Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 62
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
PIZZUR
ALLA
L Í K A
KALLA
KONUR
&
Íslenskir matreiðslu- og
framreiðslumenn keppa á
norrænu matreiðslumóti
eftir helgi. Að sögn forseta
Klúbbs matreiðslumeistara er
um að ræða framúrskarandi
keppnisfólk í greininni.
ninarichter@frettabladid.is
Á sunnudaginn fara matreiðslu-
mennirnir Sindri Guðbrandur Sig-
urðsson, Gabríel Kristinn Bjarna-
son, Sveinn Steinsson og Aþena
Þöll, ásamt framreiðslumanninum
Steinari Bjarnasyni, í keppnisferð til
Danmerkur.
„Sérstaða íslenskra matreiðslu-
manna er dugnaður og útsjónar-
semi. Svo eru þeir ótrúlega sterkir
svona bragðlega,“ segir Þórir
Erlingsson, forseti Klúbbs íslenskra
matreiðslumeistara.
„Við erum svo heppin að við
eigum gríðarlega mikið af f lottum
matreiðslumönnum sem eru að
leggja þvílíkan tíma í það að æfa
sig undir svona mót sem þeir eru
að fara á núna,“ segir Þórir. Hann
leggur þó áherslu á að hér sé á ferð-
inni fólk sem er ekki atvinnumenn
í að keppa, heldur sé það áhugamál
og þau séu að vinna inni í eldhúsum
landsins alla daga, og það sé þeirra
vinna, og því sé álagið mikið og
eljan sömuleiðis.
„Það er unaður að fylgjast með
þessu unga fólki og hversu áræðin
þau eru. Það er ekkert verið að velta
fyrir sér hvað sé í gangi heldur eru
þau að æfa eins og landsliðsmenn í
íþróttum,“ segir hann.
Tónninn gefinn árið 1977
Aðspurður hvernig standi á því og
hvernig hefðin fyrir keppnisferðum
íslenskra matreiðslumanna hefur
skapast svarar Þórir: „Þetta hefur
alltaf verið svona. Þegar þessir
menn fóru út að keppa þarna 1977,
þá gáfu þeir tóninn. Menn hafa bara
haldið áfram síðan,“ segir hann.
„Sem betur fer höfum við verið
heppin með menntun og kennslu,
og þetta kerfi sem við erum með
á Íslandi, að matreiðslunemar séu
á samningi á veitingastöðum og á
hótelum.“
Þórir útskýrir að þannig séu mat-
reiðslunemar að vinna með fremsta
fagfólki í faginu á hverjum tíma.
„Það er lykillinn að þessu,“ segir
hann og bætir við að þrátt fyrir að
Íslendingar séu ekki fjölmenn þjóð
mæti íslenskir matreiðslumenn
starfssystkinum sínum á hinum
Norðurlöndunum á jafnréttis-
grundvelli.
Kallar eftir konum í kokkinn
En sé málinu vikið að jafnrétti,
hvernig er kynjahlutfallið í fageld-
húsum á Íslandi?
„Við skulum segja það eins og
það er. Stelpur, ef þið hafið áhuga
á matreiðslu, komið inn. Okkur
vantar fleiri konur,“ segir Þórir. „Ég
veit ekki hvort það sé sögulegt, að
það sé ekki hefð fyrir því að konur
læri kokkinn. En allar stéttir eru
betri eftir því sem kynjahlutfallið
er jafnara.“
Þórir bætir við að stærsta vanda-
málið í matreiðslunni í dag sé skort-
ur á faglærðu starfsfólki. „Okkur
vantar fagmenn í greinina. Sama
hvar það er,“ segir hann.
Aðspurður hvernig honum lítist
á komandi ár í veitingageiranum,
svarar Þórir: „Það eru nýir veitinga-
staðir í pípunum sem verða opnaðir
á næstu vikum og mánuðum. Það
lítur vel út fyrir veitingastaði,“ segir
hann. „Mér líst mjög vel á árið.“ n
Íslenskir kokkar keppa á
norrænu matreiðslumóti
Hluti keppenda sem stefna til Danmerkur eftir helgina til að keppa á matreiðslu- og framreiðslumóti. MYND/AÐSEND
Þessi var á meðal rétta sem íslensku
keppendurnir reiddu fram á æfingu.
TÖLVULEIKIR
Grand Theft Auto V:
Expanded & Enhanced
Edition
Útgefandi: Rockstar Games
Framleiðandi: Rockstar North
Spilaður á: PlayStation 5. Einnig til
fyrir Xbox Series X og S.
Oddur Freyr Þorsteinsson
Grand Theft Auto V kom fyrst út
árið 2013 og hefur nú komið út fyrir
þrjár kynslóðir leikjatölva. Leikur-
inn var byltingarkenndur á sínum
tíma og býður upp á stóran og flott-
an opinn heim þar sem leikmenn
geta farið einir í gegnum skemmti-
lega glæpasögu, þar sem þeir stjórna
þremur ólíkum persónum, eða spil-
að með öðrum á netinu, sem er mjög
vinsælt, en þar búa leikmenn sér til
persónu sem þeir leiða á toppinn í
glæpaheiminum.
Nú er hægt að spila leikinn í 60
römmum á sekúndu á leikjatölvum
og njóta nýrrar lýsingartækni sem
gefur leiknum glæsilegra yfirbragð,
ásamt því að útlit leiksins hefur
almennt verið fínpússað og hann er
enga stund að fara í gang. Tæknin í
PlayStation 5 stýripinnanum er líka
nýtt vel, sem er skemmtileg viðbót.
Svo er einnig búið að gera breyt-
ingar á netspilunarhlutanum sem
auðveldar nýjum leikmönnum að
byrja. Maður finnur samt mjög
vel að þessi níu ára gamli leikur sé
barn síns tíma. n
NIÐURSTAÐA: Þessi útgáfa af GTA
V fyrir nýja kynslóð leikjatölva
er vel gerð, en bætir litlu við. Út-
gáfan hentar þeim sem hafa aldrei
spilað GTA V, þeim sem langar að
rifja upp kynnin eftir langa pásu
og þeim sem spila GTA V á netinu.
Ég held þessi síðastnefndi hópur
hljóti að vera sérstaklega ánægður
með að geta nú notið leiksins í
meiri gæðum.
Ekki stórt stökk heldur lítið hopp
Grand Theft Auto V var að koma út í
þriðja sinn. MYND/PLAYSTATION.COM
22 Lífið 25. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ