Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 46
Andrea Kristinsdóttir er
33 ára skipulagsfræðingur
hjá VSÓ ráðgjöf. Hún segir
tækifærin firnamörg, til
að mynda þegar kemur að
því að stuðla að sjálfbærni í
borgaskipulagi á Íslandi.
jme@frettabladid.is
Margt má gera til að stuðla að
sjálfbærni borga og fyrsta skrefið
felst í góðu skipulagi. Andrea lærði
landfræði við Háskóla Íslands og
útskrifaðist úr meistaranámi í
skipulagsfræði í Aalborg Universi-
tet 2015. „Ég hef einnig réttindi
til að votta samkvæmt BREEAM
communities kerfinu. BREEAM
er alþjóðlegt umhverfisvottunar-
kerfi fyrir skipulag og byggingar
sem er ætlað að auka sjálfbærni
uppbyggingar. Mitt starf snýr að
gerð skipulagsáætlana, aðalskipu-
lagi, deiliskipulagi og breytingum
á þeim, umhverfismati áætlana
og fleiru. Innan þessara verkefna
koma síðan upp fjölbreytt við-
fangsefni sem snúa að samgöngu-
málum, mati á flóðahættu, staðar-
valsgreiningu, og ýmiss konar
umhverfisþáttum,“ segir Andrea.
Sjálfbærni gegnumgangandi
„Það er ekki svo langt síðan fólk
byrjaði almennt að pæla í sjálf-
bærni byggðar og hingað til hafa
praktísk sjónarmið aðallega verið
uppi á borðinu. Í dag er krafan um
umhverfismál og sjálfbærni orðin
háværari. Krafan um umfjöllun
um umhverfisáhrif sem og um
gagnsæi og vandað samráð er það
einnig,“ segir Andrea. „Hugmynda-
fræði sjálfbærni á að vera gegnum-
gangandi í öllum verkefnum. Það er
jákvætt að í flestum tilfellum í dag
eru verkkaupar jákvæðir gagnvart
lausnum sem draga úr umhverfis-
áhrifum og auka sjálfbærni.“
Skipulag öflugasta verkfærið
„Skipulagsgerð er eitt af öflugustu
tækjum sem sveitarfélög hafa í
verkfærakistunni til að hafa jákvæð
áhrif á sjálfbærni byggðar og
loftslagsmál almennt. Skipulagið
nær þá yfir fyrirkomulag byggðar,
samgöngur, gæði umhverfisins
og aðgengi að þjónustu sem við
nýtum daglega. Til þess að vinna
í átt að sjálfbærni er annars vegar
mikilvægt að gera áætlanir og setja
skilmála sem draga úr neikvæðum
umhverfisáhrifum. Hins vegar þarf
að aðlaga byggð að loftslagsbreyt-
ingum. Skipulag skapar umgjörð
um daglegt líf okkar, hvaða tæki-
færi við höfum til að uppfylla þarfir
okkar og hefur mikið að segja um
áhrif okkar á umhverfið.
Mitt starf hjá VSÓ felst meðal
annars í ráðgjöf við ákvarðana-
töku um staðsetningu starfsemi
með tilliti til aðgengis eða vegna
áhrifa starfsemi á nágrenni. Það
er til dæmis mikilvægt að fjölsótt
starfsemi sé ekki staðsett þannig
að hún sé óaðgengileg, heldur frek-
ar á svæðum þar sem samgöngur
eru góðar og tíðar. Það dregur úr
ferðaþörf og takmarkar notkun á
einkabílnum, sem er jákvætt út frá
umhverfissjónarmiðum.
Hvað varðar aðlögun að lofts-
lagsbreytingum er okkar hlut-
verk til dæmis að setja stefnu og
skilmála um hvernig við byggjum
með tilliti til f lóðahættu, hættu
á skriðuföllum og annars konar
náttúruvá. Á lágsvæðum þarf til
dæmis að gera ráðstafanir til að
tryggja öryggi fólks og huga að því
að ný mannvirki séu staðsett eða
hönnuð þannig að þau skemmist
ekki í f lóðum. Einnig þarf að skoða
hvernig er æskilegt að nýta land
til að draga úr losun eða binda
kolefni. Það er mikilvægt að fá rétt-
ar og áreiðanlegar upplýsingar því
mat losunar fer eftir tegund lands
og aðstæðum á hverjum stað.“
Sjálfbær Reykjavík
Andrea segir að það sem stuðli helst
að sjálfbærni borgar sé samtvinnun
ferðamáta og samspil áfangastaða
og samgangna. „Í Kaupmannahöfn
er þetta leyst með sterkri hjóla-
menningu og öflugu kerfi almenn-
ingssamgangna. Mér þykir Reykja-
vík vera að standa sig vel í að auka
sjálfbærni. Borgin er á réttri leið
en á auðvitað langt í land til þess
að geta talist sjálfbær. Þá þykir mér
áhersla borgarinnar á fjölbreytta
samgöngumáta, hágæða almenn-
ingssamgöngur og hjólreiðaáætlun,
vera þættir sem eru líklegir til að
auka sjálfbærni borgarinnar. Einn-
ig er áhersla borgarinnar á þétta
og blandaða byggð innan vaxtar-
marka mikilvægur þáttur í að auka
sjálfbærni.
Hugmyndafræðin um fimmtán
mínútna hverfi vegur þar einnig
þungt, því það stuðlar að sjálf-
bærni að fólk geti sinnt daglegum
erindum sínum gangandi eða
hjólandi í nágrenni við heimili sitt.
Sjálf bý ég í Vesturbæ Reykjavíkur,
sem að mínu mati uppfyllir margar
af þeim kríteríum sem eru á bak
við sjálfbærnihugsjónina. Þetta er
fimmtán mínútna hverfi, aðgengi
að samgöngum er almennt gott,
vegalengdir eru stuttar og auðvelt
að hjóla. Það er hægt að sinna dag-
legum erindum að stórum hluta án
einkabílsins.
Einnig þykir mér áhugaverð og
spennandi nálgun í nýju aðalskipu-
lagi Reykjavíkurborgar þar sem
kostnaður við rekstur einkabíls er
skoðaður í samhengi við húsnæðis-
kostnað, en húsnæði og samgöngur
eru auðvitað tvær hliðar á sama
peningnum. Það hefur vantað upp
á að það sé tekið inn í reikninginn
hversu mikill tími og peningur fer
í að keyra til dæmis úr úthverfi á
þjónustusvæði. Þetta finnst mér
vera flott nálgun.“ n
Með skipulagi má byggja sjálfbærar borgir
Andrea segir
það mikilvægt
að vinna í átt
að sjálfbærni á
öllum sviðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
BravoEarth vefkerfið býður
fyrirtækjum, stofnunum og
sveitarfélögum upp á nýja
og ferska nálgun við innleið-
ingu verkferla sem stuðla að
sjálfbærum rekstri. Vefkerfið
byggir á þeirri hugmynda-
fræði að með mörgum litlum
skrefum sé hægt að gera stór-
kostlega hluti.
Eftir að hafa staðið að uppbygg-
ingu Mentors, sem er fyrirtæki
sem margir þekkja, ákvað Vilborg
Einarsdóttir fyrir rúmum þremur
árum að söðla um og færa sig yfir
í umhverfisgeirann. „Ég stofnaði
fyrirtækið BravoEarth sem hefur
það að markmiði að auðvelda
fyrirtækjum að koma umhverfis-
og sjálfbærnistefnu í framkvæmd.
Fram undan á markaðnum
eru miklar breytingar þar sem
fyrirtæki eru í auknum mæli að
endurskoða sinn rekstur og stefnu
út frá sjálfbærni. Það er því mjög
spennandi að koma fram með nýja
lausn sem auðveldar stjórnendum
þetta mikilvæga verkefni.
Með mér í teymi eru Mats
Rosenkvist, frumkvöðull í Svíþjóð,
og Kjartan Sigurðsson, sem er með
doktorsgráðu á sviði samfélags-
legrar ábyrgðar. Forritun og
rekstur BravoEarth kerfisins er hjá
fyrirtækinu Derventio solutions
í Englandi. Okkar markmið er að
gera sjálfbærni og loftslagsmálin
aðgengileg og einfalda ferlið við
þessi mikilvægu og vandasömu
verkferli. Framtíðarsýn BravoEarth
er að byggja upp alþjóðlegt fyrir-
tæki með lausn sem er leiðandi
á sínu sviði, notuð í þúsundum
fyrirtækja í Evrópu, sem vinna í
átt að sjálfbærni sér og jörðinni til
heilla,“ segir Vilborg.
Ný og fersk nálgun
BravoEarth kemur, að sögn Vil-
borgar, fram með nýja nálgun á
markaðnum. „Vefkerfið Bravo-
Earth er þegar í notkun hjá fyrstu
viðskiptavinunum með góðum
árangri. Fram undan eru spenn-
andi nýjungar sem henta litlum
og meðalstórum fyrirtækjum sem
stefna að sjálfbærni. Við leiðum
þau áfram skref fyrir skref við
mótun og innleiðingu sjálfbærni-
stefnu og undirbúning við að
birta UFS sjálfbærniskýrslu með
sérstakri áherslu á loftlagsstefnu
og greiningu á loftslagstengdri
áhættu og tækifærum.
Mæling á kolefnisspori fer fram
hjá Klöppum grænum lausnum
eða með öðrum aðferðum, eins og
með hjálp Loftslagsmælis Festu,
en við styðjum við aðra þætti
sjálfbærninnar, það er greiningar,
stefnur, markmið og aðgerðir. Við
bjóðum einnig upp á ítarlegar
leiðbeiningar sem eru aðgengi-
legar inni í vefkerfinu. BravoEarth
kerfið nýtist einnig mjög vel þegar
unnið er með sjálbærniráðgjöfum
eins og sérfræðingum hjá EY.“
Kostirnir felast í skrefunum
Miklir kostir fylgja því fyrir stofn-
anir og fyrirtæki að nýta Bravo-
Earth. „Tímasparnaður, tilbúin
ferli og leiðbeiningar á mannamáli
eru nokkrir af helstu kostunum.
Fyrirtæki vita oft oǵ tíðum ekki
hvað þau eiga að gera og stjórnend-
ur hafa ekki tíma til að sökkva sér
í málefnið. Það er mikill kostur að
hafa allt á einum stað í skipulögðu
kerfi. Það er mikið af upplýsingum
úti um allt á netinu en það tekur
tíma að safna þeim saman, greina
og finna rétta stíginn. Í BravoEarth
kerfinu er búið að leggja stíginn og
stjórnendur og þeir sem vinna að
sjálfbærnimálum geta fylgt leið-
beiningum skref fyrir skref, hvort
sem unnið er með heimsmark-
miðin, við innleiðingu á UFS sjálf-
bærnistefnu eða við innleiðingu
loftslagseftirlits.
Með öðrum orðum, þá finnur
notandi tilbúin matsform í Bravo-
Earth kerfinu fyrir greiningar eins
og mikilvægis-, ferla- og áhættu-
greiningar sem leggja grunn
að mótun sjálf bærnistefnu og
forgangsröðun. BravoEarth
leiðir notanda áfram við gerð
sjálf bærnistefnu, en alls eru níu
undirstefnur sem tengjast UFS
staðlinum, eins og loftslags-
stefna, mannréttindastefna og
birgjastefna. Til að koma stefnu í
framkvæmd þarf að setja mark-
mið. Þú getur brotið sjálf bærni-
markmið niður í aðgerðir, útdeilt
ábyrgð, skráð tíma og skilgreint
viðmið um árangur. Allt er sett
upp á skýran hátt og einfalt er að
fylgjast með framvindu og kalla
fram skýrslur.
Við höfum einnig verið að
kynna BravoEarth sem lausn fyrir
sveitarfélög til að halda utan um
loftslagsstefnu og innleiðingu á
heimsmarkmiðunum í samstarfi
við Evu Magnúsdóttur í Podium,
sem er mjög spennandi verkefni.
Kerfið gerir verkefnið skilvirkara
og sparar tíma varðandi utanum-
hald og skýrslugerð.“
Sjálfbærni er framtíðin
„Það er jákvætt að mörg fyrir-
tæki kjósa nú þegar að innleiða
sjálfbærni og stefna að kolefnis-
hlutleysi, enda er það mikilvægt,
bæði til að berjast gegn hlýnun
jarðar og til að tryggja rekstrar-
árangur. En fram undan eru ESB
reglugerðir sem skylda fyrirtæki
og stofnanir til að birta sjálfbærni-
skýrslur. Staðlar sem eru í þróun
byggja meðal annars á umhverfis-
og félagslegum þáttum og stjórnar-
háttum og mati á loftslags tengdri
áhættu og tækifærum. Í dag þurfa
aðeins stórfyrirtæki að skila
þessum skýrslum en þau þrýsta nú
þegar á sína birgja (lítil og meðal-
stór fyrirtæki) að birta sjálfbærni-
skýrslur að auki.
En það eru einnig mikil tækifæri
fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum að taka forystu í þessum
efnum og þar kemur BravoEarth
inn með skýra ferla og þekkingu.
Þess má geta að BravoEarth fékk
veglegan nýsköpunarstyrk hjá
Íslandsbanka til að útfæra og auð-
velda stjórnendum fyrirtækja og
stjórnum að halda utan um og meta
loftslagstengda áhættu og tækifæri
með hliðsjón af TCFD staðlinum.
Næsta skref hjá okkur er að gera
ítarlegar leiðbeiningar og matsform
sem auðveldar þessa vinnu.“ n
Nánari upplýsingar: bravo.earth/is
Tímasparnaður,
tilbúin ferli og
leiðbeiningar á
mannamáli
Vilborg segir að í BravoEarth sé búið að leggja stíginn fyrir stjórnendur. Þeir
sem vinna að sjálfbærnimálum geta fylgt leiðbeiningum skref fyrir skref við
innleiðingu á UFS sjálfbærnistefnu, Heimsmarkmiðunum eða loftslagseftirlits.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
32 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR