Fréttablaðið - 25.03.2022, Síða 1
5 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 5 . M A R S 2 0 2 2
Spurningar
um samskipti
Menning ➤ 18
Sérblaðið
Sjálfbær rekstur
fylgir Fréttablaðinu í dag
KYNN INGARBLAÐ
FÖSTUDAGUR 25. mars 2022
Sjálfbær rekstur
Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, og Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sjálfbær þróun – frábær þróun
Þegar Bjarni Bjarnason tók við sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur fyrir rúmum áratug blasti við að reisa við fjár-
haginn, þá tóku jafnréttismálin við og allan tímann hafa loftslagsmálin verið undir og yfir og allt um kring. Nú sé
komið að losunarmiklu stórfyrirtækjunum. Þar geti Carbfix, undir stjórn Eddu Sifjar Pind Aradóttur, hjálpað. 2
Virðisaukinn er farinn út í bláinn!
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.mitsubishi.is/eclipse
Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!*
Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross
PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til.
*Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu.
lyaver.is
Lægra
vöruverð
Leiðtogar G7, aðildarríkja
NATO og ESB auka stuðning
við Úkraínu í formi hergagna
og mannúðaraðstoðar og
setja aukinn kraft í refsi
aðgerðir gegn Rússlandi.
ingunnlara@frettabladid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
ALÞJÓÐAMÁL Í gær komu leiðtogar
ríkustu þjóða og öflugustu banda
laga hins vestræna heims saman
í Brussel, höfuðborg Evrópu og
hringiðu alþjóðastjórnmála.
Þegar öllu var á botninn hvolft
var markmiðið eitt, og aðeins eitt:
að koma í veg fyrir að heimsstyrjöld
brjótist út.
Oft hafa fjölmiðlar varpað fram
fullyrðingum um að hætta sé á
kjarnorkustyrjöld, að kalt stríð sé
farið að hitna en nú er forseti Rúss
lands, sem býr yfir stærsta kjarn
orkuvopnabúi heims, svo gott sem
kominn með fingurinn á gikkinn.
Nato, G7 og Evrópusambandið átta
sig á alvarleika þessara hótana og er
samkoma þeirra í Brussel táknræn
fyrir samstöðu heims um að kæfa
eldinn.
Skilaboðin voru þau sömu og
þau hafa verið frá upphafi innrásar
Rússlands í Úkraínu. Atlantshafs
bandalagið, NATO, mun gera allt
sem í valdi sínu stendur til styðja
Úkraínu án þess að eggja Rússa til
stríðs við bandalagsþjóðir.
„Það hefur orðið skýrt rof í sam
skiptunum við Rússland eftir þessa
innrás,“ segir Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra en hún telur ólík
legt að samið verði um frið í Úkra
ínu í bráð. Sjá viðtal við forsætisráð
herra á síðu 4.
Samkoman er táknræn og sendir
Rússum skýr skilaboð um afleið
ingar innrásarinnar. Einhugur
þjóðanna í refsiaðgerðum gegn
Rússlandi á sér fá fordæmi. Járntjald
ið leggst þungt á rússneskan efna
hag og mun sömuleiðis hafa áhrif
í Evrópu og um heim allan. Með
samkomu sinni í gær sýndu þjóðar
leiðtogar að afleiðingar refsiaðgerða
séu ásættanlegar, sérstaklega þegar
hinn kosturinn í stöðunni er heims
styrjöld. n
Þjóðarleiðtogar kjósa járntjald í stað styrjaldar
37 þjóðarleiðtogar
komu saman til tíma-
mótafundar í Brussel í
gær vegna stöðunnar í
Austur-Evrópu.
Fumio Kishida, forsætisráðherra Japan, Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, voru einörð í samstöðu sinni eftir langa fundalotu í Brussel í gær. Ákveðið var að auka hergagnastuðning við Úkraínu og efla mannúðaraðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Katrín
Jakobsdóttir,
forsætis
ráðherra