Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 23
Í dag eru Klappir
drifkraftur í sjálf-
bærnimálum á Íslandi.
Hundruð fyrirtækja og
mörg sveitarfélög ásamt
opinberum aðilum
vinna með stafrænar
sjálfbærnilausnir Klappa
og nýta þær til að ná
árangri í sjálfbærni.
Klappir gera mögu-
legt að deila þekk-
ingu og traustum gögn-
um, birta sjálf bærni -
uppgjör sem eru
nákvæm, gagnsæ og
samræmd og byggja upp
samræmda þekkingu og
skilning á loftslags-
málum og UFS í heild.
Klappir eru hugbúnaðar-
fyrirtæki sem á rætur sínar
að rekja til ársins 2013 og
hefur allar götur síðan þróað
og selt hugbúnað sem styður
vegferð samfélagsins í átt að
sjálfbærni.
Í upphafi voru Klappir stofnaðar
til þess að hanna stafrænar lausnir
á sviði umhverfismála fyrir haf-
tengdan iðnað. Sýn fyrirtækisins
var að nýta umfangsmikil gögn,
sem verið var að safna í papp-
írsformi, og rafvæða lögbundna
skráningarferla. Fljótlega jókst
umfang gagnasöfnunarinnar
og nær hún nú utan um flest allt
sem snertir umhverfismælingar
í rekstri fyrirtækja og stofnana.
Klappir hafa því markvisst unnið
að því að byggja upp öfluga staf-
ræna innviði til þess að mynda
stafrænt sjálfbært vistkerfi.
Markmið Klappa er að auka
skilning á öllum hliðum sjálf-
bærni með stöðugri þróun á
snjöllum sjálf bærnilausnum.
Jón Ágúst Þorsteinsson, for-
stjóri og einn stofnenda Klappa,
segir fyrirtækið og starfsfólk þess
brenna af áhuga á að aðstoða
viðskiptavini þess við að gera
fyrirtæki sín sjálf bær með því að
veita þeim aðgang að nákvæmum
rauntímagögnum sem auðvelt sé
að vinna með, greina og bregðast
við.
Rúmlega 300 hluthafar
Síðan 2013 hafa Klappir unnið
með fyrirtækjum, sveitarfélögum
og stofnunum í að ná árangri í
sjálf bærni og árið 2017 var Klapp-
ir skráð á „Nasdaq First North“. Í
dag eru hluthafar í félaginu f leiri
en 300 talsins. Hluthafarnir eru
frumkvöðlar, fagfjárfestar og ein-
staklingar.
Jón Ágúst segir Klappir hafa
fjárfest í þróun á bestu fáanlegu
tækni til stuðnings við lofts-
lagsmál og búið sé að setja upp
vistkerfi með meira en 6.000
notendum.
„Á árinu 2022 verðum við
með meira en 26 græn störf. Við
höfum líka fengið góðar viðtökur
í Danmörku síðustu mánuði og
því var ákveðið að stofna Klappir
Nordic. Þar eru nú starfandi
tveir starfsmenn félagsins, sem
munu þjónusta Norðurlöndin.
Við bindum miklar vonir við að
styrkja stöðu okkar enn frekar á
Norðurlöndunum með stofnun
Klappa Nordic,“ segir Jón Ágúst.
Grænskjáir auka umhverfislæsi
Klappir leggja mikla áherslu á
að vinna með samfélaginu að
mikilvægum verkefnum. Klappir
reyna að leggja sitt af mörkum
með Reykjavíkurborg, Landvernd,
Faxaflóahöfnum, Sorpu, Gagarín
og Origo í að vinna gegn loftslags-
kvíða ungmenna. Þetta er gert
með því að fræða nemendur og
veita þeim aðgang að tækni og
gögnum sem styðja við kennslu í
sjálf bærni.
„Við erum ásamt samstarfsað-
ilum okkar í samstarfi við grunn-
og framhaldsskóla til að þjálfa
nemendur í að skilja sjálf bærni
skóla og heimila. Verkefnið heitir
„Green Penguin“ eða Grænskjáir
upp á íslensku, og er átak til að
auka umhverfislæsi og innsæi
hjá börnum og ungmennum. Við
erum búin að hanna mjög aðgengi-
legan og auðskiljanlegan upp-
lýsingaskjá sem verður aðgengi-
legur í öllum skólum í Reykjavík
með haustinu. Námsefnið er svo
unnið af Landvernd í tengslum
við Grænfánaskóla. Þetta verður
alger bylting í sjálfbærnikennslu í
skólum landsins“ segir Jón Ágúst
Þorsteinsson.
Starfsemi Klappa styður
við sautjánda heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna, en heims-
markmiðin innihalda 17 megin-
markmið, 169 undirmarkmið og
231 vísi.
„Við hvetjum til samvinnu um
markmiðin, þannig náum við
þeim árangri sem samfélagið
stefnir að í sjálf bærni,“ segir Jón
Ágúst.
„Klappir gera fyrirtækjum og
stofnunum mögulegt að deila
þekkingu og traustum gögnum,
birta sjálf bærniuppgjör sem eru
nákvæm, gagnsæ og samræmd og
byggja upp samræmda þekkingu
og skilning á loftslagsmálum og
UFS í heild.“
Sjálf bærnilausn Klappa er
með f lest öll tól og tæki til að
halda utan um sjálf bærni. Helstu
einingar í lausnapallinum eru:
■ Gagnasöfnun og gagnastýring
■ Eignastýring og umhverfisálag
eigna
■ Greining á umhverfis- og sjálf-
bærniáhættu í virðiskeðju
■ Mælaborð og greiningartól
■ Áhættugreining
■ Birgjamat
■ Fjárfestinga- og lánamöt
(PCAF)
■ Skýrslugerðatól
■ Uppgjörstól fyrir sjálfbærni-
uppgjör
■ Rafrænar dagbækur fyrir skip
■ Tenging á milli hafna og skipa
Ávinningur af sjálf bærnilausn
Klappa er:
■ Stöðluð sjálfbærnilausn fyrir
allar atvinnugreinar
■ Sjálfbærnilausn Klappa er
stöðluð og er nýtt af flestum
atvinnugreinum. Sumar at-
vinnugreinar þurfa viðbótar-
einingar (plug-in-extensions)
sem eru ætlaðar til að leysa
skilgreind verkefni
■ Allir vinna að sjálfbærni með
sama hætti óháð atvinnu-
greinum
■ Allir umreiknistuðlar, grein-
ingar og framsetning uppgjöra
eru eins hjá öllum
■ Öll sjálfbærniuppgjör eru
samanburðarhæf
Stafrænt vistkerfi Klappa
Vistkerfið tengir saman alla aðila
sem nota lausnapallinn. Stafræna
vistkerfið gerir aðilum mögulegt
að vinna saman og fá stuðning
frá öðrum og veita stuðning inn í
vistkerfið.
Ávinningur af vistkerfinu er:
■ Samvinna á grundvelli heims-
markmiðs númer 17 (samvinna
um markmiðin)
■ Sameiginleg sýn á árangur. Ár-
angur hvers og eins er mældur,
árangur vistkerfisins og saman-
burður við samfélagið í heild
Jón Ágúst segir Klappir hvetja
til samstarfs opinberra aðila,
einkaaðila og almennra borgara
um sjálfbæra þróun.
„Í gegnum stafrænt vistkerfi
Klappa eru notendur tengdir á
mismunandi hátt með það að
markmiði að þeir geti stutt hvern
annan í átt að sjálfbærni. Hvort
sem um er að ræða opinberan
aðila, sveitarfélag eða fyrirtæki,
þá eru aðilar tengdir og geta skilað
sjálfbærnigögnum hver til annars.“
Að sögn Jóns geta aðilar sótt
rauntímagögn í lausn Klappa um
notkun þeirra á til dæmis raf-
magni og eldsneyti ásamt losun á
úrgangi beint frá sínum birgjum.
Sjálfbærnilausn Klappa vinnur
í kjölfarið úr gögnunum og gerir
aðilum kleift að reikna út kolefnis-
spor, koma auga á tækifæri til þess
að draga úr sóun, útbúa sjálfbærni-
uppgjör og deila upplýsingum með
fjárfestum eða öðrum hagaðilum.
Stafrænar lausnir Klappa stuðla að sjálfbærni
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa grænna lausna, segir Klappir styðja
við endurheimt og uppbyggingu vistkerfa. MYND/AÐSEND
Eins og fram hefur komið má
rekja upphaf Klappa til haftengdr-
ar starfsemi, það má því segja að
Klappir leggi mikla áherslu á að
vernda hafið. Í sjálf bærnilausn
Klappa eru sérsniðnar hugbún-
aðareiningar fyrir rekstur skipa
og hafna. Klappir hafa þróað raf-
rænar skipadagbækur til að skrá
umhverfisgögn skipa samkvæmt
IMO MARPOL viðauka I-VI. Þá
hafa Klappir þróað hugbúnaðar-
lausn fyrir hafnir sem taka á móti
umhverfisupplýsingum frá skip-
um. Meira en 90 prósent þeirra
skipa sem koma inn í íslenska
umhverfislögsögu nota Klappir til
að skila inn umhverfisgögnum í
gegnum hugbúnað Klappa.
Leiðandi í heiminum á sínu sviði
Jón Ágúst segir Klappir leggja sig
fram um að styðja við endurheimt
og uppbyggingu vistkerfa á landi
og vinna að því að koma af stað
þjóðarátaki í því að endurheimta
vistkerfi á Íslandi með landbótum,
með því að fá alla aðila sem eru
inni í vistkerfi Klappa til að kaupa
vottaðar kolefniseiningar sem
framleiddar eru með skógrækt,
endurheimt votlendis og land-
græðslu.
Klappir vinna að því, að sögn
Jóns Ágústs, að setja upp, með
fjölda fyrirtækja og stofnana,
aðferðafræði sem heldur utan um
framleiðslu á kolefniseiningum í
gegnum vottað ferli. Aðferðafræðin
heldur utan um ferlið frá gróður-
setningu skógar til afhendingar
vottaðra kolefniseininga‚ í takti við
alþjóðlegar venjur sem eru viður-
kenndar af íslenskum og alþjóð-
legum aðilum. Til að byrja með er
horft til skógræktar, en ætlunin er
að bæta við endurheimt votlendis
og landgræðslu, ásamt öðrum
viðurkenndum kolefnisverkefnum.
Jón Ágúst segir stafræna tækni
Klappa, þjónustu og aðferðafræði,
hjálpa samfélögum að ná sam-
eiginlegum, mælanlegum árangri.
„Klappir eru leiðandi í heimin-
um á sínu sviði með B2S (business
to society) lausn. Klappir tengja
saman samfélög, samfélagsinnviði
og eftirlitsstofnanir með sjálf-
bærnilausninni og við erum ákaf-
lega stolt af því,“ segir Jón Ágúst
Þorsteinsson, forstjóri Klappa
grænna lausna. ■
Klappir Nordic
var stofnað
fyrr á árinu og
eru skrifstofur
dótturfélagsins
á Íslandsbryggju
í Kaupmanna-
höfn.
MYND/RASMUS
HORTSHØJ
kynningarblað 9FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR