Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 45
Ofanleiti 2 / sími 422 8000 / verkis.is
ÞEKKING Í VERKI Í 90 ÁR
Traustir innviðir, byggðir upp í sátt við umhverfi og náttúru,
einfalda okkar daglegu athafnir og gera líf okkar betra.
Að baki uppbyggingunni liggur dýrmæt sérþekking,
stöðugt mat og ómæld vinna færustu sérfræðinga.
Saga okkar er samofin uppbyggingu íslensks samfélags
undanfarin 90 ár.
VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG
Verkfræðistofan Verkís legg-
ur mikla áherslu á sjálfbærni
í öllu sínu starfi. Sérstök
áhersla er lögð á vistvænar
samgöngur og nýlega fékk
fyrirtækið platínum-vottun
Hjólafærni.
Vistvænar samgöngur hafa alltaf
verið hluti af sjálfbærnistefnu
Verkís, að sögn Elínar Vignis-
dóttur, landfræðings og ráðgjafa í
sjálfbærni.
„Þegar við fluttum höfuð-
stöðvarnar okkar í Ofanleiti 2 árið
2013 var strax ákveðið að gera
mikið fyrir hjólreiðafólk. Það er
stefna fyrirtækisins að auðvelda
starfsfólki að komast til vinnu á
vistvænan hátt,“ segir hún.
„Við höfum góða aðstöðu fyrir
fólk sem kemur hjólandi í vinnuna.
Hér er góð hjólageymsla sem við
köllum Hjólahöllina, þar er líka
hægt að skipta um föt og þurrka
af sér. Við keyptum nýlega tvö
rafhjól sem starfsfólk getur prófað
í viku og viku í einu til að komast
til og frá vinnu. Það er ekki komin
reynsla á það en það er okkar von
að það verði til þess að fleira starfs-
fólk velji rafhjól sem ferðamáta.“
Verkís fékk í janúar platínum-
vottun Hjólafærni. Það er vottun
sem fyrirtæki geta fengið ef vinnu-
staðurinn er svo útbúinn að allir
sjá að þangað er best að koma á
hjóli, gangandi eða í strætó, hvort
sem það eru gestir eða starfsfólk.
„Við söfnum stigum fyrir
aðstöðuna og fyrir viðleitni til að
hvetja stafsfólk og gesti til að nota
vistvænar samgöngur,“ segir Elín.
„Það var líka einn af þáttunum
sem voru hafðir í huga þegar verið
var að velja nýtt húsnæði fyrir
höfuðstöðvarnar að vera stað-
sett miðsvæðis. Þannig þarf ekki
að fara langt til að sækja ýmsa
þjónustu.“
Auk rafhjólanna á Verkís raf-
bíla sem starfsfólk getur fengið til
afnota, þurfi það að skreppa frá
vegna verkefna eða sinna einka-
erindum á vinnutíma.
„Þessum bílum er alltaf að fjölga.
Við erum núna með þrjá 100% raf-
magnsbíla og nokkra Hybrid bíla.
Það er stefna hjá okkur að fjölga
rafbílunum,“ upplýsir Elín.
Sjálfbærni í verkefnum
Elín segir að hjá Verkís ríki
skilningur um mikilvægi þess
að aðstoða viðskiptavinina við
að verða sjálfbærari og draga úr
umhverfisáhrifum þeirra.
„Þau mannvirki sem verið er að
byggja í dag verða í notkun næstu
100 árin og það skiptir máli að
hugsa um þau áhrif sem þau hafa.
Við erum alltaf að innleiða meiri
sjálfbærni í okkar verkefnum. Við
höfum verið að draga úr umhverf-
isáhrifum en á sama tíma höfum
við reynt að hámarka jákvæð
áhrif,“ segir hún.
„Við höfum verið að þróa
mats tæki sem auðveldar verk-
efnastjórum að meta sjálfbærni í
sínum verkefnum, sem þeir geta
nýtt sér strax frá upphafi. Tækið
auðveldar starfsfólki að koma hug-
myndafræðinni um sjálfbærni inn
í verkefnin.“
Við þróun þessa matstækis
voru heimsmarkið Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun
nýtt, þar sem talið er að þau kort-
leggi alla þætti sjálfbærni mjög vel.
„Sjálfbærni er svo víðfeðm og
nær til margra þátta. Flestir þekkja
heimsmarkmiðin því þau eru
svo vel kynnt og með því að nota
þau er auðvelt fyrir fólk að skilja
hvað er átt við þegar við ræðum
um sjálfbærni. Með því að nota
matstækið geta verkefnisstjórar
skoðað hvaða heimsmarkmið geta
átt við í þeirra verkefni. Og hvar
tækifæri eru til að gera betur,“
útskýrir Elín.
„Þetta nýja tól gefur okkur líka
tækifæri til að nálgast verkkaupa.
Við getum rætt við verkkaupann
um hvaða markmið sem snúa að
sjálf bærni skipta hann mestu
máli og hvernig hægt er að ná
þeim á sjálf bæran hátt í verkefn-
inu. Það er hluti af okkar sjálf-
bærniráðgjöf.“
Reikna kolefnisspor af
ráðgjafarvinnu
Elín segir að Verkís sé einnig
farið að bjóða verkkaupum að
þau reikni kolefnissporið af sinni
ráðgjafarvinnu. Það er metið út
frá stærð og umfangi verkefna og
verkkaupar geta fengið niðurstöð-
una afhenta til að átta sig betur á
sinni stöðu.
„Við erum ekki bara að gefa
upp einhverja tölu heldur skoða
hvernig megi draga úr henni.
Verkefnastjórinn getur til dæmis
skoðað hvort hægt sé að fækka
ferðum ef mikið er um ferðir í
verkinu, eða hvort hægt sé að
ferðast á annan hátt sem hefur
minni umhverfisáhrif,“ segir hún.
„Við veitum alls kyns ráð-
gjöf varðandi sjálf bærni og
hvernig verkkaupar geta minnkað
umhverfisáhrif í verkefnum. Til
þess höfum við til dæmis notað
lífferilsgreiningar og samtöl við
hönnuði.“
Elín segist finna það að fólk
er mun meðvitaðra í dag um
umhverfismál en þegar hún hóf
störf fyrir Verkís fyrir 14 árum.
„Fólk er meðvitaðra um að
draga úr kolefnisspori. Það eru
f leiri og f leiri sem sjá nauðsyn
þess að draga úr áhrifum sínum á
umhverfið.“ ■
Hvetja til vistvæns ferðamáta
Elín Vignisdóttir,
landfræðingur
og ráðgjafi í
sjálfbærni hjá
Verkís.
FRÉTTBLAÐIÐ/
EYÞÓR
kynningarblað 31FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR