Fréttablaðið - 29.01.2022, Side 45

Fréttablaðið - 29.01.2022, Side 45
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) óskar eftir að ráða kynningarstjóra til starfa sem fyrst. Um er að ræða starf sem snýr að markvissri miðlun og kynningu á starfsemi félagsins, stefnu og baráttumálum hjúkrunarfræðinga. Viðkomandi mun bera ábyrgð á samræmingu kynningarmála, gerð kynningarefnis og samskiptum við fjölmiðla. Kynningarstjóri • Ábyrgð á kynningarmálum félagsins • Upplýsingamiðlun til innlendra og erlendra fjölmiðla • Gerð kynningarefnis og birtingaráætlun fyrir alla miðla • Ábyrgð á ritstjórn og þróun vefs og annarra samfélagsmiðla félagsins • Þátttaka í stafrænni þróun félagsins • Árangursmælingar og eftirfylgni • Þátttaka í öðrum verkefnum sem tengjast starfi og þjónustu félagsins • Skipulag, kynning og framkvæmd viðburða í samstarfi við starfsmenn félagsins Helstu verkefni og ábyrgð • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði • Reynsla af textaskrifum og miðlun upplýsinga • Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti og hæfni til að setja fram efni á skýran hátt • Góð tölvukunnátta, þekking á innsetningu efnis á vefsíður og samfélagsmiðla • Leikni í mannlegum samskiptum, hugmyndaauðgi og sveigjanleiki • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileiki Menntunar- og hæfniskröfur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þjónar rúmlega 4.500 félagsmönnum um allt land.  Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk að vinna að hagsmuna- gæslu á sviði kjara- og réttindamála hjúkrunarfræðinga ásamt þátttöku þeirra í þróun og stefnumótun á hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu landsins. Gildi félagsins eru ábyrgð, áræðni og árangur og tekur ráðning mið af þeim. Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðu þess www.hjukrun.is Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2022. Umsóknum skal skila rafrænt á formadur@hjukrun.is, ásamt ferilskrá og ítarlegu kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Um er að ræða 80 - 100% starf sem fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gegnum netfangið gudbjorg@hjukrun.is BSRB eru stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi. Aðildarfélög BSRB eru 19 talsins og fjöldi félagsmanna um 23.000. BSRB óskar eftir að ráða kynningarfulltrúa og hagfræðing til starfa í fjölbreytt og krefjandi störf sem reyna á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð í áhugaverðum verkefnum. Þetta eru störf fyrir fólk sem brennur fyrir þjóðfélagsumræðuna og réttlátu samfélagi. Hagfræðingur BSRB Um er að ræða nýja stöðu á skrifstofu BSRB. Hagfræðingurinn annast greiningar á velsæld og efnahagsmálum, safnar saman og tryggir gott aðgengi að upplýsingum um vinnumarkaðinn og byggir þannig undir stefnumótun bandalagsins. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Starfssvið • Rannsóknir og greiningar á velsæld og efnahags­ málum í samvinnu við aðra sérfræðinga BSRB • Samskipti við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins í samráði við formann og framkvæmdastjóra • Ráðgjöf um hagfræðileg efni • Seta í ýmsum nefndum og ráðum samkvæmt ákvörðun stjórnar BSRB Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf í hagfræði • Marktæk reynsla af hagfræðistörfum • Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Frumkvæði og metnaður Starfssvið • Ábyrgð á kynningarmálum • Ritstjórn á öllu útgefnu efni • Umsjón með fjölmiðlasamskiptum og svör við fyrirspurnum fjölmiðla • Ráðgjöf til stjórnenda BSRB og starfsfólks aðildar­ félaga um miðlun upplýsinga og fjölmiðlasamskipti • Skipulagning og framkvæmd viðburða á vegum bandalagsins • Umsjón með samfélagsmiðlum • Markviss vöktun á fjölmiðlum og umræðu um málefni BSRB og málefnum tengdum vinnumarkaðinum Menntunar- og hæfniskröfur • Góð færni í íslensku og gott vald á ritun og framsetningu texta er nauðsynleg • Reynsla af störfum á fjölmiðlum og af kynningarmálum er æskileg • Þekking á vefumsjón, samfélagsmiðlum og útgáfu • Geta til að vinna hratt og undir álagi • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur • Starfið krefst skipulagshæfileika, nákvæmni, hugmyndaauðgi sem og gagnrýninna og sjálfstæðra vinnubragða Kynningarfulltrúi BSRB Kynningarfulltrúi BSRB ber ábyrgð á kynningar málum bandalagsins, stuðlar að sýnileika þess í opinberri umræðu, heldur utan um ritstjórn á öllu útgefnu efni og kemur að skipulagningu viðburða. Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar. Sótt er um störfin á alfred.is Umsóknum um störfin þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfsemi BSRB og hvernig umsækjandi uppfylli hæfniskröfur starfsins. Nánari upplýsingar veitir Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB (magnus@bsrb.is) Spennandi störf hjá BSRB

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.