Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 26
SJÁLFBÆR REKSTUR
LEX býr yfir reynslu og
þekkingu í innleiðingu
sjálfbærnimarkmiða eftir
viðurkenndum aðferðum
sem notuð eru í ráðgjöf til
viðskiptavina.
Fjölmargar fréttir birtast nú um
viðskiptaþvinganir eftir innrás
Rússa í Úkraínu. Einnig hafa mörg
fyrirtæki ákveðið að hætta við-
skiptum við Rússland. Óvæntir
atburðir sem þessir, sem hafa
ófyrirsjáanleg áhrif í för með
sér á viðskipti í heiminum, sýna
þá margvíslegu áhættu sem er í
umhverfi og starfsemi fyrirtækja
og fjárfesta.
Víðtæk röskun á mörkuðum
Eva Margrét Ævarsdóttir er
reynslumikill lögmaður og leiðir
þjónustu LEX á sviði sjálf bærni og
UFS-ráðgjafar. Hún segir að f lokka
megi margar af af leiðingum átak-
anna undir sjálf bærniáhættu sem
muni líklega hafa áhrif á sjálf-
bærnivinnu fyrirtækja og fjárfesta
sem hafa sett sér loftslagsmark-
mið. Mikilvægt sé fyrir stjórn-
endur fyrirtækja að þekkja slíkar
hættur og geta brugðist við þeim.
Sem dæmi um það nefnir Eva að
átökin hafi til að mynda þegar
valdið margvíslegum röskunum
á orkumarkaði í Evrópu eins og
margir þekkja úr fjölmiðlum.
Einnig segir hún að vörur sem við
neytum daglega séu að verða fyrir
áhrifum.
„Rússland og Úkraína eru til
dæmis með stærstu útf lytjendum
sólblómaolíu í heiminum, sem er
notuð í snakk, kex og margvíslega
matvöru. Ekki er auðvelt að finna
jurtaolíu í stað hennar. Takist það
fylgja oft önnur vandkvæði, til
dæmis að koma í veg fyrir ranga
innihaldslýsingu á matvöru, enda
f lókið og kostnaðarsamt að breyta
pakkningum.“
Mikilvægt að þekkja áhættu
Mikil þróun hefur orðið á síðustu
árum í því hvernig fyrirtæki og
fjárfestar vinna með sjálf bærni
í sinni starfsemi og þá sérstak-
lega hvernig sjálf bærniáhætta
er greind, þar með talið í birgða-
keðjum. Eva segir starfsfólk LEX
hafa fundið fyrir aukinni eftir-
spurn eftir sjálf bærniráðgjöf. LEX
búi yfir reynslu og þekkingu í inn-
leiðingu sjálf bærnimarkmiða eftir
viðurkenndum aðferðum sem þau
nota í ráðgjöf til viðskiptavina.
„Áhersla á sjálf bærni er ekki að
minnka og athyglin hefur færst á
áhættu tengda sjálf bærni. Það er
mikilvægt að við aðlögum okkur
að því og kortleggjum áhættu sem
er til staðar,“ segir Eva að lokum. n
Áhrif átakanna í Úkraínu koma víða fram
Eva Margrét
Ævarsdóttir
lögmaður leiðir
þjónustu LEX á
sviði sjálfbærni
og UFS-ráð-
gjafar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Brynja Þóra Guðnadóttir
og Þóra Hafdís Arnardóttir
fengu nýlega þróunar- og
rannsóknarstyrk frá Hönn-
unarsjóði til að þróa bio-
flísar úr íslenskum sandi og
bakteríum.
sandragudrun@frettabladid.is
Þóra er í doktorsnámi við New-
castle-háskóla þar sem hún hefur
verið að þróa eins konar steypu úr
bakteríum.
„Doktorsverkefnið mitt snýst
um lífsteinefnavæðingu. Í stuttu
máli þá eru til ákveðnar bakteríur
sem geta búið til kristal og ég nota
hann og blanda við sand til að
mynda efni sem er svipað sand-
steini,“ útskýrir Þóra.
„Hugmyndin að bioflísunum,
sem við Brynja stefnum á að þróa,
er byggð á þessu efni.“
Brynja vinnur við innanhúss-
hönnun og hefur mikið verið að
velta fyrir sér því efni sem notað
er á heimilum fólks.
„Það skiptir svo miklu máli
hvaða efni eru notuð. Það er notað
mjög mikið af eiturefnum í vörum
fyrir heimili. Þau geta valdið alls
kyns sjúkdómum, eru ósjálf bær
og geta valdið skaða í vistkerfinu.
Ég hef verið að vinna í þróun á
lifandi byggingu í eitt og hálft
ár og tengi bioflísarnar við það
verkefni,“ útskýrir Brynja.
„Ég komst í tengsl við Þóru í
gegnum Fablab og við ákváðum
að vinna saman.“
Nota auðlind sem vex
Bioflísarnar sem Brynja og Þóra
eru að þróa eru hugsaðar til að
nota innanhúss en þær segja að
það sé samt örugglega hægt að
þróa efnið svo hægt sé að nota þær
utanhúss.
„Efnið sem við erum að nota er
endurnýjanleg auðlind. Bakterí-
urnar fjölga sér hratt, við erum
að nota sambland af bakteríum
og næringarefnum til að mynda
f lísarnar. Þetta er umhverfisvænt
ferli í þróun á vörum,“ segir Þóra.
„Það er að verða skortur á nátt-
úrulegum auðlindum því það er
búið að ganga svo mikið á þær.
Það sem mér finnst spennandi
við þetta verkefni er að bakterían
vex og verður að kalki, sem er
bindiefni.
Í stað þess að taka eitthvað, þá
erum við að rækta eitthvað. Við
erum að nota auðlind sem vex.
Þetta efni myndast á svipaðan
hátt og kórallar myndast. Mér
finnst það svolítið skemmtileg
samlíking,“ bætir Brynja við.
Styrkurinn sem þær Brynja og
Þóra fengu er hugsaður til að byrja
frumrannsókn á þróun f lísanna.
Þær stefna að því að nota styrkinn
í sumar til að vinna að rannsókn-
inni og sækja svo um styrk eftir
sumarið fyrir vöruþróun.
„Núna er ég að þróa sýnishorn
af öðruvísi aðferðafræði við að
byggja upp efnið. Ég er að búa til
kubba og sýna hvernig f læðið fer
í gegnum sandrými með bakterí-
um, og hvernig þetta vinnur allt
saman svo hægt sé að búa til vörur
sem unnt er að nota. Svo ætlum
við að reyna að einfalda aðferðina
til að hægt sé að framleiða f lís-
arnar á Íslandi,“ segir Þóra. n
Þróa lífrænar flísar úr sandi og bakteríum
Flísarnar verða gerðar úr blöndu af bakteríum sem vaxa og mynda kristal og sand. MYNDIR/AÐSENDAR
Brynja Þóra
Guðnadóttir
Þóra Hafdís
Arnardóttir
Efnið sem við
erum að nota er
endurnýjanleg auðlind.
Bakteríurnar fjölga sér
hratt.
Brynja
Áhersla á sjálf-
bærni er ekki að
minnka og athyglin
hefur færst á áhættu
tengda sjálfbærni.
12 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR