Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 17
Nýtt skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði BYKO í Breidd-
inni rís á næstu mánuðum.
Byggingin verður fimm
hæðir, byggð úr límtré og
CLT timbureiningum og
mun rísa undir merkjum
BREEAM, sem er eitt elsta
vistvottunarkerfi í heimi.
Með sjálfbærni að leiðarljósi mun
nýtt skrifstofu- og verslunarhús-
næði BYKO í Breiddinni rísa á
næstu mánuðum. Byggingin verð-
ur fimm hæðir, byggð úr límtré og
CLT timbureiningum og mun rísa
undir merkjum BREEAM sem er
eitt elsta vistvottunarkerfi í heimi,
að sögn Berglindar Óskar Ólafs-
dóttur, sérfræðings í sjálfbærni hjá
BYKO. „Að byggja vistvænt sam-
ræmist vel stefnu og framtíðarsýn
þegar kemur að sjálfbærnivegferð
BYKO. Áhersla á sjálfbærni í mann-
virkjagerð fer vaxandi og með því
að fara í gegnum vottunarferli
er verið að stuðla að heilbrigðari
byggingu þar sem notuð eru bygg-
ingarefni með lágt kolefnisspor
sem valda sem minnstum skaða á
bæði fólk og umhverfi.“
Berglind segir byggingariðnað-
inn vera ábyrgan fyrir um 40% af
allri losun gróðurhúsalofttegunda
á heimsvísu og því sé aukin áhersla
á sjálfbærni mannvirkja mjög
mikilvægt skref í baráttunni við
yfirvofandi loftslagsbreytingar.
Losunin sé tvíþætt, annars vegar
kolefnislosun sem er bundin í
mannvirkinu sjálfu á byggingar-
tíma og hins vegar losun vegna
reksturs mannvirkisins á líftíma
þess. „Með því að byggja vist-
væna byggingu er BYKO að draga
aukinn lærdóm sem skilar sér
áfram til viðskiptavina sem geta
sótt sér ráðgjöf og fagþekkingu
til BYKO um notkun vistvænna
byggingarefna fyrir slíkar bygg-
ingar. Þar með er BYKO hluti af
virðiskeðjunni og ber ábyrgð á
að geta boðið markaðnum upp á
byggingarefni sem eru notuð til að
stuðla að betri framtíð. BYKO hóf
innleiðingu á heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna árið 2019 og
er þetta hluti af því kjarnamark-
miði sem snýr að heilsu og vellíðan
starfsmanna og að skapa sem best
verkefnamiðað vinnuumhverfi
sem styður vel við eina af lykil-
áherslum BYKO, sem er þverfagleg
samvinna.“
Sjálfbærnistefna mikilvæg
Að sögn Berglindar er mikilvægt
að fyrirtæki setji sér sjálfbærni-
stefnu. Starfsemi BYKO tekur
mið af því og fyrirtækið leggi því
áherslu á umhverfislega, félagslega
og efnahagslega sjálfbærni. „Til að
allir séu að róa í sömu átt þá skiptir
miklu máli að fræða starfsfólk
um stefnu fyrirtækisins og halda
reglulega fræðslu um sjálfbærni.“
Um leið sé mikilvægt að starfs-
fólk fái að hafa rödd, því í krafti
mismunandi einstaklinga leynast
tækifærin til breytinga og úrbóta.
„Þetta krefst breyttrar hugsunar,
breyttrar hegðunar og tækifæris
til að hafa áhrif. Byggingar lifa í
um 100 ár og það er ábyrgð okkar
í BYKO að fræða markaðinn líka
um kosti vistvænni bygginga og
notkun vistvænna byggingarefna,
enda er það fjárfesting til fram-
tíðar. Það skapast heilnæmara
umhverfi, gæði bygginga verða
meiri, rekstrarkostnaður lækkar
þegar dregið er úr umhverfis-
áhrifum bygginganna, þær verða
afkastameiri, sjálfbærari, betri
fjárfestingarkostur og þetta styrkir
fjárhagslega arðsemi til lengri
tíma.“
Til að stuðla að umhverfislegri
sjálfbærni hefur BYKO sett sér
markmið um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda frá rekstri
með markvissum aðgerðum,
ásamt því að leggja áherslu á
bindingu kolefnis með skógrækt
í landi fyrirtækisins. „Frá árinu
2019 hefur kolefnissporið lækkað
um tæp 25% en lokaútreikningar
fyrir rekstrarárið 2021 mun birtast
í sjálfbærniskýrslu BYKO sem
verður gefin út í apríl nk. en þetta
er í þriðja skipti sem BYKO gefur út
slíka skýrslu.“
Til að stuðla að félagslegri sjálf-
bærni skal tryggja vellíðan fólks
og öruggt og heilbrigt umhverfi.
„Áhersla er lögð á vistvæn sjónar-
mið í okkar eigin byggingum sem
og okkar viðskiptavina og þar
með aukin lífsgæði þeirra sem þar
fara um. Mannréttindi eru ein af
grundvallarstoðum samfélagsins
og fylgir BYKO þeim mikilvægu
grunngildum er varða mannrétt-
indi í allri sinni starfsemi.“
Skiptir máli að hafa áhrif
Til að stuðla að efnahagslegri sjálf-
bærni er horft í að nýta fjármagn
með sem hagkvæmustum hætti
og að verklag innan BYKO ein-
kennist af góðu viðskiptasiðferði,
heilbrigðum viðskiptaháttum og
ábyrgð. „Stjórn BYKO hefur sett sér
stefnu varðandi góða stjórnarhætti
og eru næstu verkefni hjá okkur að
setja okkur formlega stefnu hvað
varðar siðareglur og kröfur um
sjálfbærni og/eða samfélagslega
ábyrgð birgja.“
Hún segir það skipta starfs-
fólk BYKO miklu máli að geta
haft áhrif á aðra, vera leiðandi og
vera fyrirmynd. „Við tökum þátt
í hinum ýmsu nýsköpunarverk-
efnum, styðjum við viðskiptavini
okkar á markaðnum í byggingu
vistvænna mannvirkja og tökum
einnig þátt á alþjóðavettvangi.
Á árinu tók BYKO þátt í pall-
borðsumræðum á vegum EDRA
Ghin, sem eru eins konar félaga-
samtök byggingavöruverslana á
Evrópugrundvelli, með það mark-
mið að miðla hvað fyrirtækin sem
tóku þátt eru að gera til að draga
úr loftslagsáhrifum. Með slíkri
þátttöku skapast lærdómur milli
landa sem hvert og eitt fyrirtæki
getur nýtt sér til framdráttar.“
Spennandi tímar
fram undan í sjálfbærni
Berglind segir sjálfbærni vera lang-
tímavegferð en ekki til skamms
tíma. „Hins vegar erum við alltaf í
kapphlaupi við að draga úr losun
en ef fyrirtæki hafa stefnu og
markmið um að gera betur árlega
þá er það framtíðar ávinningur.“
Hún segir spennandi tíma fyrir-
hugaða á árinu hjá BYKO. „Hring-
rásarhugsunin er sannarlega til
staðar en hægt er að gera mun
betur þegar kemur að nýtingu og
draga úr sóun. Við erum komin í
samstarf við Plastplan sem ætlar
að hjálpa okkur að endurnýta
það plast sem fellur til og búa til
nothæfar vörur úr þeim og svo er
áætlað að koma hringrásarhugs-
uninni framar með BYKO Leigu.
Leiga er mjög sjálfbær kostur í eðli
sínu, snýst um að auka aðgengi
fólks að vörum í stað þess að allir
þurfi að eiga allt. Einnig er betri
notkun hvers leigutækis á líftíma
þess vegna aukinnar nýtingar, en
einnig vegna góðs viðhalds.“
BYKO stundaði skógrækt á eigin
landi á árinum 1988-2008 og var sú
hefð endurvakin árið 2021 að hluta
til þegar Skógræktin tók að sér
gróðursetningu fyrir BYKO til að
auka bindingu framtíðarinnar. „Á
árinu verður þó gömul hefð endur-
vakin þar sem starfsfólk BYKO
og fjölskyldur þess munu taka
þátt í árlegri skógræktarferð með
gleðilegum gildum, fá að snerta á
náttúrunni og láta gott af sér leiða
til aukinnar kolefnisbindingar.
Að lokum ætlum við að fagna í
sumar með okkar viðskiptavinum
60 ára afmæli BYKO. Það verður
spennandi að fylgjast með hvernig
afmælishátíðin verður, en mark-
mið okkar er að heildarupplifun
viðskiptavina okkar sé jákvæð og
skemmtileg, með sjálfbærni að
leiðarljósi.“ n
Með því að byggja
vistvæna byggingu
er BYKO að draga aukinn
lærdóm sem skilar sér
áfram til viðskiptavina.
BYKO byggir BREEAM vottaðar höfuðstöðvar
„Að byggja vistvænt samræmist vel stefnu og framtíðarsýn þegar kemur að sjálfbærnivegferð BYKO,“ segir Berglind Ósk Ólafsdóttir, sérfræðingur í sjálf-
bærni hjá BYKO, en fyrirtækið er að byggja nýtt skrifstofu- og verslunarhúsnæði í Breiddinni á næstu mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýjar höfuðstöðvar BYKO munu rísa undir merkjum BREEAM, sem er eitt elsta vistvottunarkerfi í heimi.
kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR