Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 25
Samkaup reka yfir 60
verslanir um allt land undir
merkjum Nettó, Kjörbúðar-
innar, Krambúðarinnar og
Iceland. Hjá fyrirtækinu
starfa um 1.400 manns og er
starfsmannahópurinn því
stór en samheldinn – þvert
á vörumerki og óháð stað-
setningu.
Mikil áhersla er lögð á að starfs-
fólki líði vel og er það hvatt til að
nýta sér þær mörgu leiðir sem
Samkaup bjóða upp á til vellíð-
unar og framgangs, bæði í starfi og
persónulega. Þar má helst nefna
víðtæka velferðarþjónustu og
öflugar námsleiðir sem standa öllu
starfsfólki til boða.
Eftirsóknarvert að vinna
hjá Samkaupum
„Við viljum að eftirsóknarvert sé
að starfa hjá Samkaupum og því
tekur starfsfólkið okkar þátt í að
þróa og bæta starfsumhverfi sitt,“
segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri mannauðs-
sviðs. „Samskipti og samtal innan
hópsins eru starfsmönnum Sam-
kaupa mikilvæg, en vegna Covid
hefur slíkt verið í lágmarki síðustu
tvö ár. Haustið 2021 tókst okkur
til að mynda að halda lykilfundi
með starfsfólki Samkaupa á tíu
mismunandi stöðum á landinu þar
sem stjórnendur hittu starfsmenn
verslana og áttu með þeim nota-
lega kvöldstund og gott spjall um
framtíðina, áskoranirnar og tæki-
færin fram undan,“ segir Gunnur.
„Meginmarkmið Samkaupa er
að vera eftirsóknarverður vinnu-
staður, þar sem áhersla er lögð á
jákvæða og heilbrigða menningu,
jafnrétti og sterka liðsheild, auk
þess sem við höfum lagt okkur
fram um að hvetja starfsfólk til
aukinnar menntunar og við viljum
virkja fólk til að bæta við sig þekk-
ingu. Við höfum mótað öfluga
menntastefnu sem mætir starfs-
fólki hvar sem það er, hvort sem
er vettvangur símenntunar, eða í
tengslum við hið formlega mennta-
kerfi þar sem starfsfólk hefur
tækifæri til að mennta sig samhliða
vinnu, með stuðningi Samkaupa.“
Eitt stærsta vildarkerfi
á Íslandi í dag
Um mitt ár 2021 var Samkaupa-
appinu ýtt úr vör og óhætt er að
segja að það hafi slegið í gegn. Í
árslok 2021 voru notendur orðnir
um 40.000 og 20% af sölu verslana
fóru í gegnum appið. Þar með er
appið orðið að einu stærsta vildar-
kerfi á Íslandi í dag, sem býður við-
skiptavinum upp á afslátt í formi
inneignar, sem hann getur síðan
nýtt í næstu verslunarferð.
„Við höfum verið öflug í að til-
einka okkur tæknina og viljað vera
leiðandi þegar kemur að nýstárleg-
um leiðum til að mæta viðskipta-
vinum okkar. Netverslunin sem
fór í loftið 2017 hefur heldur betur
vaxið og hvert metið slegið á fætur
öðru í nýtingu hennar í fyrra. Vissu-
lega var um að ræða heims faraldur
með tilheyrandi samkomutak-
mörkunum, en við finnum fyrir því
að neytendahegðunin hefur breyst
til langframa og hlökkum til að
stíga næstu skref í þessari vegferð,
enda mikil gróska í nýsköpun og
nýtingu á tækninni sem verður
spennandi að bjóða upp á fyrir við-
skiptavini árið 2022,“ segir Gunnar
Egill Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri verslunarsviðs.
Samfélagsleg uppskera
Samkaup hafa nú gefið út sam-
félagsskýrslu fyrir árið 2021 og er
það í annað skipti sem slík skýrsla
kemur frá félaginu, þrátt fyrir að
hafa um árabil lagt ríka áherslu á
samfélagslega ábyrgð í allri sinni
starfsemi. Vægi samfélagslegrar
ábyrgðar vex sífellt og krafan um
að hún sé í hávegum höfð á öllum
stigum reksturs, stefnumótunar
og í daglegum ákvörðunum verður
háværari sömuleiðis.
Stjórnendahópur Samkaupa
hefur lagt mikla áherslu á að sam-
félagsleg ábyrgð sé unnin út frá
kerfisbundinni nálgun og raun-
verulega sýnileg á borði en ekki
aðeins í orði.
Dæmi um þetta er að árið 2021
uppskar Samkaup:
n Jafnvægisvog FKA, þar sem
jöfnu kynjahlutfalli í stjórn-
endalagi félagsins er náð
n Samstarf við Samtökin ’78,
Þroskahjálp og Mirru, rann-
sókna- og fræðslusetur fyrir
erlent starfsfólk sett á fót
n Hvatningarverðlaun jafnréttis-
mála, bæði á sviði fjölmenn-
ingar og atvinnumála fólks með
skerta starfsgetu
n Samkaup losuðu 27% minna af
kolefni en árið á undan
n Eldsneytisnotkun dróst saman
um 8,36% milli ára
n Fyrstu hraðhleðslustöðvunum
komið upp við verslanir
n Afslættir í gegnum átakið
„Minni sóun – allt nýtt“ náðu
hámarki í fyrra, eða því sem
nemur um 320 milljónum króna
n Samkaupsappið með yfir
40.000 notendur og þar með
orðið eitt stærsta vildarkerfi á
Íslandi
n Styrkir út í samfélagið námu
um 42 milljónum í fyrra
Umhverfismál ofarlega á baugi
Árið 2021 losaði Samkaup 27%
minna af kolefni en árið áður, þrátt
fyrir að verslunum hefði fjölgað.
Þá dróst eldsneytisnotkun vegna
aksturs saman um 8,36%. „Við
gerðum mikið af smærri breyt-
ingum sem þó hafa allar gífurleg
samlegðaráhrif, svo sem að taka
upp rafrænar hillumerkingar í
stað límmiða, hófum notkun á
rafrænum kvittunum í Samkaupa-
appinu og settum upp fyrstu
hraðhleðslustöðvarnar við versl-
anir. Við opnuðum aðra græna
Nettó-verslun þar sem öll tæki
og starfsemi verslunarinnar eru
keyrð áfram með grænu skrefin
að leiðarljósi og verður áfram-
hald á umbreytingum verslana úr
hefðbundnum í grænar á þessu
ári. Loks innleiddum við svo
umhverfisstjórnunarhugbúnað frá
Klöppum, sem gerir okkur kleift
að mæla og fylgjast raunverulega
með kolefnisspori fyrirtækisins,
auk ýmissa annarra aðgerða
með það fyrir augum að draga úr
neikvæðum umhverfisáhrifum,
bæði beinum og afleiddum,“ segir
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
„Umhverfisáhersla Samkaupa
og samfélagsleg ábyrgð endur-
speglast ekki síður í aðgerðum á
innkaupasviði, sem kappkostar að
bjóða neytendum upp á umhverf-
isvænan kost og sjálf bær vöru-
merki eins og Änglamark, þar sem
gæðahráefni og lífræn ræktun
mætast. Þá skiptir líka máli að
við höfum á undanförnum árum
Rík áhersla á samfélagslega ábyrgð
Framkvæmdastjórn Samkaupa er skipuð: Gunni Líf Gunnarsdóttur, Ómari
Valdimarssyni, Gunnari Agli Sigurðssyni, Stefáni Guðjónssyni og Heiði Björk
Friðbjörnsdóttur. MYND/AÐSEND
Erla, aðstoðar-
verslunarstjóri
Nettó Kross-
móa, fyrstu
grænu verslunar
Samkaupa.
Stjórnendahóp-
ur Samkaupa á
stjórnendadegi
haustið 2021.
MYNDIR/AÐSENDAR
unnið markvisst að því að auka
sölu á íslenskum afurðum. Fjöl-
margar aðgerðir gera að verkum
að nú getum við boðið upp á æ
f leiri íslenskar afurðir allt árið
um kring. Með þessari fram-
þróun náum við að lágmarka
innflutning á vörutegundum sem
framleiddar eru hérlendis, enda
hefur það sýnt sig að neytendur
kjósa íslenskt, sé þess kostur,“
bendir Stefán Ragnar Guðjónsson
á, en hann er framkvæmdastjóri
innkaupasviðs.
Samkaup hvetja til nýsköpunar
og stuðla að nýsköpun á öllum
sviðum, ekki aðeins í tengslum
við tækninýjungar heldur einnig
vinnuferli, grænar lausnir, minni
sóun, menntun starfsfólks, og svo
framvegis. „Nú í maí, í tengslum
við Nýsköpunarviku Íslands,
fara Samkaup einnig af stað með
nýsköpunarmánuð fyrir starfs-
fólk og viðskiptavini, sem verður
spennandi verkefni að vinna
áfram. Þá er áframhaldandi þróun
á stafrænni tækni og Samkaupa-
appinu, ásamt sjálfvirknivæðingu
í þjónustu þar sem Samkaup hafa
sérstöðu í að vera tæknilega fremst
í verslunarháttum. Áherslur í sam-
félagslegri ábyrgð og samvinna
með starfsfólkinu okkar heldur
áfram árið 2022 og því ekki hægt
annað en að horfa björtum augum
á framtíðina.“ n
Árs- og samfélagsskýrslu Sam-
kaupa má nálgast á heimasíðu
félagsins: samkaup.is
kynningarblað 11FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR