Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 22
Sveitastjórn Flóahrepps
ákvað í lok ársins 2019 að
hefja stefnumótun með nýja
framtíðarsýn, sem tekur
mið af heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Til-
gangurinn er að innleiða
sjálfbæra og framsækna
þróun í sveitarfélaginu og
stuðla að heilsusamlegu og
bættu samfélagi.
elin@frettabladid.is
Eydís Þorbjörg Indriðadóttir, sveit-
arstjóri Flóahrepps, segir að í fram-
haldi af skuldbindingu Íslands
2015, hafi heimsmarkmiðin verið
kynnt meðal annars á vettvangi
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Þar hafi hún og Árni Eiríksson
oddviti heillast af hugmynda-
fræðinni og sent kynningarefni
á allar nefndir sveitarfélagsins í
framhaldi af því. „Það var síðan í
lok ársins 2019 sem sveitarstjórn
Flóahrepps samþykkti einróma
að vinna að heildarstefnumótun
til næstu ára og þróa heildarfram-
tíðarsýn með heimsmarkmiðin að
leiðarljósi. Um leið styrkjum við
stoðir sjálfbærrar þróunar,“ segir
Eydís.
Varmadæluvæðing í Flóaskóla
„Innleiðing gengur vel og ýmis
verkefni eru þegar komin af stað.
Við höfum til dæmis verið að
skipta um orkugjafa í Flóaskóla.
Skólinn er staðsettur á köldu svæði
og fram til síðasta árs hefur hann
verið kyntur upp með rafmagni.
Við fjárfestum í varmadælum og
fengum styrk til þess frá Orku-
sjóði. Þetta er stórt verkefni og það
þurfti að gera ákveðnar breytingar
eins og að tengja loftræstikerfi við
varmadælu, plægja niður 2,3 km af
lögnum í skólalóð og fleira.
Í sumar munum við skipta út
rafmagnsþilofnum sem voru til
staðar í einum áfanga byggingar-
innar,“ segir Eydís. Bæði leik- og
grunnskóli Flóahrepps taka þátt
í verkefninu með því að starfa
samkvæmt grænfánastefnu, sem
gerir ríkar kröfur til þess að unnið
sé með sjálfbærni að leiðarljósi.
Gerðar eru úttektir á starfseminni
reglulega. „Með þessari stefnu eru
gerðar kröfur um að spara raf-
magn, sporna við matarsóun og
spara pappír svo eitthvað sé nefnt,“
segir Eydís, en í grunnskólanum
eru 116 börn og um 40 í leikskólan-
um. Flóahreppur hefur einnig gert
samning við Embætti landlæknis
um verkefnið Heilsueflandi sam-
félag og taka skólarnir þátt í því.
„Samfélagið er ungt, með góðan
aldurspíramída, þannig að það eru
hlutfallslega mörg börn í leik- og
grunnskóla miðað við íbúafjölda.
Um sjö hundruð manns búa á
svæðinu. Við látum stefnu heims-
markmiðanna ná til allra sviða
sveitarfélagsins og allar stofnanir
taka þátt í verkefninu. Þegar við
vorum að innleiða þessa stefnu var
það gert í samráði við þær sem og
nefndir sveitarfélagsins. Við réðum
verkefnastjóra, Evu Magnúsdóttur
ráðgjafa hjá Podium, en hún hafði
unnið að sambærilegu verkefni í
Skaftárhreppi. Fulltrúar í nefndum
og íbúar í sveitarfélaginu voru
sömuleiðis kallaðir til samráðs
og verkefnið kynnt á fundum og
rafrænt. Við vorum ávallt að huga
að sjálfbærni samfélagsins og vel-
ferð íbúanna,“ segir Eydís og bætir
við að heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna sé gott tæki til þess og
allir hafi unnið lausnamiðað að
markmiðasetningu fyrir sveitar-
félagið sitt. Nú er einnig búið að
vinna skólastefnu Flóahrepps
á sama grunni og birta hana á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Lærdómsríkt ferli
„Við erum nú að undirbúa gerð
loftslagsstefnu og nýtum okkur til
þess veflausnir Umhverfisstofn-
unar.
Leiðtogahlutverk Sambands
sveitarfélaga er mikilvægt í verk-
efnum eins og heimsmarkmiða-
vinnunni, en verkefnisstjórar frá
þeim hafa stýrt reglulegum sam-
ráðsfundum þar sem við lærum
hvert af öðru. Við höfum m.a. verið
að vinna með Skútustaðahreppi,
Hornafjarðarbæ, Kópavogi,
Hafnarfirði og Fjarðarbyggð ásamt
fleirum. Allir eru mjög áhugasamir
að fara þessa leið og það er lær-
dómsríkt að fylgjast með hvað hin
sveitarfélögin eru að gera.“
Flokka allt rusl
Mörg landbúnaðarfyrirtæki eru í
Flóahreppi og segir Eydís að bænd-
ur séu líka að vinna að því að taka
inn þessa hugmyndafræði. Núna,
þegar aðföng eins og áburðargjöld
eru að hækka í verði, er sjálfbærni
og endurnýting góð leið til að halda
kostnaði í lágmarki. Flóahreppur
tók þá ákvörðun árið 2011 að
flokka allt sorp í þaula í sveitinni
og er enginn afsláttur gefinn í því
efni. Allur lífrænn úrgangur er
sömuleiðis flokkaður og er sóttur
á alla bæi sem óska eftir því. Aðrir
nýta úrganginn til moltugerðar eða
sem áburð.“
Eydís bendir á að mjög fram-
sækið fyrirtæki sé starfandi í
hreppnum, Orkugerðin. „Fyrirtæk-
ið er staðsett við Suðurlandsveg og
er í eigu sláturleyfishafa og sveitar-
félaga. Það tekur á móti úrgangi úr
sláturhúsum og vinnur úr honum
verðmætar afurðir. Afurðir eru fita
til orkunotkunar og próteinríkt
kjötmjöl. Mjölið er notað í skóg-
rækt og landgræðslu á Suðurlandi.
Áhugi er fyrir því að nota mjölið
enn frekar, en reglur eru enn þá
fullstrangar hvað varðar þau tíma-
mörk sem eru frá dreifingu kjöt-
mjölsins til nýtingar á landi.
Það er mjög margt spennandi að
gerast í sveitarfélaginu. Meðal ann-
ars höfum við skipt út bensínbíl
hjá umsjónarmanni fasteigna fyrir
rafbíl og hugmyndin er að setja
upp nútíma hraðhleðslustöðvar
við allar stofnanir sveitarfélagsins.
Það er ákveðið tækifæri til þess að
gera vel við starfsmenn með því að
láta þá hafa starfsmannakort sem
gengur að hleðslustöðinni. Með
því hvetjum við starfsmenn til að
skipta yfir í rafbíla.“
Sveitarstjórinn á förum
Eydís segir að tíminn sem
sveitarstjóri Flóahrepps hafi
verið einstaklega skemmtilegur
og lærdómsríkur. Áður en hún
tók við sem sveitarstjóri hafði
hún verið oddviti Ásahrepps í
Rangárvallasýslu í átta ár, með
verkefni sveitarstjóra á borðinu.
Þar á undan hafði hún verið eitt
kjörtímabil í sveitarstjórninni
þar. „Málefni sveitarfélaga brenna
á mér og hafa verið mér hugleikin
lengi. Það hefur verið sérstak-
lega lærdómsríkt að starfa hér
enda vinnur sveitarstjórnin vel
saman,“ segir Eydís en hún lætur
af starfi í vor. „Ég gef kost á mér
í Rangárþingi ytra. Ég hef búið í
Rangárvallasýslu síðan 1996 og
ákvað núna að fara aftur í heima-
pólitíkina,“ segir hún. n
Framsækið sveitarfélag í sjálfbærri þróun
Það er fallegt
í landslagið í
Flóahreppi.
MYND/ÁRNI GEIR
Eydís Þorbjörg
Indriðadóttir,
sveitarstjóri
Flóahrepps
8 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR
Við styðjum Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
Við bjóðum upp á vörur og þjónustu sem
stuðla að góðri heilsu og vellíðan, notum
ábyrgar framleiðsluaðferðir, styðjum aðgerðir
í loftslagsmálum og vinnum að jöfnum
rétti kynjanna.
Nánari upplýsingar á www.ossur.com/csr
Össur er kolefnishlutlaust fyrirtæki
Okkur er annt um umhverfið
og við tökum ábyrgð okkar alvarlega
SJÁLFBÆR REKSTUR