Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 35
Við hjá dk vinnum
stöðugt að því að
bæta okkur og með
viljayfirlýsingunni um
að innleiða Heimsmark-
mið Sameinuðu
þjóðanna í stefnu okkar
og daglegan rekstur,
sýnum við samfélagslega
ábyrgð í verki.
dk hugbúnaður þróar og
selur langútbreiddasta við-
skiptakerfið á Íslandi. dk
hentar fyrir allar greinar
atvinnulífsins og býður upp
á alls kyns sérlausnir fyrir
félög, fyrirtæki og sveitar-
félög.
Boðið er upp á allar algengustu
kerfiseiningar eins og fjárhags-,
viðskiptamanna-, lánardrottna-,
innkaupa-, sölu-, birgða-, verk- og
launabókhald. Að sögn Margrétar
Sveinbjörnsdóttur viðskipta-
þróunarstjóra býður dk upp á
mikið úrval sérlausna fyrir hinar
ýmsu tegundir fyrirtækja, meðal
annars almenn þjónustufyrirtæki,
verslanir, veitingahús, hótel og
gististaði, stéttarfélög, sveitarfélög,
endurskoðunar- og bókhalds-
fyrirtæki, útgerðir, fiskvinnslur og
framleiðslufyrirtæki, svo eitt-
hvað sé nefnt. Auk þess hafa verið
smíðaðar tengingar við önnur
kerfi, bókunarvélar, vefsíður og
vefþjónustur.
„dk hugbúnaður er einnig
leiðandi í hýsingarþjónustu fyrir
stór sem smá fyrirtæki á Íslandi.
dk hugbúnaður er meðal stærstu
hýsingaraðila hérlendis og hýsir
meðal annars um 30.000 einstök
fyrirtæki,“ segir Margrét.
„Í dag eru fyrirtækin sem nota
dk hugbúnað orðin á sjöunda
þúsund. Þau eru úr flestum
atvinnugreinum og fjölgar ört.
Viðskiptavinir dk eru stór sem smá
fyrirtæki, lausnaframboð dk er
gríðarlega stórt og hentar því fyrir
ólíkar gerðir reksturs.”
Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna í innleiðingu
„Við hjá dk erum meðvituð um
samfélagsábyrgð okkar, gagn-
vart fólki, umhverfinu og þeirri
atvinnugrein sem við tilheyrum.
Við viljum umgangast umhverfið
af ábyrgð og virðingu. Megin-
áhersla okkar er á stafræn við-
skipti og tækni þar sem við getum
haft jákvæð áhrif og stuðlað að
bestu lausn fyrir viðskiptavini
okkar. Starfsmenn dk hugbúnaðar
veita aðstoð við úttekt á þörfum
fyrirtækja og ráðleggja miðað við
aðstæður hverju sinni.
dk hugbúnaður hefur skrifað
undir viljayfirlýsingu um inn-
leiðingu Heimsmarkmiða Sam-
einuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun. Markaðsstofa Kópavogs
hefur haft frumkvæði að því að
hvetja rekstraraðila í Kópavogi til
að sýna ábyrgð í verki með því að
ná mælingu á núverandi stöðu í
ýmsum þáttum starfsemi sinnar
og setja sér jafnframt markmið
um framfarir til næstu ára. dk er
í hópi fjölmargra rekstraraðila
í Kópavogi sem hafa staðfest
viljayfirlýsingu um innleiðingu
Heimsmarkmiða. Með þátttöku
okkar höfum við samþykkt að
veita Markaðsstofu Kópavogs upp-
lýsingar um markmið okkar sem
og árlegar árangursmælingar og
samþykkjum að upplýsingarnar
verði skráðar í sameiginlegan
gagnabanka á vegum Markaðs-
stofu Kópavogs.
„Við hjá dk vinnum stöðugt að
því að bæta okkur og með viljayfir-
lýsingunni um að innleiða Heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna í
stefnu okkar og daglegan rekstur,
sýnum við samfélagslega ábyrgð í
verki sem leiðir til jákvæðra áhrifa
á umhverfið og samfélagið. Það
sem liggur okkur næst þar eru til
dæmis markmið um nýsköpun
og uppbyggingu, góð atvinna
og hagvöxtur, heilsa og vellíðan,
menntun fyrir alla og jafnrétti
kynjanna,“ segir Margrét.
Síðustu árin höfum við
fengið vottun fyrir góðan rekstur
í gegnum „Framúrskarandi fyrir-
tæki“ og „Fyrirmyndarfyrirtæki í
rekstri“.
Aukin áhersla á rafræn viðskipti
„Rafrænir reikningar eru mikil-
vægur hluti viðskipta í dag, með
þeim hætti skila upplýsingar sér
hratt á milli kerfa og villuhætta
minnkar. Fjárstreymi verður skil-
virkara. Meðhöndlun rafrænna
reikninga tekur að meðaltali þrjá
daga á meðan meðhöndlun papp-
írsreikninga tekur að meðaltali 15
daga og er því um 80% hagræðingu
að ræða. Það gefur auga leið hversu
mikill ávinningur þetta er fyrir
umhverfið og kolefnissporið.
Það eru gríðarlega spennandi
hlutir að gerast hjá okkur og dk
Viðskiptahugbúnaður er í stöðugri
þróun. Við höfum verið að leggja
mikla áherslu á meiri sjálfvirkni í
kerfinu og rafræn samskipti inn og
út úr kerfinu. Þar koma smáfor-
ritin og veflausnir sterkar inn og
það má segja að þær lausnir séu
framlenging á bókhaldskerfið.
Þessar lausnir eru mikil hagræðing
í rekstri og starfsemi fyrirtækja.
Mikil áhersla hefur einnig verið
lögð á þróun í dk öppunum. Nýtt
dk One app kemur út á næstu
dögum með töluverðum nýjung-
um. Nú er hægt að taka mynd af
reikningum og senda beint inn
í dk. Þar sem ný vinnsla tekur
við og les inn reikninga í lánar-
drottnakerfið úr PDF-skjölum og
myndum. Hægt er að sjá reikning-
inn og laga /breyta bókun áður en
reikningur er stofnaður í dk. Einn-
ig er hægt að vista skjöl í fyrirfram
skilgreindri möppu og lesa inn.
Bætt hefur verið við samþykkt-
arkerfi í dk One appið sem fram að
þessu hefur einungis verið á netinu
hjá okkur.
Dæmi um viðbót í nýjustu
útgáfunni okkar í dk hugbúnaði
er jafnlaunagreining, innlestur
grunngagna frá notendum vegna
jafnlaunagreiningar. Þessi gögn
eru síðan unnin saman við
launagögn og reiknaðir út ýmsir
þættir sem tengjast jafnlauna-
greiningu, til dæmis stig fyrir
persónubundna þætti og ein-
stök störf. Einnig er reiknaður út
launamunur kynja út frá þeim
forsendum sem eru gefnar. Þessar
upplýsingar er síðan hluti af þeim
gögnum sem þarf að skila til að
öðlast jafnlaunavottun sem veitt
er af þar til bærum aðilum.
Nýlega hefur Innbyggða hjálpin
í kerfinu verið endurskrifuð og
fleiri hjálpargluggum (Wizard)
hefur verið bætt við kerfið. Mögu-
leiki er nú að lesa rafræn fylgiskjöl
í töflu í stað þess að vera með þau á
gagnadrifi. Mikil vinna hefur farið
í hjálpar- og kennslumyndbönd
sem eru sýnileg á heimasíðu dk
hugbúnaðar og YouTube rás en það
hefur hingað til ekki verið tiltækt,“
segir Margrét að lokum. ■
Samfélagsleg ábyrgð í verki
Margrét Sveinbjörnsdóttir viðskiptaþróunarstjóri segir mikla áherslu hafa verið lagða á þróun í dk öppunum. Nýtt dk One app kemur út á næstu dögum með töluverðum nýjungum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
kynningarblað 21FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR