Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 69
Haltu
áfram að
stunda
líkams-
rækt til að
þú getir
notið alls
annars í
lífinu til
fullnustu.
Gunnar
Peterson
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Líttu við á BeLLadonna.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
GOZZIP Maya Gallajakki
Stærðir 38-56
Verð kr. 15.980
GOZZIP Molly skyrtukjóll
Stærðir 38-56
Verð kr. 15.980
GOZZIP Siff tunika
Stærðir 38-56
Verð kr. 16.980
STUDIO Ditte Tunika
Fæst líka með bleiku mynstri
Stærðir 38-56
Verð kr. 11.980
Það getur verið erfitt að hafa
metnað og orku til að stunda
líkamsrækt í svartasta
skammdeginu og án efa eru
margir sem fóru af stað með
góðar áætlanir í byrjun árs,
en eru að missa taktinn.
Hér eru góð ráð frá þjálf-
urum stjarnanna til að finna
kraftinn til að taka á því.
Mörgum finnst mjög erfitt að finna
metnaðinn til að stunda líkams-
rækt á þessum tíma árs, en hér eru
góð ráð frá þremur einkaþjálfurum
sem þjálfa fræga íþróttamenn og
leikara, til að hjálpa fólki að kveikja
neistann. Ráðin birtust fyrst á
vefnum The Zoe Report.
Skammtímamarkmið eru góð
Ashley Borden er einkaþjálfari sem
þjálfar meðal annars Christina
Aguilera, Mandy Moore og Ryan
Gosling. Hún segir að það sé eðli-
legt að vera stundum orkulaus en
vandinn sé að viðhalda þeirri venju
að æfa, þrátt fyrir það.
„Það er mikilvægt að setja sér
skammtímamarkmið,“ segir hún.
„Langtímamarkmið geta verið yfir-
þyrmandi fyrir suma, en skamm-
tímamarkmið eru auðveldari og
byggja upp skriðþunga í líkams-
ræktinni. Í staðinn fyrir að ætla sér
að missa ákveðna kílóatölu er betra
að setja aðgengilegri markmið. Ef
þú hleypur til dæmis alltaf sama
hringinn er gott að taka tímann
sinn og reyna að bæta hann í hvert
skipti, þó að það sé bara um eina
sekúndu.“
Hún segir að þessi aðferð auð-
veldi fólki að leggja harðar að sér,
sem skili betri árangri og viljinn til
að sanna sig fyrir sjálfum sér valdi
jákvæðum breytingum á líkama
og sál.
Hafðu millimarkmið í huga
Gunnar Peterson, sem þjálfar
meðal annars Angelina Jolie, Bruce
Willis, Dwayne Johnson og leik-
menn í NBA, er sammála, en vill að
fólk setji líka langtímamarkmið.
„Svo má ekki heldur gleyma
millimarkmiðum,“ segir hann.
„Hugsaðu um sumarlíkamann, en
líka vorlíkamann. Svo skaltu hugsa
um líkama helgarinnar. Manni
líður auðvitað oft eins og maður
sé ekki að ná árangri, en þú ert að
gera það í hverri viku. Þú ert að
leggja grunninn sem framtíðin
hvílir á. Sjáðu það, skildu það,
gerðu það og njóttu þess.“
Búðu til rútínu
Jeanette Jenkins er stofnandi og
yfirmaður Hollywood Trainer
Club (sem sinnir meðal annars
Alicia Keys og Pink), einkaþjálfari
og talsmaður MyFitnessPal snjall-
forritsins. Hún ráðleggur fólki að
halda sig við rútínu.
„Gerðu ráð fyrir æfingunum
í vikulegu áætluninni þinni,
rétt eins og öðrum mikilvægum
fundum, og ekki aflýsa,“ segir hún.
„Þetta er fundurinn sem snýst um
þína heilsu.“
Peterson tekur undir þetta en
bætir við að fólk eigi að æfa þegar
það hefur í raun og veru tíma, í
stað þess að reyna að búa til tíma.
„Ef það er erfitt að ná æfingu á
morgnana skaltu hafa hana eftir
vinnu og ef eftirmiðdagurinn
gengur ekki skaltu vakna fyrr
á morgnana og klára þetta af á
meðan aðrir sofa,“ segir hann.
„Ekki láta þetta passa, finndu
tímann þar sem þetta passar.“
Ekki dæma þig
Borden segir að fólk eigi líka ekki
að dæma sig.
„Það er allt í lagi að taka
stundum styttri og minna glæsi-
legar æfingar. Með því að reyna
á sig, þó að það sé bara pínulítið,
Finndu kraftinn til að taka á því
Það eru líklega
margir sem
ætluðu að
vera duglegri í
ræktinni á nýja
árinu sem eru
í vandræðum
með að við-
halda metnað-
inum, en von-
andi gagnast
þessi ráð frá
einkaþjálfurum
fræga fólksins
einhverjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Hér er Gunnar Peterson að vinna
með JaVale McGee, atvinnumanni í
NBA-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
byggist upp kraftur,“ segir hún.
Ef þú getur bara fengið þig til að
gera eitthvað smávegis er betra að
gera það en ekki neitt, segir Borden.
Það er allt í lagi að komast hægt í
gang og það getur verið gott að gefa
sér tímabil þar sem maður dæmir
sig ekkert fyrir þær æfingar sem
maður tekur eða tekur ekki.
Mataræði er mikilvægt
Jenkins minnir á tvö lykilatriði,
að drekka nóg vatn og huga vel
að mataræðinu. Hún bendir á að
vatn sé nauðsynlegt fyrir eðli-
lega líkamsstarfsemi og verði enn
mikilvægara þegar fólk stundar
líkamsrækt.
Hún segir líka mikilvægt að
taka ábyrgð á mataræði sínu og
það kemur kannski ekki á óvart að
þessi talsmaður MyFitnessPal mæli
með því að nota forritið til að skrá
niður og fylgjast með mataræðinu.
„Það er gott að læra hvernig
maturinn sem þú borðar hefur
áhrif á orkustig, svefn, einbeitingu,
fitubrennslu, vöðvaaukningu,
meltingu og fleira,“ segir hún.
Notaðu netið
Borden segir að faraldurinn hafi
gert það að verkum að farið var
að bjóða upp á mikið af líkams-
rækt í gegnum netið. Það hefur
verið mikill léttir fyrir marga að
geta fengið þjálfun í gegnum netið
því það getur sparað fólki mikinn
tíma, peninga og óþægindi.
Þetta hefur því breytt ótrúlega
miklu og gert það mun auðveldara
og aðgengilegra að stunda líkams-
rækt.
Hafðu önnur markmið í huga
Peterson bendir á að ein auðveld
leið til að hvetja sig áfram sé að
líta á allt annað sem maður hefur
í lífinu.
„Haltu áfram að stunda líkamsrækt
til að þú getir notið alls annars í
lífinu til fullnustu,“ segir hann. Það
skiptir ekki máli hvort þig langar
að geta leikið við börn, klifið fjöll
eða farið í frí á ströndina, líkams-
ræktin hjálpar þér að njóta þess alls
til hins ítrasta.“ ■
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 29. janúar 2022