Fréttablaðið - 29.01.2022, Side 10
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Hljóðritasjóður
Auglýst er eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð. Veittir eru
styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist.
Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.
Umsóknarfrestur er til 15. mars kl. 15.00.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári í mars og september.
Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa
hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa má ekki hafa átt sér stað áður
en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði.
Umsóknargögn eru á rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skilað rafrænt.
Rannís, Borgartúni 30,
sími 515 5838,
hljodritasjodur@rannis.is.
Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla
íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022
Framkvæmdastjóri
Menningarfélags Akureyrar
Menningarfélag Akureyrar rekur Leikfélag Akureyrar,
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof.
H E L ST U V E R K E F N I :
• Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri félagsins
• Yfirumsjón með rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð
• Umsjón með mannauðsmálum, mannaforráðum
og ráðningum
• Leiðir teymisvinnu sviðsstjóra og vinnur áætlanir í
samráði við þá
• Yfirumsjón með öllu bókhaldi, launavinnslu,
afstemmingum og uppgjörum
• Eftirfylgni með stefnu félagsins
Menningarfélag Akureyrar I Strandgötu 12 I Akureyri I 450 1000
H E L ST U K R Ö F U R :
• Haldgóð reynsla af rekstri, stjórnun og starfsmannahaldi
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfileikar
• Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun
Menningarfélag Akureyrar er þungamiðja öflugs menningarstarfs
þar sem listir og mannlíf dafnar og blómstrar. Það skapar ný
samfélagsleg verðmæti með vandaðri frumsköpun. Hlutverk
Menningarfélagsins er að auka lífsgæði og næra samfélagið sem
öflugur vettvangur upplifunar, fræðslu, listsköpunar, og viðburða
sem uppfylla fjölbreyttar þarfir samfélagsins.
Ástríða, áræðni og fagmennska eru grunngildi og leiðarljós
Menningarfélags Akureyrar.
Ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi, þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið, sendist á umsoknir@mak.is
Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2022.
Bensínleki úr birgðatanki N1
gerði hús fjölskyldu frá Hofs
ósi óíbúðarhæft. Umfangs
mikil hreinsunaraðgerð
stendur yfir en húseigandi
segir farir sínar ekki sléttar.
tsh@frettabladid.is
UMHVERFISSLYS Valdís Brynja Hálf
dánardóttir þurfti að flýja heimili
sitt að Suðurgötu á Hofsósi í desem
ber 2019 ásamt eiginmanni sínum,
Rúnari Þór Númasyni, og þremur
börnum þeirra. Mörg þúsund lítrar
af bensíni láku úr birgðatanki N1 við
Kaupfélag Hofsóss og dreifðust um
nærliggjandi svæði. Valdís segir farir
sínar af samskiptum við Umhverfis
stofnun og N1 ekki sléttar.
„Þetta er búið að vera ógeðslega
sorglegt ferli, ef ég á að vera alveg
hreinskilin við þig.“
Umfangsmikil hreinsunaraðgerð
stendur nú yfir í þorpinu á vegum
Verkís og Umhverfisstofnunar.
Skurðir hafa verið grafnir umhverfis
húsin sem lentu í lekanum og sér
stökum loftunarbúnaði, eins konar
blásurum sem ætlað er að hreinsa
loft og jarðveg, verður komið fyrir
við hús Valdísar og Rúnars.
Umhverf isstofnun áætlar að
hreinsunarstarfið geti tekið allt
að þrjú ár, en telur að húsin eigi að
verða íbúðar og notkunarhæf fyrr.
Valdís setur þó spurningarmerki
við þessar fullyrðingar, enda er alls
óvíst hver árangurinn af hreinsun
inni verður og gæti hún hæglega
dregist á langinn.
Tveimur blásurum hefur þegar
verið komið fyrir utandyra hjá
heimili Valdísar og Rúnars og einn
ig er stefnt að því að koma nokkrum
fyrir innandyra. Búnaðurinn er á
stærð við meðalstóra þvottavél og
Valdís furðar sig á því að Umhverfis
stofnun telji ásættanlegt að bráðum
sex manna fjölskylda, því Valdís á
von á sínu fjórða barni, búi við slík
ar aðstæður inni á heimilinu.
„Ég skil alveg og ég vil leysa þetta,
en þetta er samt ekki lausn, það er
ekki hægt að bjóða fjölskyldu upp á
að hafa þarna fullt af græjum í gangi
og flytja svo inn í þetta hús.“
Fjölskyldan var á vergangi um
nokkurra mánaða skeið, eftir að
hún neyddist til að yfirgefa húsið
að Suðurgötu. Þau dvöldu fyrst í
herbergi hjá móður Valdísar á Hofs
ósi, en fluttu svo í 85 fermetra hús
í um fimm kílómetra fjarlægð frá
þorpinu. Húsið fylgdi jörð sem þau
höfðu keypt skömmu áður en lekinn
gerði vart við sig, en var þó mjög illa
farið, með tilheyrandi músagangi
og rakaskemmdum, og þarfnaðist
margra mánaða endurnýjunar áður
en það varð íbúðarhæft.
„Þetta var bara í raun hræðilegt
ástand, en sem betur fer eigum við
ógeðslega gott bakland og fjölskyld
an bara tók sig saman,“ segir Valdís.
Ljóst er að 85 fermetra illa farið
hús dugar ekki sem framtíðarheim
ili fyrir sex manna fjölskyldu. N1
bauð fjölskyldunni 100.000 króna
skaðabætur á mánuði til að nota
upp í leigu annars staðar, upphæð
sem dugar þó skammt fyrir leigu,
jafnvel á landsbyggðinni. „Þú færð
hvergi leiguhúsnæði fyrir 100.000
krónur, hvað þá fyrir fimm manna
fjölskyldu. Meira að segja á Hofsósi
er það ekki í boði,“ segir Valdís.
Þá er hún ekki bjartsýn á að fjöl
skyldan geti f lutt aftur inn í húsið
á Suðurgötu í bráð, það er talið
óíbúðarhæft af dómkvöddum mats
mönnum.
Spurð um hvenær hún telji fjöl
skylduna geta snúið heim aftur segir
Valdís: „Guð, ég veit það ekki, ef það
verður einhvern tíma. Ég meina, það
er búið að dæma húsið ónýtt eins og
staðan er núna.“
Að sögn Valdísar er óvissan verst.
Í desember 2019 lofaði hún dóttur
sinni að fjölskyldan væri bara að
fara í heimsókn til ömmu í nokkrar
nætur, en rúmum tveimur árum
síðar eru þau enn ekki snúin aftur
heim. Á meðan sitja þau uppi með
húsnæðislán, fasteignagjöld, hita og
rafmagn, af húsi sem er óíbúðarhæft
og háa reikninga fyrir lögfræði
kostnaði. Auk þess að þurfa sjálf að
borga fyrir rafmagnið á hreinsunar
búnaðinn.
Valdís segir litlar sem engar bjarg
ir fyrir fólk í þeirra stöðu. Þau hafi
verið öll af vilja gerð að vinna með
N1 að lausn, en olíufyrirtækið hafi
þó ekki komið hreint fram í málinu.
Það hafi til að mynda upphaflega
reynt að draga í efa að mengunin í
húsinu að Suðurgötu væri tengd lek
anum úr birgðatankinum.
„Maður er alltaf í þessari baráttu,
maður er alltaf einhvern veginn að
reyna að sanna líf sitt og tilveru.
Mér finnst eitt að þurfa að flytja út
úr húsinu með fjölskylduna þína
og leggja þetta á hana, en annað að
þurfa í raun að berjast fyrir lífi þínu
og réttlæti við olíufyrirtæki sem
virðist í raun vera ósnertanlegt.“ ■
Fjölskylda á hrakhólum í á
þriðja ár vegna olíuleka N1
Valdís Brynja
Hálfdánar-
dóttir, Rúnar
Þór Númason
og börn þeirra,
Valgerður Rakel,
Vanda María og
Þorvaldur Helgi.
MYND/AÐSEND
Umfangsmikil hreinsunaraðgerð stendur nú yfir við hús Valdísar og Rúnars að Suðurgötu 6. MYND/AÐSEND
Húsið sem fjölskyldan þurfti að flytja í var mjög illa farið, með tilheyrandi
músagangi og rakaskemmdum. MYND/AÐSEND
10 Fréttir 29. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ