Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 8
Húsnæðis- og mannvirkja-
stofnun segir skýrslu um
brunann á Bræðraborgarstíg
faglega unna. Vörn eiganda
snýr að teikningum sem hefði
aldrei átt að samþykkja, þá er
því hafnað að engin slökkvi-
tæki hafi verið í húsinu.
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun (HMS) hafnar því að
skýrsla stofnunarinnar um brun-
ann á Bræðraborgarstíg sumarið
2020 innihaldi huglægar ályktanir
sem séu litaðar af afleiðingum brun-
ans. Þrír létust í brunanum. Fyrrver-
andi íbúar og fjölskyldur þeirra sem
létust hafa stefnt eiganda hússins og
fara fram á alls 162 milljónir króna í
bætur. Málið er á dagskrá dómstóla
næsta haust. Vísað er sérstaklega í
skýrslu HMS í stefnunni.
Fram kemur í svari HMS við fyrir-
spurn Fréttablaðsins að markmið
skýrslunnar hafi ekki verið að meta
sök eða bótaábyrgð einstakra aðila.
„Rannsókn HMS á brunanum
byggir á sérfræðimati og fyrirliggj-
andi gögnum en í f lestum tilfellum,
líkt og í jafn umfangsmiklu máli
sem þessu, þarf að draga fram sem
sannasta mynd af atburðarásinni
sem gert er með vettvangsrann-
sókn, líkönum, myndum og mynd-
böndum auk frásagna sjónarvotta,“
segir í svarinu. „Um er að ræða sér-
fræðimat fagaðila sem búa yfir mik-
illi reynslu á þessu sviði.“
Guðmundur Gunnarsson bygg-
ingarverkfræðingur vann minnis-
blað þar sem gerðar eru athuga-
semdir við skýrsluna. Þá sérstaklega
að HMS taki mið af teikningum
byggingarfulltrúa sem gerðar voru
um síðustu aldamót vegna eigna-
skiptasamnings og vörðuðu aðeins
þáverandi eiganda 1. hæðar hússins
en ekki 2. og 3. hæð. Húsinu var þó
aldrei breytt og óljóst hvers vegna
þær hafi verið samþykktar sem svo-
kallaðar reyndarteikningar.
Í svari HMS segir að unnið hafi
verið með þessi gögn samhliða
rannsókn á brunarústunum. Það sé
afar slæmt þegar hús séu ekki sam-
kvæmt teikningum, þá sé óheppi-
legt að ekki hafi verið gerð lokaút-
tekt á efri hæðum hússins. Er vísað
í lög frá árinu 2000 um að tryggja
brunavarnir í samræmi við notkun,
auk þess að sækja þurfi um tilskilin
leyfi vegna breytinga.
Notkun hússins hafi verið önnur
en teikningar gerðu ráð fyrir og
forsendur því allt aðrar gagnvart
brunaöryggi, þar sem breytt notkun
hafi kallað á auknar brunavarnir og
eldvarnaeftirlit.
Er það málsvörn eigandans að þar
sem húsinu hafi aldrei verið breytt í
samræmi við teikningarnar frá árinu
2000 sé ekki hægt að gera kröfur til
hússins í samræmi við þágildandi
byggingar- og brunavarnareglur.
Skúli Sveinsson, lögmaður eigand-
ans, hafnar fullyrðingum í stefnunni
á borð við að engin slökkvitæki hafi
verið í húsinu. Til séu myndir og
myndbönd úr húsinu áður en það
brann sem sýni fleiri en eitt slökkvi-
tæki, það hafi verið sent til HMS.
Varðandi reykskynjarana hafi
verið búið að taka úr þeim rafhlöð-
urnar, um sé að ræða þekkt vanda-
mál í sambýlishúsum þar sem verið
er að elda og loftræsting ef til vill
ekki góð. n
Eigandi gagnrýnir notkun
teikninga frá aldamótum
Þrír létust í brunanum sumarið 2020. Karlmaður sem olli honum var úrskurðaður ósakhæfur í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mynd innan úr húsinu áður en það brann. Eldvarnarteppi er sýnilegt.
Allt á einum stað
fyrir baðherbergið
Bað- og blöndunartæki
Flísar og múrefni
Málning og kítti
Salerni, baðkör,
sturtur og handlaugar
Innréttingar
Handklæðaofnar
og frábær þjónusta
ingunnlara@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Japanska ríkisstjórnin for-
dæmir allar hótanir Rússa um að
beita gereyðingarvopnum. Málið
er forsætisráðherranum sérstaklega
hugleikið í ljósi sögunnar, ekki ein-
ungis sem Japana heldur einnig sem
þingmanni Hiroshima. Þetta sagði
Hikariko Ono, upplýsingafulltrúi
Fumio Kishida forsætisráðherra, á
fjarfundi með fjölmiðlum í gær.
Ono segir Kishida eina forsætis-
ráðherra Asíu sem gripið hafi til
umsfangsmikilla aðgerða til að
senda Rússum skilaboð. Japan mun
verja 200 milljónum dala í mannúð-
araðstoð til Úkraínu og nágranna-
landa vegna innrásarinnar.
Ono segir í samtali við Fréttablað-
ið að Japanir séu mjög friðarsinnuð
þjóð, en að miklar umræður eigi sér
stað þarlendis um 9. grein stjórnar-
skrár Japans, sem var samþykkt eftir
seinni heimsstyrjöldina. Í ákvæðinu
afsala Japanir sér þeim fullveldis-
rétti að nýta hernað í þeim tilgangi
að leysa milliríkjadeilur.
„Önnur hliðin segir að nú sé tími
til að endurskoða ákvæðið en hin
hliðin vill að það gildi áfram og
að við verðum áfram friðarsinnuð
þjóð. Að vísu hefur staðan breyst
mikið frá síðari heimsstyrjöldinni.
Öryggi Japans hefur verið ógnað í
auknum mæli. Eldflaugatilraunir
Norður-Kóreu og innrás Rússlands
eru algjörlega óásættanlegar að
mati Japans,“ segir Ono. n
Japanir fordæma kjarnorkuhótanir
Fumio Kishida,
forsætisráð-
herra Japans
adalheidur@frettabladid.is
GEIRFINNSMÁL Væri Sævar Marinó
Ciesielski á lífi ætti hann rétt á 385
milljónum í miskabætur, að mati
héraðsdómara sem dæmdi tveimur
af fimm börnum hans sinn hlut
þeirrar fjárhæðar með dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í gær.
Um er að ræða 77 milljónir króna
sem þau Lilja Rún Jensen og Victor
Ciesielski Jensen fá hvort um sig í
bætur vegna sakfellingar og frelsis-
sviptingar föður þeirra í Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálum. Með dóm-
inum er ljóst að önnur börn Sævars
eiga rétt á sömu bótum og systkin
þeirra og eru þá bótafjárhæðir
vegna Guðmundar- og Geirfinns-
mála komnar vel yfir milljarð, eða
nánar tiltekið í 1.181.000 krónur.
Dómurinn í gær vekur upp spurn-
ingar um mál Tryggva Rúnars Leifs-
sonar, en ríkið var sýknað af kröfum
dánarbús hans í Landsrétti, á þeim
grundvelli að bótaréttur Tryggva
Rúnars erfðist ekki. Bíður það mál
nú meðferðar í Hæstarétti. Tryggi
Rúnar og Sævar Marinó voru báðir
látnir áður en þeir voru sýknaðir
með dómi Hæstaréttar árið 2018.
Í dóminum sem kveðinn var
upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær er hins vegar vísað til laga sem
sett voru á Alþingi í kjölfar sýknu-
dómsins en í athugasemdum með
þeim var lögð áhersla á jafnræði
milli hinna sýknuðu, jafnt þeirra
sem látnir eru og þeirra sem enn
eru lifandi. n
Sævar fengi hæstu bætur sögunnar
Ákvarðaðar bætur hingað til
Albert Klahn Skaftason 15 milljónir
Guðjón Skarphéðinsson 260 milljónir
Kristján Viðar Júlíusson 350 milljónir
Tryggvi Rúnar Leifsson 171 milljón*
Sævar Marinó Ciesielski 385 milljónir
Erla Bolladóttir bíður endurupptöku
*Til meðferðar í Hæstarétti
Sævar Ciesielski ávarpaði dóm árið 1980. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
8 Fréttir 25. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ