Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 28
 Annars gerum við bara ótal pítsur og skerum þær niður þannig að allir geti smakkað. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, viðskipta- og markaðs- fræðingur, veit fátt skemmti- legra en að vera með fjöl- skyldukvöld og eru þá oftar en ekki eldbakaðar pítsur. Eva er fjögurra barna móðir og tvö yngstu börnin búa á heimilinu, synirnir Bjarni Gabríel og Viktor Áki Bjarna- synir. Hin eldri eru farin að heiman. „Ég var svo heppin að eignast tvo dásamlega drengi á miðjum aldri og ég hugsa að barnauppeldi eftir fertugt sé það sem hefur gefið mér mest í lífinu,“ segir Eva. Bjarni Gabríel, 13 ára, hefur fetað í fótspor ömmu sinnar, leik- konunnar Eddu Björgvinsdóttur, en hann leikur Remó í Kardemommu- bænum, en einnig hefur hann komið fram í Áramótaskaupinu, Jólagestum Björgvins, lesið inn á teiknimyndir og fleira. Yngsti prinsinn á heimilinu er 10 ára og er hans fókus mest á stærðfræði, en báðir æfa þeir fótbolta hjá Fylki af mikilli ástríðu. Bakstur á fjölskyldukvöldum „Þegar ég var yngri ólst ég upp við fjölskyldukvöld en þá var oftast bökuð pítsa og það frá grunni. Mamma og pabbi voru með séruppskrift sem þau bjuggu til sjálf, en þau kynntust pítsum fyrst á Ítalíu. Þau bjuggu þar úti um tíma en þegar þau komu heim fannst þeim úrvalið heldur slakt hér á landi, þannig að þau bjuggu til sína eigin leyniuppskrift af sósu og öllu Fjölskyldukvöld með pítsu langbest Eva Dögg Sigurgeirsdóttir og strákarnir hennar elska að baka pítsur og eiga saman góða kvöldstund. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Eva Dögg býr til sitt eigið deig, en freistast þó stundum til að kaupa það tilbúið. Þá velur hún súrdeig. Pítsuofninn sem Eva Dögg féll fyrir. Fjöl- skyldan bakaði humarpítsu úti á palli fyrir þátt- inn Shark Tank sem sýndur var í Bandaríkjunum. Pítsan lítur glæsilega út þegar hún kemur úr ofninum. tilheyrandi. Pítsurnar þeirra eru ógleymanlegar og ég sjálf geri þær stundum.“ Þegar Eva er spurð hvort fjöl- skyldan sé oft með pítsukvöld, svarar hún: „Já, og veistu að þetta eru bara langbestu kvöldin. Ég og maðurinn minn eigum bæði börn frá fyrra hjónabandi og stóran vinahóp og fjölskyldu og ég verð að segja að þessi kvöld eru ótrúlega vinsæl. Það er nefnilega svo gaman að búa þetta til og mikil stemning og svo getur líka hver og einn ráðið sinni pítsu. Annars gerum við bara ótal pítsur og skerum þær niður þannig að allir geti smakkað.“ Kolféll fyrir úti-pítsuofni Pítsurnar eru bakaðar í úti-pítsu- ofni úti á palli, sem skapar sérstaka stemningu. Hver er tilurð þess að þið eignuð- ust úti-pítsuofninn góða? „Þetta atvikaðist þannig að ég var að horfa á bandarískan þátt á Hulu þar sem fjölskyldan í þættinum var með eldhús í garðinum og var einmitt með svona úti-pítsuofn. Ég nefndi þetta við manninn minn, sem fór af stað og fann alveg geggjað bandarískt fyrirtæki, Ber- tello, sem framleiðir einfalda og afar öfluga pítsuofna. Við fengum svo sýnishorn og byrjuðum að baka á pallinum og þá var bara ekki aftur snúið.“ Þið fjölskyldan fóruð í viðtal í bandarískum sjónvarpsþætti þar sem þið bökuðu pítsur, hvernig atvikaðist það? „Fyrirtækið Bertello byrjaði, eða öllu heldur fékk fjármagn, í þætt- inum Shark Tank í Ameríku, við vissum það nú ekki í upphafi en það voru sem sagt tveir frumkvöðlar sem vildu framleiða pítsuofn með öllu, sem sagt enginn falinn kostn- aður. Það eru til ótal pítsuofnar, en þá ertu að kaupa ofn sér, spaða sér, stein sér og svo framvegis, sem þýðir að ofninn endar í mjög hárri upphæð. Bertello-strákarnir vildu gera góðan ofn á verði þar sem allt var innfalið sem til þarf. Þeir í Shark Tank féllu fyrir þessu og úr varð að þeir fóru af stað með fyrirtækið. Í sumar höfðu Bertello-strákarnir samband við okkur og báðu okkur að taka upp myndband af Bertello á Íslandi, því að Shark Tank ætlaði að skoða fyrirtækið nokkrum árum eftir að þeir fóru af stað. Úr varð að við tókum upp innslag á pallinum þar sem ég og strákarnir bökum íslenska humarpítsu. Strákunum finnst nú ekki leiðinlegt að hafa komið fram í þætti í Ameríku sem margar milljónir horfa á.“ Hvernig virkar Bertello-pítsu- ofninn? „Hann virkar þannig að það eina sem þú þarft er gaskútur og hráefni, allt annað fylgir með í pakkanum. Ég hita minn í sirka hálftíma á fullu blasti og lækka svo niður í honum og byrja að eldbaka, en það tekur mest 2 mínútur að baka pítsuna. Þú þarft samt að snúa henni allan tímann því þetta gerist hratt. Ofn- inn tekur 12 tommu pítsu og það er mikilvægt að vera með durum hveiti undir svo að botninn festist ekki við steininn,“ segir Eva. Eva segist oftar en ekki kaupa til- búið deig í dag. „Nýjasta æðið mitt er að kaupa deig hjá Brauð & Co eða í Bónus og þá vel ég helst súrdeigið. Þetta auðveldar mér pítsugerðina til muna og allt er hreinna og miklu minna vesen að halda risa pítsu- kvöld. Ég hef búið til ótal pítsudeig í gegnum tíðina og er hætt að mæla, ég sé bara hvað ég þarf mikið, en upprunalega uppskriftin er svona: Heimatilbúið pítsudeig 180-200 ml volgt vatn 1 bréf af þurrgeri ¾ tsk. salt 2-2 ½ bolli hveiti 2 msk. ólífuolía Ég læt deigið hefast í sirka 30 mínútur, eða þar til það hefur tvö- faldast. Það er mikilvægt að hafa í huga að þegar maður er að búa til pítsur í Bertello ofninum þá borgar sig ekki að hafa þær of stórar og ekki of þunnar, nota nóg af durum hveiti og bara prófa sig áfram. Uppáhaldspítsurnar Uppáhaldspítsusósa Evu er frá Mutti, en hún kostar mjög lítið og fæst öllum verslunum. „Ég hef verið að prófa ýmislegt ofan á, en nýjasta æðið mitt er humarpítsa en ég kaupi frosinn, lítinn, skelflettan humar í mat- vöruverslun og steiki upp úr smjöri, hvítlauk og steinselju og set á pitsuna og skelli stundum kletta- salati yfir. Sömuleiðis elska ég ostapítsu. Þá kaupi ég rifinn piparost, gráðost, mozzarellakúlur, camembert, eða bara það sem mér dettur í hug og þá er mikilvægt að hafa rifsberja- hlaup með. En grunnurinn er alltaf sósa og rifinn pítsuostur. Uppáhaldspítsan hans Bjarna Gabríels er með hráskinku kletta- salati og mozzarella en uppáhaldið hans Viktors Áka er með þunn- skorinni skinku, beikonbitum og mozzarellaosti. Uppáhaldseftirréttarpítsa fjöl- skyldunnar er með Nutella, en þá er botninn næstum fullbakaður, síðan er Nutella smurt yfir botn- inn og bakað í smástund í viðbót. Síðan er Nutellabotninn toppaður með jarðarberjum og bláberjum. Leyniuppskrift Eddu Björgvins og Gísla 3 tómatpaste-dósir 3 tómatpaste-dósir af AB mjólk á móti 3-4 kramin hvítlauksrif 2-3 msk. púðursykur, eða eftir smekk 3 msk. ólífuolía Stundum bý ég til leynisósu mömmu og pabba en hún er meira fyrir örþunnar pítsur og þá nota ég alltaf óðalsost og olíu á pítsuna, ekkert annað álegg. n 4 kynningarblað A L LT 29. janúar 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.