Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 20
Á nýopnuðu EDITION hótel-
inu við Reykjavíkurhöfn má
njóta heimsklassa matreiðslu
á veitingastaðnum Tides en
einnig einfaldari hressingar á
kaffihúsinu og barnum.
bjork@frettabladid.is
Georg Halldórsson er
yfirmatreiðslumaður á
veitingastaðnum Tides
þar sem áherslan er á
heilnæma skandinav-
íska matreiðslu.
„Ég vinn náið með Gunnari Karli
á Dill en hann var ráðinn sem ráð-
gjafi fyrir hótelið og hefur unnið
að þessu verkefni frá byrjun,“ segir
Georg og á þá við Michelinstjörnu-
matreiðslumanninn Gunnar Karl
Gíslason, en hótelið var opnað undir
lok síðasta árs.
Á The Reykjavík EDITION má
njóta matar á veitingastaðnum
sjálfum en einnig er þar kaffihús,
The Tides Café, og glæsilegur bar
þar sem boðið er upp á einfaldari
barrétti og opið fyrir alla gesti og
gangandi. Kaffihúsið er opnað
klukkan sex á morgnana svo það er
tilvalið fyrir árrisula bæjarröltara
en einnig er boðið upp á að taka
nýbakað bakkelsi með sér heim.
Einstakur sunnudagsbröns
„Sunnudagsbrönsinn okkar er
eitthvað sem ég er mjög hreykinn
af, réttirnir eru einstakir og ólíkir
hefðbundnum bröns en uppfylla
að mínu mati allar þarfir bröns-
aðdáandans,“ segir Georg.
„Í morgunmatnum leggjum
við áherslu á hollan og klassískan
skandinavískan mat, við gerum
ferska safa daglega og á matseðl-
inum er að finna rétti eins og heima-
lagað rúgbrauð með reyktum laxi,
hrærðum eggjum og piparrót, skyr-
skálar, bakkelsi og margt f leira,“
segir hann
„Í hádegi leggjum við áherslu á
léttan þriggja rétta hádegisverð á
góðu verði sem hægt er að afgreiða á
stuttum tíma. Þar er aðaláherslan á
ferskan fisk, súpu, salöt og hægeldað
kjöt,“ segir Georg og bætir við að á
hádegisseðlinum megi finna rétti
eins og sérræktaða íslenska San
Marzano tómata með kotasælu og
skessujurt.
Náið samstarf við birgja
„Á kvöldin dimmum við svo ljósin
og kveikjum upp í kolagrillinu sem
er sérinnflutt grill frá San Sebastian
á Spáni. Þá er aðaláherslan á okkar
besta hráefni eins og íslenska
hörpuskel úr Breiðafirði, kavíar,
heilgrillaðan fisk og „dry aged“
kjöt, svo eitthvað sé nefnt,“ segir
hann og bendir á að aðaláherslan
sé á hráefnið sjálft og náið samstarf
við birgja og ræktendur.
„Til að tryggja að hráefnið sem við
notum sé það besta sem völ er á. Við
gerum svo allt í okkar valdi til þess
að leyfa hráefninu að njóta sín.“ n
Skandinavískir straumar
við ReykjavíkurhöfnÉg man vel
eftir um
fjölluninni
um málið
en minnist
þess þó
ekki endi
lega að hafa
hugsað
mikið til
þess hvern
ig ungu
konunni
liði.
Kemur
flokkurinn
hriplekur
til leiks eða
þokkalega
sjófær?
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
BJORK@FRETTABLADID.IS
Við mælum með
Georg Halldórs-
son er yfirmat-
reiðslumaður á
veitingastaðn-
um Tides.
MYNDIR/AÐSENDAR
Hótelbarinn er tilkomumikill og þar má njóta léttra rétta af barseðli.
Kaffihúsið og
bakaríið er
opnað klukkan
sex á morgnana.
Monica Lewinsky var 22 ára þegar
hún sem lærlingur í Hvíta hús-
inu féll fyrir yfirmanni sínum,
þáverandi Bandaríkjaforseta,
sem bæði var giftur og meira en
tvöfalt eldri en hún. Flest munum við eftir fjöl-
miðlaumfjölluninni sem fylgdi þegar upp komst
um sambandið. Upptökur af trúnaðarsímtölum
þessarar rúmlega tvítugu konu við vinkonu sína
voru notuð sem gögn í máli gegn forsetanum en
jafnframt lekið á netið fyrir alla að heyra. Við-
kvæmar upplýsingar um kynferðislegar athafnir
voru á allra vörum á meðan móðir Monicu svaf
allar nætur við hlið dóttur sinnar af hræðslu við
að skömmin sem hún upplifði myndi hreinlega
verða henni um megn. Hún myndi svipta sig lífi.
Það eru 24 ár síðan málið komst í hámæli og
við Monica nánast jafnöldrur. Ég man vel eftir
umfjölluninni en minnist þess þó ekki endilega
að hafa hugsað mikið til þess hvernig ungu kon-
unni liði. Það er heldur ekkert útilokað að ég hafi
hlegið að einhverjum glötuðum bröndurum.
Það myndi ég ekki gera í dag og ég held að það
myndir þú, lesandi góður, ekki heldur gera. Til
þess þurfti byltingu – #MeToo-byltingu. n
Lifi byltingin
Botnlausum bröns á Kopar
Þú pantar tvo rétti í einu og borðar
eins og þú getur í þig látið í tvo
klukkutíma. Á matseðlinum má
finna rétti úr hafinu og úr haga
ásamt klassískum brönsréttum. Við
mælum sérstaklega með vegan gras-
kerssúpunni sem er sérlega bragð-
mikil og góð. Brönsinn er borinn
fram laugardaga og sunnudaga milli
klukkan 12-15. Þá er einnig hægt að
bæta botnlausum drykkjum við,
kjósi fólk það.
Ferð í sund
Það er fátt betra en að leggjast í heita
pottinn eða taka sundsprett í sund-
laugum landsins, sér í lagi þegar
örlítið kalt er úti. Við mælum með
ferð í allar sundlaugar landsins sem
eru hver annarri betri, sérstaklega
skemmtilegt er fyrir börn að fara í
Sundlaug Akureyrar og svo er nýja
sundlaugin í Úlfarsárdal frábær
fyrir bæði börn og fullorðna. n
Mikil óvissa ríkir nú innan Sjálf-
stæðisf lokksins í Reykjavík. Ein-
hverjir myndu kalla andrúmsloftið
ógnþrungið. Spennan áþreifanleg.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík hefur ekki enn ákveðið
fyrirkomulag próf kjörs. Áður en
Eyþór Arnalds hætti við framboð
hafði stjórn fulltrúaráðsins ákveð-
ið að mæla með leiðtogaprófkjöri,
líkt og var viðhaft síðast. Eftir brott-
hvarf Eyþórs er óvíst að sú verði
niðurstaðan.
Sjálfstæðisf lokkurinn í Reykja-
vík er klofinn í herðar niður. Fylk-
ingarnar standa hvor gegn annarri
gráar fyrir járnum. Annars vegar er
það f lokkseigendafélagið og hins
vegar Guðlaugur Þór Þórðarson og
stuðningsmenn hans.
Hildur Björnsdóttir er fulltrúi
flokkseigenda, sama hóps og studdi
Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og
tapaði fyrir Guðlaugi Þór síðastliðið
vor.
Margir telja að Hildur nái seint
til breiðs hóps kjósenda í Reykjavík
en óumdeilt er að hún höfðar vel til
þröngs hóps elítunnar í f lokknum.
Fylking Guðlaugs Þórs er stærri
og sterkari og mun sigra finni hún
öflugt leiðtogaefni. Elliði Vignisson
hefur af þakkað og nú er helst talað
um Ármann Kr. Ólafsson, fráfar-
andi bæjarstjóra í Kópavogi. Hann
hefur mikla reynslu og er samherji
og persónulegur vinur Guðlaugs
Þórs. Í Ármanni sjá ýmsir reynslu-
mikinn forystumann sem gæti haft
Stressið magnast hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík
í fullu tré við Dag B. Eggertsson.
Á meðan glímuskjálfti skekur
f ylk ingar Sjálfstæðismanna í
Reykjavík, bíða andstæðingar
f lokksins rólegir. Spurningin er
hvort f lokkurinn kemur hriplekur
til leiks eða hvort hann verður
þokkalega sjófær.
Skjálftinn í Valhöll er slíkur að
við liggur að skilgreina verði höfuð-
stöðvar Sjálfstæðisf lokksins sem
virkt óróasvæði, jafnvel gosóróa-
svæði. n
20 Helgin 29. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 29. janúar 2022 LAUGARDAGUR