Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 25

Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 25
Samkaup reka yfir 60 verslanir um allt land undir merkjum Nettó, Kjörbúðar- innar, Krambúðarinnar og Iceland. Hjá fyrirtækinu starfa um 1.400 manns og er starfsmannahópurinn því stór en samheldinn – þvert á vörumerki og óháð stað- setningu. Mikil áhersla er lögð á að starfs- fólki líði vel og er það hvatt til að nýta sér þær mörgu leiðir sem Samkaup bjóða upp á til vellíð- unar og framgangs, bæði í starfi og persónulega. Þar má helst nefna víðtæka velferðarþjónustu og öflugar námsleiðir sem standa öllu starfsfólki til boða. Eftirsóknarvert að vinna hjá Samkaupum „Við viljum að eftirsóknarvert sé að starfa hjá Samkaupum og því tekur starfsfólkið okkar þátt í að þróa og bæta starfsumhverfi sitt,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- sviðs. „Samskipti og samtal innan hópsins eru starfsmönnum Sam- kaupa mikilvæg, en vegna Covid hefur slíkt verið í lágmarki síðustu tvö ár. Haustið 2021 tókst okkur til að mynda að halda lykilfundi með starfsfólki Samkaupa á tíu mismunandi stöðum á landinu þar sem stjórnendur hittu starfsmenn verslana og áttu með þeim nota- lega kvöldstund og gott spjall um framtíðina, áskoranirnar og tæki- færin fram undan,“ segir Gunnur. „Meginmarkmið Samkaupa er að vera eftirsóknarverður vinnu- staður, þar sem áhersla er lögð á jákvæða og heilbrigða menningu, jafnrétti og sterka liðsheild, auk þess sem við höfum lagt okkur fram um að hvetja starfsfólk til aukinnar menntunar og við viljum virkja fólk til að bæta við sig þekk- ingu. Við höfum mótað öfluga menntastefnu sem mætir starfs- fólki hvar sem það er, hvort sem er vettvangur símenntunar, eða í tengslum við hið formlega mennta- kerfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að mennta sig samhliða vinnu, með stuðningi Samkaupa.“ Eitt stærsta vildarkerfi á Íslandi í dag Um mitt ár 2021 var Samkaupa- appinu ýtt úr vör og óhætt er að segja að það hafi slegið í gegn. Í árslok 2021 voru notendur orðnir um 40.000 og 20% af sölu verslana fóru í gegnum appið. Þar með er appið orðið að einu stærsta vildar- kerfi á Íslandi í dag, sem býður við- skiptavinum upp á afslátt í formi inneignar, sem hann getur síðan nýtt í næstu verslunarferð. „Við höfum verið öflug í að til- einka okkur tæknina og viljað vera leiðandi þegar kemur að nýstárleg- um leiðum til að mæta viðskipta- vinum okkar. Netverslunin sem fór í loftið 2017 hefur heldur betur vaxið og hvert metið slegið á fætur öðru í nýtingu hennar í fyrra. Vissu- lega var um að ræða heims faraldur með tilheyrandi samkomutak- mörkunum, en við finnum fyrir því að neytendahegðunin hefur breyst til langframa og hlökkum til að stíga næstu skref í þessari vegferð, enda mikil gróska í nýsköpun og nýtingu á tækninni sem verður spennandi að bjóða upp á fyrir við- skiptavini árið 2022,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmda- stjóri verslunarsviðs. Samfélagsleg uppskera Samkaup hafa nú gefið út sam- félagsskýrslu fyrir árið 2021 og er það í annað skipti sem slík skýrsla kemur frá félaginu, þrátt fyrir að hafa um árabil lagt ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð í allri sinni starfsemi. Vægi samfélagslegrar ábyrgðar vex sífellt og krafan um að hún sé í hávegum höfð á öllum stigum reksturs, stefnumótunar og í daglegum ákvörðunum verður háværari sömuleiðis. Stjórnendahópur Samkaupa hefur lagt mikla áherslu á að sam- félagsleg ábyrgð sé unnin út frá kerfisbundinni nálgun og raun- verulega sýnileg á borði en ekki aðeins í orði. Dæmi um þetta er að árið 2021 uppskar Samkaup: n Jafnvægisvog FKA, þar sem jöfnu kynjahlutfalli í stjórn- endalagi félagsins er náð n Samstarf við Samtökin ’78, Þroskahjálp og Mirru, rann- sókna- og fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk sett á fót n Hvatningarverðlaun jafnréttis- mála, bæði á sviði fjölmenn- ingar og atvinnumála fólks með skerta starfsgetu n Samkaup losuðu 27% minna af kolefni en árið á undan n Eldsneytisnotkun dróst saman um 8,36% milli ára n Fyrstu hraðhleðslustöðvunum komið upp við verslanir n Afslættir í gegnum átakið „Minni sóun – allt nýtt“ náðu hámarki í fyrra, eða því sem nemur um 320 milljónum króna n Samkaupsappið með yfir 40.000 notendur og þar með orðið eitt stærsta vildarkerfi á Íslandi n Styrkir út í samfélagið námu um 42 milljónum í fyrra Umhverfismál ofarlega á baugi Árið 2021 losaði Samkaup 27% minna af kolefni en árið áður, þrátt fyrir að verslunum hefði fjölgað. Þá dróst eldsneytisnotkun vegna aksturs saman um 8,36%. „Við gerðum mikið af smærri breyt- ingum sem þó hafa allar gífurleg samlegðaráhrif, svo sem að taka upp rafrænar hillumerkingar í stað límmiða, hófum notkun á rafrænum kvittunum í Samkaupa- appinu og settum upp fyrstu hraðhleðslustöðvarnar við versl- anir. Við opnuðum aðra græna Nettó-verslun þar sem öll tæki og starfsemi verslunarinnar eru keyrð áfram með grænu skrefin að leiðarljósi og verður áfram- hald á umbreytingum verslana úr hefðbundnum í grænar á þessu ári. Loks innleiddum við svo umhverfisstjórnunarhugbúnað frá Klöppum, sem gerir okkur kleift að mæla og fylgjast raunverulega með kolefnisspori fyrirtækisins, auk ýmissa annarra aðgerða með það fyrir augum að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, bæði beinum og afleiddum,“ segir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs. „Umhverfisáhersla Samkaupa og samfélagsleg ábyrgð endur- speglast ekki síður í aðgerðum á innkaupasviði, sem kappkostar að bjóða neytendum upp á umhverf- isvænan kost og sjálf bær vöru- merki eins og Änglamark, þar sem gæðahráefni og lífræn ræktun mætast. Þá skiptir líka máli að við höfum á undanförnum árum Rík áhersla á samfélagslega ábyrgð Framkvæmdastjórn Samkaupa er skipuð: Gunni Líf Gunnarsdóttur, Ómari Valdimarssyni, Gunnari Agli Sigurðssyni, Stefáni Guðjónssyni og Heiði Björk Friðbjörnsdóttur. MYND/AÐSEND Erla, aðstoðar- verslunarstjóri Nettó Kross- móa, fyrstu grænu verslunar Samkaupa. Stjórnendahóp- ur Samkaupa á stjórnendadegi haustið 2021. MYNDIR/AÐSENDAR unnið markvisst að því að auka sölu á íslenskum afurðum. Fjöl- margar aðgerðir gera að verkum að nú getum við boðið upp á æ f leiri íslenskar afurðir allt árið um kring. Með þessari fram- þróun náum við að lágmarka innflutning á vörutegundum sem framleiddar eru hérlendis, enda hefur það sýnt sig að neytendur kjósa íslenskt, sé þess kostur,“ bendir Stefán Ragnar Guðjónsson á, en hann er framkvæmdastjóri innkaupasviðs. Samkaup hvetja til nýsköpunar og stuðla að nýsköpun á öllum sviðum, ekki aðeins í tengslum við tækninýjungar heldur einnig vinnuferli, grænar lausnir, minni sóun, menntun starfsfólks, og svo framvegis. „Nú í maí, í tengslum við Nýsköpunarviku Íslands, fara Samkaup einnig af stað með nýsköpunarmánuð fyrir starfs- fólk og viðskiptavini, sem verður spennandi verkefni að vinna áfram. Þá er áframhaldandi þróun á stafrænni tækni og Samkaupa- appinu, ásamt sjálfvirknivæðingu í þjónustu þar sem Samkaup hafa sérstöðu í að vera tæknilega fremst í verslunarháttum. Áherslur í sam- félagslegri ábyrgð og samvinna með starfsfólkinu okkar heldur áfram árið 2022 og því ekki hægt annað en að horfa björtum augum á framtíðina.“ n Árs- og samfélagsskýrslu Sam- kaupa má nálgast á heimasíðu félagsins: samkaup.is kynningarblað 11FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.