Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 60
Þetta var bara eins og
einhver hugljómun.
Þetta var besta kvöld
lífs míns. Ég elska
Airwaves.
Agnes Björt Andradóttir
Gleðifregnir bárust frá skipu-
leggjendum Iceland Airwaves
í vikunni. Hátíðin verður
haldin í Reykjavík þann 3. til
5. nóvember og meðal stað-
festra gesta er enska bandið
Metronomy.
ninarichter@frettabladid.is
Airwaves-hátíðin hefur verið haldin
frá árinu 1999, þar sem rjóminn af
íslenskri tónlistarsenu heldur upp-
skeruhátíð samhliða erlendum
tónlistarmönnum úr fremstu röð.
Fjöldi fólks hefur skapað þar dýr-
mætar minningar.
Keypti upp alla gúmmíhanskana
„Ég hef bara misst einu sinni af
Airwaves, þegar ég bjó erlendis, en
hef annars alltaf mætt. Ég minnist
ógrynnis af geggjuðum tónleikum,“
segir Matthías Már Magnússon, dag-
skrárstjóri Rásar 2. „Svo var tímabil
þegar ég var umborðsmaður Dr.
Spock. Það var fyndið að kaupa alla
gula gúmmíhanska á höfuðborgar-
svæðinu og biðja um nótu. Og fólkið
í 10-11 spurði þá: Já, er Spock í kvöld?
Og svo þurfti ég að svara öðru tón-
listarfólki þegar það spurði hvenær
Spock væri að spila,“ segir hann.
„Morðingjarnir voru ekkert að
grínast í Airwaves-laginu sínu þar
sem ein línan er: Fokk, við erum að
spila á sama tíma og Dr. Spock. Sem
endaði á því að Dr. Spock var oft
síðast á laugardegi á Nasa. GusGus
og Dr. Spock áttu þennan heiður í
nokkur ár, í árdaga hátíðarinnar.“
Og lænöppið sem þessi hátíð
hefur boðið upp á síðustu 20 ár er
algjörlega ótrúlegt.“
Pottapartí í öllum fötunum
„Í fyrsta skipti sem ég fór á Air-
waves hefur örugglega verið 2010.
Þá vorum við á Batteríinu. Það var
bara einhver geðveiki í gangi,“ segir
Agnes Björt Andradóttir, söngkona
í Sykri. „Við vorum alveg að missa
okkur, en svo man ég að við vorum
komin í eftirpartí á Seltjarnarnesi.
Þá vorum við í fötunum í heitum
potti að ákveða hvað við ætluðum
að sjá á morgun. Airwaves er svo
mikið eitthvað svona rugl,“ segir
hún og hlær.
Agnes minnist skemmtistaðarins
Nasa með hlýhug. „Ég tengi Nasa
rosa mikið við hátíðina, og hvað var
rosalega gaman að vera alltaf þar í
kringum Airwaves. Þegar Sykur spil-
aði fyrst á hátíðinni, á Nasa á laugar-
deginum 2011, þá voru allir þarna
inni. Það var svona eins og hugar-
heimur allra sameinaðist og yrði að
einhverju alheimsljósi,“ segir hún.
„Þetta var bara eins og einhver
hugljómun. Þetta var eitt besta
kvöld lífs míns. Ég elska Airwaves.“
Nötrandi á sviðinu á Nasa
„Ég var einu sinni í hljómsveit sem
hét Hölt hóra og við komum fram á
Airwaves 2005. Tónleikarnir voru
í Hafnarhúsinu en þar kom einnig
fram Hollywood-stjarnan Juliette
Lewis ásamt hljómsveit sinni The
Licks. Geggjað dæmi fyrir utan að
við vorum fyrstir á svið og tón-
leikarnir áttu að hefjast á slaginu
átta,“ segir fjölmiðlamaðurinn Atli
Fannar Bjarkason, sem er jafnframt
einn stofnenda líkamsræktarstöðv-
arinnar Afreks.
„Við fórum því í markaðsherferð
dagana fyrir tónleikana, veggfóðr-
uðum miðbæinn með dreifimiðum
og klæddum grandalaust fólk í boli.
Þegar klukkan var tíu mínútur í átta
á tónleikakvöldinu leit ég út í sal og
sá mér til skelfingar að salurinn var
galtómur,“ segir hann. „Einn svell-
kaldur rann niður í taugaáfallinu
sem fylgdi og ég ákvað að taka þetta
á æðruleysinu og gefa allt í tónleika
sem enginn myndi sjá.“
Atli Fannar segist hafa skotist
inn á sviðið í sýndarstuði, þegar
fyrsta lagið hófst. „Þegar nokkrar
sekúndur voru liðnar af laginu opn-
uðust dyrnar og inn flæddi fólk —
straumurinn var slíkur að salurinn
var fljótur að fyllast,“ segir hann.
„Ef ég væri gáfaður eða trúaður
ætti ég örugglega líkingu úr fyrsta
testamentinu til að lýsa þessu.
Orð geta ekki lýst gleði minni en
ég komst síðar að því að dyra-
verðirnir höfðu haldið þriggja kíló-
metra langri röð fyrir utan húsið
þangað til klukkan sló átta,“ segir
Atli Fannar. „Engum var hleypt inn
mínútu fyrr. Þannig hundsuðu þeir
algjörlega brothætt hjörtu hljóm-
sveitarinnar en við höfum fyrirgefið
það enda spiluðum við okkar bestu
tónleika þetta örlagaríka kvöld.“ n
Alheimsljósið á dansgólfi
og gulir gúmmíhanskar
Bandaríska leik- og tónlistarkonan Juliette Lewis kom fram á hátíðinni árið 2005 undir merkjum Juliette & The Licks.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Sígildir sigurvegarar
Risa Eitt Sett var nýlega valið besti nýliðinn á
Nammitips. Eitt Sett er að sjálfsögðu líka til sem
unaðslegt páskaegg. Annar sigurvegari er okkar
sígilda og ómótstæðilega Nóa Kropp sem var valið
mest ávanabindandi nammið á Nammitips.
Hvort eggið ætlar þú að fá þér?
N Ó I SÍ R Í US
ninarichter@frettabladid.is
Bandaríska sveitin Umphrey's
McGee stendur fyrir tónleikum í
Eldborgarsal Hörpu um helgina,
á viðburði sem kallast Röckjavik.
Ólafur Páll Gunnarsson, þekkt-
astur sem Óli Palli á Rás 2, kveðst
ekki hafa kannast við bandið þegar
aðstandendur sveitarinnar höfðu
samband fyrir tveimur árum síðan
og spurðu hvernig honum litist á að
Umphrey's McGee kæmi til Íslands.
„Þau spurðu hvernig mér litist
á það ef þessi hljómsveit kæmi til
landsins og væri með þrjú kvöld
í Eldborg. Ég spurði bara: Ha? Þá
sendi hann mér link og ég fór að
hlusta á bandið. Mér fannst þetta
bara fínt,“ segir Óli Palli.
Hann viðurkennir að hafa haft
efasemdir. „Ég hugsaði, þetta verður
aldrei hægt. Svo sendi hann mér
póst nokkrum vikum seinna. Þá
hafði selst upp á 20 mínútum. Allir
miðarnir farnir,“ segir hann og hlær.
„Þetta eru eiginlega allt Banda-
ríkjamenn sem eru að koma,“ segir
Óli Palli um gestina sem fylla sætin
í Eldborg. „Þetta eru lærisveinar
Grateful Dead og Phish. Þetta flokk-
ast undir svokölluð jam-bands,“
útskýrir hann. „Þetta er spuna-
popprokk. Þeir spila lengi, og það er
ekki sama prógrammið tvö kvöld í
röð.“
Óli Palli segir að líkt og í tilfelli
Grateful Dead, sem áttu svokall-
aða „dead-heads“ sem eltu þá um
heiminn, eigi Umphrey's McGee sér
harða aðdáendur sem geri slíkt hið
sama. Óli Palli reiknar með að um
1.400 manns fylgi hljómsveitinni til
Íslands. n
Urmull Kana á Umphrey's McGee
Ólafur Páll
Gunnarsson út-
varpsmaður
LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR