Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 18
Við tölum stund-
um um að fjárfest-
ing sé annað hvort arð-
söm eða sjálfbær, eins og
þetta tvennt fari ekki
saman. Þetta fer nefni-
lega mjög vel saman.
Hrund Gunnsteinsdóttir
Sjálfbærni er regnhlífarhug-
tak sem byggir á þremur til
fjórum meginstoðum, segir
Hrund Gunnsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Festu.
thordisg@frettabladid.is
„Fyrsta stoðin nær utan um fólk,
samfélag og félagslega þætti; það
getur verið starfsfólk á vinnustað
eða í virðiskeðjunni þaðan sem
vörur koma og fara, mannréttindi,
öryggisbúnaður, jöfn laun, nær-
samfélag rekstursins, launakjör
og fleira,“ upplýsir Hrund Gunn-
steinsdóttir, framkvæmdastjóri
Festu – miðstöðvar um samfélags-
ábyrgð og sjálfbærni.
Önnur stoð er svo jörðin.
„Undir sjálfbærni jarðar falla
hlutir eins og loftslagsbreytingar,
kolefnismarkaður, kolefnisjöfnun,
hringrásarhagkerfið, líffræði-
legur fjölbreytileiki og það að
rekstur hafi ekki skaðleg, eða sem
minnst, neikvæð áhrif á vistkerfi
og umhverfið. Í mörgum tilfellum
þurfum við að hafa græðandi eða
endurnýjandi áhrif á náttúruna,
því sums staðar er náttúran í svo
miklum lamasessi að við þurfum
að skilja betur við hana en við
komum að henni. Við höfum geng-
ið svo mikið á þolmörk jarðar sem
þjónustar tilvist okkar og rekstur
og hefur unnið eftir náttúrulegum
kerfum við að grípa koltvísýring úr
loftinu og setja í sjóinn eða frum-
skóga Amazon, sem dæmi, en er
nú að missa getuna til þess, því við
höfum gengið svo mikið á þessar
auðlindir að það stefnir í óefni,“
greinir Hrund frá. „Jörðin er að
missa niður getuna til að endur-
nýja krafta sína eins og við höfum
vanist í þúsundir ára.“
Þriðju stoðir sjálfbærni eru góðir
stjórnarhættir í hvers kyns rekstri,
jafn opinberum sem einkareknum,
sem liggja til grundvallar rekstri.
Þeir snúa að því hvernig stjórn á að
vera skipuð, hvernig stjórnarstörf
eiga að fara fram, siðferði stjórna
og innleiðingu sjálfbærniviðmiða
í stjórnarstörfum og æðstu stjórn
fyrirtækja.
„Fjórða stoðin, sem er sífellt
algengara að sé bætt við veg-
ferðina, gengur út á hagsæld, að
rekstur fyrirtækja sé sjálfbær og
skili hagnaði á þann hátt að hann
nái að vinna sig í gegnum áföll,
eins og bankahrun og skaða vegna
loftslagsbreytinga, og nái einnig
að stækka eða stuðla að nýsköpun
sem dæmi. Einnig er á markaði og
alþjóðlega spurt í vaxandi mæli
„hvort eitthvað vaxi að eilífu?"
Er til dæmis rökrétt að hagkerfið
vaxi að eilífu út frá mælikvarð-
anum vergri þjóðarframleiðslu?
Í heiminum er mikið rætt hvort
breyta þurfi viðskiptamódelum
og einblína ekki eingöngu á verga
þjóðarframleiðslu heldur nota
fleiri mælikvarða til að mæla vel-
sæld í samfélaginu, því hagvöxtur
getur tekið á sig ýmsar myndir og
þegar félagslegi þátturinn, sam-
félagið og fólkið, jörðin og góðir
stjórnarhættir fara vel saman; þá
verður til besti hagvöxturinn, eins
og dæmin sýna,“ segir Hrund.
Sjötta iðnbyltingin
Í dag er talað um sjálfbærni sem
sjöttu iðnbyltinguna.
„Sjálfbærni er ekki bara einhver
skoðun, heldur breytast umhverfi
og samfélög nú á ógnarhraða í
gegnum lög, reglur, kröfur fjárfesta
og lög um upplýsingaráðgjöf fyrir
ársreikninga, og við förum hratt í
umbreytingu á rekstri yfir í sjálf-
bæran rekstur og hringrásarhag-
kerfið,“ upplýsir Hrund.
Til að renna stoðum undir þetta
er Evrópulöggjöf, sem nú er verið
að innleiða hér á landi og í Evrópu.
„Alþjóðlega reikningsskilaráðið
er nú að innleiða reglur um upp-
lýsingagjöf fyrirtækja. Evrópulög
og -reglur eru og verða innleiddar
í regluverk á Íslandi, sem og
væntanlega hvatakerfi um rekstur
fyrirtækja. Hjá Evrópusamband-
inu kallast þetta EU Green Deal
og er f lokkunarreglugerð Evrópu-
sambandsins sem á að stuðla að
sjálf bærari rekstri og koma í veg
fyrir grænþvott. Grænþvottur
þýðir að fyrirtæki segjast vera
sjálf bær og virða mannréttindi,
en gera það ekki, en með nýju
reglunum á að loka fyrir falska
upplýsingagjöf.
Hrund segir hugtakið sjálfbærni
meira notað en samfélagsábyrgð,
en samfélagsábyrgð fyrirtækja falli
undir sjálfbærnina.
„Allur rekstur getur verið sjálf-
bær, en það er ekki síður mikilvæg
staðreynd að það gengur ekki
að allur rekstur sé ekki sjálfbær.
Vísindin sýna okkur að við höfum
ekki val um annað en að verða
sífellt sjálfbærari. Það er mikil-
vægt sjónarmið, og sem dæmi, ef
einhver ætlaði sér að reka fyrirtæki
sem hefði skaðleg áhrif á fólk og
umhverfi, og þrátt fyrir að reynsla
og rannsóknir sýndu að það myndi
þýða að fyrirtækið endist ekki
lengi; hvers vegna í ósköpunum
ætti þá einhver að vilja verja tíma
sínum eða peningum í það?“
Úr línulegu hagkerfi
Hrund segir almennt talið ekki
nægja að við færum okkur úr
hákolefnahagkerfi yfir í lág-
kolefnahagkerfi.
„Til að snúa við þróuninni yfir í
sjálfbæra, þurfum við enn fremur
að færa okkur úr línulegu hag-
kerfi yfir í hringrásarhagkerfi,“
segir Hrund og útskýrir betur:
„Línulegt hagkerfi þýðir að við
kaupum ísskáp, hendum honum
að notkun lokinni og hann er
urðaður í jörðina með tilheyrandi
mengun. Í hringrásarhagkerfinu
væri ísskápur hannaður frá hug-
myndastigi til endurnýtingar,
endurvinnslu og að sem mestu
leyti þannig að hann verði hluti
af hringrás náttúrunnar. Líftími
vöru og varahluta endist lengur og
snýst hugmyndin um hringrásar-
hagkerfið um að lífsferill vara sé
lengri, fjölbreyttari og umhverfis-
vænni. Þetta er mikið breyting á
viðskiptamódelinu.“
Ísland gæti verið leiðandi
Þegar kemur að sjálfbærum rekstri
fyrirtækja segir Hrund íslenskt
atvinnulíf að sumu leyti eftir á í
samanburði við til dæmis Norður-
löndin, sem standa að mörgu leyti
framarlega.
„Við erum kannski ekki leiðandi
en það væri sannarlega mögulegt.
Því fleiri sem tileinka sér að skilja
þetta viðfangsefni og sjá tækifæri í
því, því raunsærri og öflugri verður
þessi þróun og hún er rosalega
spennandi,“ segir Hrund sem í
sinni vinnu minnir oft á að við
erum komin að bjargbrúninni,
en áskorunin feli í sér spennandi
tækifæri.
„Ísland hefur á sér sjálfbæra
ímynd og það vinnur með okkur,
en þegar við lítum ofan í kjölinn
á mörgum þáttum sést að við
getum gert enn betur. Í alþjóð-
legum samanburði stöndum við að
mörgu leyti vel að vígi í félagslega
þættinum, fólki og samfélaginu,
enda búum við við velferðarkerfi.
Sömuleiðis er mikill styrkleiki
að við notum að stærstum hluta
endurnýjanlega orku, en á sama
tíma erum við komin afar skammt
á veg í hringrásarhagkerfinu. Þegar
kemur að endurnýjanlegri orku
er hægt að fara fjölbreytta leið og
fyrir áratug hefði enginn trúað að
sólar- og vindorka yrði orðin svona
útbreidd og víða hagkvæmari
en jarðefnaeldsneyti, en það er
staðreynd og mjög vongefandi.
Íslendingar þurfa að huga vel að
þróun grænna orkugjafa alþjóð-
lega og umræðunni þar, þótt við
höfum staðið okkur vel þar framan
af. Við þurfum að passa að heltast
ekki úr lestinni, frekar halda for-
skoti og dreifa okkar þekkingu
ennþá víðar.“
Þegar kemur að hugmyndinni
um að sjálfbærni sé hluti af DNA
fyrirtækja getum við bæði litið til
íslenskra fyrirtækja og leiðandi
aðila á Norðurlöndum.
„Við eigum aðila sem komnir
eru ansi langt. Nærtækt dæmi er
Marel, stærsta fyrirtæki á Íslandi.
Það er að innleiða sjálfbærni inn
í DNA fyrirtækisins með því að
innleiða sjálfbærnimælikvarða í
kaupaukakerfi stjórnenda, mæli-
kvarða um nýsköpun, sem er stór
hluti af rekstrinum, og frammi-
stöðu á öllum stigum rekstursins,“
segir Hrund.
Össur er annað fyrirtæki sem er
langt komið í að innleiða sjálf-
bærni í rekstur sinn.
„Össur hefur sett sér markmið
um kolefnishlutleysi og stendur í
f lóknu ferli við innleiðingu hring-
rásarhagkerfis í framleiðslu sinni.
Þá er Ölgerðin í lífsferilsgreiningu
á flöskum og dósum til að finna
umhverfisvænustu leiðina í
umbúðum, og BM Vallá er að setja
sér það metnaðarfulla markmið
að öll steypuframleiðsla verði kol-
efnishlutlaus árið 2030, í samvinnu
við þeirra helsta sementsframleið-
anda í Noregi. Við erum líka með
hringrásarfyrirtækin Netparta og
Pure North, sem vinna ótrúlega
flott starf við að taka bíla í sundur,
nýta hlutina eins og hægt er og
koma þeim aftur í hringrásina, og
svo hins vegar að finna leiðir til
að endurnýta plast á umhverfis-
vænan hátt.“
Líkamsræktarstöð í sjálfbærni
Festa – miðstöð um samfélags-
ábyrgð og sjálfbærni eru frjáls
félagasamtök sem ekki eru rekin í
hagnaðarskyni. Aðildarfélög eru
rúmlega 170 talsins og hefur aðild
næstum því þrefaldast á þremur
árum.
„Festa er einstakt hagaðila-
samfélag utan um sjálfbærni og
þótt víðar væri leitað. Í Festu eru
minnstu og stærstu fyrirtækin
á Íslandi, í öllum mögulegum
geirum, allt frá verslun og þjónustu
yfir í fjármálastarfsemi, hátækni
og nýsköpun, en einnig sveitar-
félög, háskólar eins og HÍ og HR,
og opinberar stofnanir, eins og
Umhverfisstofnun og Seðlabanki
Íslands,“ greinir Hrund frá.
Festa hefur þann tilgang að
styðja við innleiðingu sjálfbærni í
allan rekstur.
„Fyrsta skrefið er að sækja um
aðild hjá Festu, en við erum líka
með draumabókasafn um sjálf-
bærni, Leiðarvísi á heimasíðunni
okkar þar sem hægt er að nálgast
fróðleik, leiðbeiningar og hand-
bækur, öllum að kostnaðarlausu.
Um 34 þúsund manns skoðuðu
heimasíðuna okkar í fyrra. Segja
má að þeir sem ganga í Festu
gerist aðilar að líkamsræktar-
stöð í sjálfbærni og því meira sem
þeir taka þátt, því betri verða
þeir í sjálfbærni. Við hjá Festu
erum að brúa hæfnibilið á Íslandi
svo við verðum ekki eftir á í að
innleiða sjálfbærni í rekstri og er
fjöldi starfsmanna sem starfa hjá
aðildarfélögum okkar 51 þúsund
manns,“ upplýsir Hrund.
Festa býður upp á heildstæða
fræðslupakka fyrir alla sem hafa
áhuga á að fara út í sjálfbæran
rekstur.
„Við bjóðum upp á ókeypis
afnot af loftslagsmæli Festu, sem
er uppfærður árlega og í takti við
alþjóðlega staðla. Hann er hægt að
nálgast á climatepulse.is og í formi
excel-skjals á heimasíðu Festu,
samfelagsabyrgd.is.
Annað mikilvægt skref er að
fyrirtæki og stofnanir greini hvað
það er í starfseminni sem getur
haft mest áhrif á umhverfisvænni
rekstur, líðan starfsfólks, öryggi og
virðiskeðjuna, sem dæmi.
„Sumir flytja inn vörur frá öðrum
og kannski fátækum löndum og
þá er mikilvægt að skoða virðis-
keðjuna vel; er verið að borga of lág
laun, er barnaþrælkun, og vel hlúð
að starfsfólkinu? Til fyrirmyndar
er íslenska fyrirtækið Omnom sem
kynnist fólkinu sem ræktar kakó-
baunirnar, borgar því mannsæm-
andi laun og passar að virðiskeðjan
sé traust. Þannig er hægt að breyta
heiminum og lífsgæðum fólks
skref fyrir skref, og sýnir að lítill
skali er jafn mikilvægur og stór.“
Ekki spurning um hjartalag
Hrund segir áhuga stjórnenda
mikinn á sjálfbærum rekstri.
„Um 8.000 manns horfðu á
Janúarráðstefnu Festu í fyrra á
einni viku. Það eru sífellt að koma
fram sterkari raddir og betri dæmi
um það hversu vel sjálfbær rekstur
fer saman við arðsamar fjárfesting-
ar, áhættustjórnun og rekstur sem
endist til lengri tíma. Í nýársbréfi
sínu sagði Larry Fink, forstjóri
stærsta eignastýringasjóðs heims,
Black Rock, að sjálfbær rekstur
væri ekki spurning um hjartalag,
heldur einfaldlega betri bisness.
Fyrirtæki sem væru sjálfbær í
rekstri hugsuðu til lengri tíma,
væru með betri áhættustjórnun og
seiglu í ört breytilegum heimi. Þau
ynnu að því að auka verðmæti fyrir
hagaðila sem eru starfsfólkið, hlut-
hafar, virðiskeðjan, nærsamfélagið
og náttúran, í stað þess að hafa
það eina markmið að hámarka
arðsemi hluthafa. Þetta finnst
mér mikilvægt í umræðunni, því
stundum tölum við um að fjár-
festing sé annað hvort arðsöm eða
sjálfbær, eins og þetta tvennt fari
ekki saman. Þetta fer nefnilega
mjög vel saman, líkt og fjárfest-
ingamarkaðir hafa sýnt, sérstak-
lega síðastliðin tvö ár.“
Að ógleymdri velvildinni.
„Fólk vill frekar starfa hjá og
versla við sjálfbær fyrirtæki. Það
vill frekar hafa þau í nærumhverfi
sínu og að lífeyrissjóðurinn sinn
fjárfesti í þeim. Víða er viðskipta-
og hagfræðikennsla að þokast í
þessa átt, sem væntanlega dregur
líka til sín fjölbreyttari hóp af fólki
sem hefur áhuga á hvers kyns sjálf-
bærum rekstri.“ n
Sjá meira á samfelagsabyrgd.is
Ekki spurning um hjartalag heldur betri bisness
Hrund Gunn-
steinsdóttir er
framkvæmda-
stjóri Festu sem
styður við inn-
leiðingu sjálf-
bærni í rekstri
fyrirtækja.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
4 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR