Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 48
Húsasmiðjan hefur unnið að
því að minnka umhverfis
áhrif af rekstri sínum og
vörunum sem eru seldar,
á undanförnum árum. Það
hefur náðst mjög mikill
árangur við að minnka
kolefnisfótspor, bjóða upp á
umhverfsivænni valkosti í
verslunum og rafvæða við
skipti til að minnka pappírs
notkun en það stendur til að
gera mun meira.
„Við vinnum eftir nokkrum
föstum stefnum sem heyra
undir sjálfbærni. Við vinnum
eftir formlegri umhverfisstefnu,
formlegri mannauðsstefnu, erum
með jafnlaunavottun og leggjum
áherslu á jafnrétti kynjanna, ásamt
því að hafa ákveðin leiðarljós og
kjarnagildi. En við erum ekki enn
komin með formlega sjálfbærni-
stefnu,“ segir Jón Þórir Þorvalds-
son, umhverfisverkfræðingur og
verkefnastjóri umhverfis- og sam-
félagsmála á fagsölusviði Húsa-
smiðjunnar. „Hún er samt í vinnslu
og eins og sést, komin að hluta, svo
við erum nú þegar að vinna eftir
henni að nokkru leyti.
Ég tók við þessari nýju stöðu
1. september og þurfti að setja
mig inn í þetta starf og átta mig
á hvar við værum stödd, hvernig
fyrirtækið og boðleiðir innan
þess virka, hvernig sé best að
nýta stöðuna, hvar ég nýtist best í
fyrirtækinu og hver séu helstu for-
gangsatriðin,“ segir Jón. „Við erum
svo líka að vinna að því að uppfæra
þær stefnur sem við erum að vinna
eftir.“
Góður árangur í umhverfismálum
„Húsasmiðjan býr svo vel að við
höfum sérstaklega góða aðstöðu til
að taka við hráefnum erlendis frá,
en skipin sem flytja þau leggja að
fyrir utan vörulagerinn okkar, svo
það þarf ekki að hlaða efninu á bíla
og flytja það frá skipum á vörulag-
er og dreifa svo þaðan, heldur fer
þetta bara beint inn,“ útskýrir Jón.
„Þó að þetta virki kannski ekki
eins og mjög stórt atriði minnkar
þetta kolefnisfótsporið gríðarlega
mikið á hverju ári.
Við höfum líka mælt kol-
efnisspor fyrirtækisins inn á við í
nokkur ár í samstarfi við Klappir
og stefnum á að gefa út eigin sjálf-
bærniskýrslu. Kerfi Klappa fylgist
með kolefnislosun, rafmagnsnotk-
un, vatnsnotkun, magni úrgangs
og hlutfalli f lokkaðs úrgangs,
jarðefnaeldsneytisnotkun ásamt
fleiru,“ segir Jón. „Við höfum
lækkað mælda heildarlosun koltví-
sýringsígilda frá starfseminni um
16% frá árinu 2019 með ýmsum
aðgerðum. Við notum til dæmis
næstum eingöngu rafmagns-
lyftara í dag og erum sífellt að auka
hlutfall f lokkaðs sorps sem fer frá
okkur. Við fórum líka að vinna í að
skipta yfir í LED-ljós, sem kostaði
sitt upphaflega en er fljótt að borga
sig í rekstrarkostnaði því það
eru miklu skilvirkari perur. Við
fórum líka að slökkva á tækjum og
kerfum á nóttunni sem var óþarfi
að hafa í gangi, sem munar miklu.“
Enn þá hægt að gera meira
„Við höfum staðið okkur ágætlega
í því að mæla kolefnisfótsporið
en til að fá betri heildarmynd af
kolefnislosun þurfum við að bæta
við meiru af því sem fellur undir
það sem er kallað umfang þrjú, en
það er sem sagt kolefnisfótspor
vegna f lutninga á birgðum til og
frá fyrirtækinu, ferða starfsmanna
til og frá vinnu og annars sem
hefur ekki beint með reksturinn
að gera,“ segir Jón. „Við erum að
skoða hvað sé raunhæft að byrja
að mæla og taka með í reikning-
inn þannig að við getum sýnt
áreiðanlegar tölur. Við bættum til
dæmis f lugi starfsmanna inn fyrir
árið 2021, það var ekki stór hluti
af heildarlosun en þetta er hluti
af því að sýna ábyrgð og fylgjast
betur með því sem fellur í þennan
f lokk. Við stefnum á að bæta f leiri
þáttum við á næstunni.
Ég verð líka með föst námskeið
varðandi umhverfismál fyrir
starfsmenn þar sem áherslan
verður á að vera hvetjandi og tala
um það sem við getum gert til að
bæta okkur. Svo verða líka nám-
skeið um umhverfisvottanir á því
sem við köllum „grænar vörur“
og um umhverfismál heilt yfir og
hvað sé hægt að gera til að bæta
sorpmálin, en markmiðið okkar
er að að minnsta kosti 90% af
úrgangi frá okkur verði f lokkaður
fyrir 2025,“ segir Jón. „Ég tel það
raunhæft markmið, en til að ná
því þurfum við að setja ákveðna
verkferla, vera hvetjandi og bjóða
upp á nýja möguleika. Það skiptir
miklu máli að fræða starfsmenn
til að auðvelda þeim að gera þessa
breytingu.“
Grænir valkostir og
aukin rafræn þjónusta
Húsasmiðjan vill bjóða upp á
græna og umhverfisvæna valkosti
í öllum vöruflokkum.
„Við höfum tekið saman allar
vörur okkar sem uppfylla ákveðna
umhverfisstaðla eða hafa vottun
frá þriðja aðila, eins og Svans-
vottun, Bláa engilinn og f leira, og
merkt þær sem „Grænar vörur“ á
vefsíðunni okkar, í Húsasmiðju-
appinu og í verslunum,“ segir
Jón. „Það fylgja líka nákvæmar
upplýsingar um hvernig vörurnar
uppfylla þessa staðla og hvaða
vottun hver vara hefur. Þetta er til
að einfalda viðskiptavinum okkar
valið og kynna fyrir þeim valkosti
sem eru betri fyrir umhverfið.
Til þess að geta veitt við-
skiptavinum okkar grænni og
umhverfisvænni valkosti í öllum
vöruflokkum hef ég m.a. haft
samband við þá framleiðendur
og birgja sem við verslum við um
allan heim og kynnt þeim mögu-
leika á því að fá vörur sínar Svans-
vottaðar, leyfilegar til notkunar
í Svansvottuðum verkefnum eða
við uppfyllingu annarra staðla.
Á undanförnum árum hefur
Húsasmiðjan líka aukið verulega
við tölvuvæðingu starfseminnar,
bæði þegar kemur að rekstri
fyrirtækisins og í samskiptum
við viðskiptavini. Við höfum
þannig komið öllum reikningum
á stafrænt form til að spara
pappír og sett aukinn kraft í vef-
verslunina okkar og Húsasmið-
juappið,“ segir Jón. „Í appinu er
nú hægt að gera allt sem er hægt
að gera hjá sölufulltrúa og fá öll
gögn send rafrænt, svo það getur
sparað fólki pappír, sporin og
alls kyns umstang. Við hvetjum
viðskiptavini til að ná í Húsasmið-
juappið og nýta það, sem og sjálfs-
afgreiðsluna í verslunum okkar.“
Mörg verkefni fram undan
„Á næstu árum ætlum við svo að
bjóða upp á hleðslustöðvar fyrir
rafmagnsbíla við allar verslanir
okkar á landinu, en þær eru þegar
komnar upp í Kjalarvogi og á
Akureyri. Þær eru bæði fyrir við-
skiptavini og til að hvetja starfs-
fólk til að velja þennan umhverfis-
vænni fararskjóta,“ segir Jón.
„Við ætlum líka að fara að bjóða
upp á fræðslu fyrir bæði starfs-
menn og viðskiptavini varðandi
umhverfisvottanir, en hún væri
farin í gang ef ekki hefði verið
fyrir faraldurinn.
Svo er von á formlegu sjálf-
bærnistefnunni okkar og við
sjáum fram á að einblína meira á
umhverfismál á næstunni, enda er
áhuginn á þeim alltaf að aukast,
bæði innan fyrirtækisins og hjá
viðskiptavinum og fyrir vikið fá
þau og hringrásarhagkerfið ósjálf-
rátt meiri athygli,“ segir Jón. „Við
viljum líka fara að skoða hverju er
auðvelt að breyta með smávegis
öðruvísi hugsun og svo fara að
eltast við það sem verður snúnara
og tekur lengri tíma.“ n
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðu Húsasmiðjunnar, husa.is.
Þar má einnig nálgast Húsasmiðju
appið.
Síaukin áhersla á umhverfisvernd og ábyrgan rekstur
Jón Þórir Þorvaldsson er umhverfisverkfræðingur og verkefnastjóri umhverfis og samfélagsmála á fagsölusviði Húsasmiðjunnar. MYND/M.FLÓVENT
Við höfum lækkað
mælda heildar
losun koltvísýrings
ígilda frá starfseminni
um 16% frá árinu 2019
með ýmsum aðgerðum.
Jón Þórir Þorvaldsson
34 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR