús Óðinn Vigfússon og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Sigrún Gunnarsdóttir Bairdain lést í Bandaríkjunum miðvikudaginn 15. desember. Hún var jarðsett við hlið eiginmanns síns 29. desember í Great Neck Rd kirkjugarðinum á Virginia Beach VA. Sigrid Wahl James Wahl Frederick Bairdain Nancy Wilson Debbie Bairdain Sigrid Bairdain Gary Daniel Jordan Alexis Daniel Waverly Lynn Daniel Guðný Andrésdóttir, Þórdís Andrésdóttir Elsku maðurinn minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Pétur S. Víglundsson verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, fimmtudaginn 3. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ og á langholtskirkja.is/ Anna Sigríður Hróðmarsdóttir Guðmundur S. Pétursson Elísabet Guðmundsdóttir Margrét B. Pétursdóttir Björgvin M. Guðmundsson Víglundur Rúnar Pétursson Hafdís Edda Stefánsdóttir Sólborg Alda Pétursdóttir Hallgrímur H. Gunnarsson Ragnar Pétur Pétursson Elma Karen Sigþórsdóttir Hróðmar I. Sigurbjörnsson Helga A. Haraldsdóttir Sigurður Á. Sigurbjörnsson Auðbjörg Jakobsdóttir Guðríður Sigurbjörnsdóttir Ómar Árnason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Eggertsson áður kaupmaður í Borgarnesi, lést 19. janúar síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 5. febrúar klukkan 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Barnaspítala Hringsins, www.hringurinn.is/styrkja-hringinn/minningarkort/. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Magnea Heidi Grundt Anna Gunnlaug Jónsdóttir Ólafur Magnússon Baldrún Kolfinna Jónsdóttir Allaoua Ægir Si Said Eggert Ólafur Jónsson Þórður Jónsson Sara Stefánsdóttir Jóhann Jónsson Hafdís Harðardóttir Jóhanna Erla Jónsdóttir Ingvar Þór Jóhannsson Margrét Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Anna Ingvarsdóttir Tjarnarbóli 10, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn 21. janúar. Útför fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. febrúar kl. 13.00. Athöfninni verður streymt: https://youtu.be/vl6t4bPUEII Sigríður María Torfadóttir Arinbjörn Viggó Clausen Tómas Ingi Torfason Karen Bjarnhéðinsdóttir Anna Marsibil Clausen, Rakel Tómasdóttir, Jens Pétur Clausen og Torfi Tómasson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Friðrik Áskell Clausen Ási í Ásakaffi Austurvegi 5, Grindavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, laugardaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju, fimmtudaginn 3. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Friðrik Rúnar Friðriksson Anna Dröfn Clausen Sigurður Óli Þórleifsson Þröstur Líndal Guðrún Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, Ólafur Þór Ragnarsson fyrrverandi bátsmaður Landhelgisgæslunnar, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 17. janúar. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 31. janúar kl. 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt: www.youtube.com/channel/ UCLoNRDNgtA4a6tgIEywDCGw Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Daníelsdóttir arnartomas@frettabladid.is Japanshátíðin, sem haldin er ár hvert af Japönskudeild Háskóla Íslands, fer fram í streymi í dag. Þar verða fjölbreyttir dagskrárliðir sem eiga rætur að rekja í japanska menningu. Einn af liðunum í ár verður kennsla á japönsku innpökk­ unarhefðinni furoshiki. „Það eru nokkrir kostir sem þetta hefur fram yfir gjafapappírinn,“ segir Gunnar Thor Örnólfsson, annar eig­ andi vefverslunarinnar Kampai.is, sem stýrir kennslunni. „Í fyrsta lagi er þetta endurnýtanlegt og rifnar ekki þegar maður tekur utan af pakkanum. Svo er þetta f ljótlegra þegar maður kemst upp á lagið með þetta, því þetta eru bara rembihnútar og það þarf ekkert að vesenast með límbönd eða borða.“ Gunnar Thor segir að furoshiki byggi í raun allt á sama hnútnum. „Ef þú fórst á siglinganámskeið þá er þetta réttur hnútur, eða tvöfaldur rembihnútur,“ segir hann. „Svo hnýtir maður þetta á mis­ munandi vegu og við ætlum að fara yfir nokkrar aðferðir í streyminu, allt frá einföldum pökkum yfir í stóra tau­ poka.“ Þá geta lengra komnir einnig nýtt klútana í skreytingar á borð við blóm og annað fínerí. Gunnar Thor rekur Kampai.is ásamt unnustu sinni Bryndísi Bergþórsdóttur, en hugmyndin kviknaði síðasta vor. „Við fundum framleiðanda í Kyoto í Japan og ákváðum að fara af stað með þetta,“ segir hann. „Mér finnst sjálfum gjafapappír óþolandi. Hann endar alltaf í ruslinu eða einhverri skúffu, en furo­ shiki bindur enda á það bruðl.“ Dagskrá Japanshátíðarinnar hefst klukkan 13 í dag og er aðgengileg í gegnum Facebook­síðu hátíðarinnar. ■ Japönsk innpökkunarkennsla í streymi Klútarnir bjóða upp á einfalda og endur- nýtanlega innpökkun. Furoshiki má nota í eitt og annað. Hnútarnir nýttir í huggulegan burðarpoka. FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 29. janúar 2022 Tímamót 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.