Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 27
Colas Ísland er hluti af
Colas samsteypunni, sem
er stærsti malbiksverktaki
í heiminum í dag. Sam-
steypan hefur sett sér það
markmið að vinna að sjálf-
bærni og samfélagsábyrgð í
gegnum alla sína starfsemi
og sett sér alheimsmarkmið
í þeim málum.
Colas samsteypan er starfrækt í
fimm heimsálfum og 50 löndum
og starfa 56.000 manns hjá
fyrirtækinu. Colas hefur gefið út
stefnu sína um samfélagsábyrgð
sem skiptist í 8 skuldbindingar
sem byggjast á því að draga úr
umhverfisáhrifum starfseminnar
og virðiskeðjunnar; efla líffræði-
lega fjölbreytni á jörðinni, byggja
upp fyrirmyndarmenningu með
áherslu á öryggi, heilsu og siðfræði
og að laða til sín, þróa og halda í
hæfileikaríkt ungt starfsfólk með
framúrskarandi stjórnun.
„Þetta eru fjölbreytt verkefni, en
ég held utan um þau 6 sjálfbærni-
verkefni sem snúa að umhverfis-
og öryggismálum hér á landi. Við
höfum á síðustu árum náð mjög
góðum árangri í öryggismálum
og aukið öryggismenninguna
hjá Colas Ísland og samhliða því
dregið verulega úr fjölda og alvar-
leika slysa hjá starfsfólki okkar.
Upp á síðkastið hefur áherslan á
umhverfismál aukist. Þó að við
séum lítið land þá höfum við tekið
virkan þátt í vinnu á þessum vett-
vangi innan samsteypunnar. Ég er
í 20 manna alþjóðlegum vinnuhóp
um framtíð kolefnisbókhalds sam-
steypunnar á alþjóðavísu. Þá sit ég
einnig ásamt íslensku samstarfs-
fólki í fjölmörgum vinnuhópum
sem hafa það markmið að draga úr
losun Colas í Evrópu meðal annars
í gegnum orkuskipti og endur-
hönnun framleiðsluvara“ segir
Harpa Þrastardóttir, umhverfis-,
öryggis- og gæðastjóri hjá Colas á
Íslandi.
„Við höfum lengi þekkt kol-
efnisspor okkar við framleiðslu
á malbiki. Nú erum við farin að
skoða vörurnar sjálfar mun betur
en áður, þar sem okkar sýn er að
í framtíðinni muni viðskipta-
vinir vilja vita kolefnisspor vara
við innkaup. Colas samsteypan
leggur áherslu á að skila inn frá-
vikstilboðum í útboðum þar sem
grænni kostir eru settir fram sem
hliðartilboð við upprunalegar
kröfur í útboði. Við erum byrjuð
að undirbúa okkur fyrir það þegar
slík fráviks tilboð verða leyfð hér á
landi,“ segir Harpa.
Endurvinnsla og nýr orkugjafi
„Hérna innanlands erum við
annars vegar að vinna að því að
draga úr losun í framleiðslu og
hins vegar að hanna, framleiða
og markaðssetja umhverfisvænni
vörur. Við endurvinnum til dæmis
mikið af malbiki, en við tökum
á móti malbiki til endurvinnslu
og endurvinnum það hér. Í fyrra
endurunnum við yfir 31.000 tonn
af malbiki,“ útskýrir hún.
„Við höfum bæði endurnýtt
nýtt heitt malbik og hannað og
búið til kaldblandað malbik. Það
er að mestu endurunnið malbik
blandað með bikþeytu, það er því
allt að 96% endurunnin vara. Við
höfum prófað okkur áfram með að
endurvinna aðra úrgangsflokka í
malbik, til dæmis gler og plast og
erum almennt opin fyrir því að
gera tilraunir með að endurnýta
nýja úrgangsflokka í malbik og
horfum mikið til annarra Colas
fyrirtækja sem endurvinna m.a.
steypu, dekk og jafnvel vindmyllu-
spaða í malbik.“
Harpa segir að endurunna mal-
bikið þeirra hafi reynst vel og að
öflugt gæðaeftirlit sé við hönnun,
framleiðslu og útlögn hjá fyrir-
tækinu.
„Það skiptir auðvitað máli að
fólkið sem leggur malbikið hafi
hæfni til þess. Það eru göngustígar
úr kaldblönduðu malbiki sem hafa
staðið sig vel í yfir áratug. Þetta eru
góðar vörur ef þær eru meðhöndl-
aðar rétt,“ segir hún.
Fyrirtækið hefur endurunnið
malbik hér á landi í tæplega þrjá
áratugi og þessa dagana er verið
að taka inn nýjan endurvinnslu-
búnað í bikstöðinni svo hægt verði
að hefja endurvinnslu á biki, sem
er undirstaðan í malbikinu.
Bæta við endurvinnslubúnaði
Þrátt fyrir mikinn metnað í endur-
vinnslu er enn tækifæri til að auka
hlutfall endurunnins malbiks í
nýtt malbik hjá Colas, en stefnan
er að auka það, að sögn Hörpu.
„Við höfum verið að þrýsta á
stærri verkkaupa að nýta endur-
unna malbikið meira, en notkun á
verulegu magni af endurunnu mal-
biki kallar á auknar rannsóknir til
að tryggja gæðin. Okkar tilfinning
er sú að verkkaupar veigri sér við
að leyfa meira magn, þar sem
ekki allir verktakar hafa burði í
veigamiklar rannsóknir þó svo að
við séum nú þegar að framkvæma
þær,“ segir Harpa.
Með auknum umhverfisvottun-
um viðskiptavina hefur fyrirtækið
einnig séð hag sinn í því að búa til
vottaðar umhverfisyfirlýsingar
(EPD) fyrir malbikið sitt og er von
á útgáfu og vottun umhverfis-
yfirlýsinga síðar á árinu.
„Enn sem komið er er bara ein
af sex malbikunarstöðvum okkar
sem getur endurunnið malbik,
auk kaldblöndunarstöðvarinnar
sem framleiðir allt að 96% endur-
unnið malbik. Hinar hafa ekki
búnaðinn sem þarf fyrir slíka
framleiðslu. Við stefnum á að setja
upp endurvinnslubúnað í stöðinni
okkar á Akureyri síðar á árinu og í
framhaldinu mun með tímanum
koma búnaður í aðrar stöðvar svo
hægt verði að endurvinna mal-
bikið utan höfuðborgarsvæðisins í
framtíðinni. Kaldblöndunarstöðin
okkar er þó færanleg og hægt að
fara með hana hvert á land sem er
til framleiðslu,“ segir Harpa.
Harpa segir að þau hjá Colas
hafi tekið eftir því á undanförnum
árum að markaðurinn er orðinn
móttækilegri fyrir að kaupa endur-
unnar vörur.
„Það hefur orðið mikil breyting
bara núna síðastliðin ár. Það er
mun meiri áhugi núna en fyrir
fimm árum. En viðskiptavinir
þurfa að vilja vöruna svo hægt
sé að selja hana. Það hefur orðið
aukning í sölu á endurunnu mal-
biki á hverju ári á síðustu árum og
við gerum ráð fyrir að aukningin
haldi áfram,“ segir hún.
Mikil rannsóknavinna
Hjá Colas fer fram mikil rann-
sóknavinna bæði erlendis og hér
á Íslandi. Eins og áður segir er
Harpa í stefnumótunarvinnu með
samsteypunni um hvernig hægt er
að draga úr losun. En vegna þess
hve veturnir eru langir á Íslandi
geta sérfræðingar Colas hér á landi
unnið mikla rannsóknavinnu á
veturna.
„Þetta hefur orðið til þess að
rannsóknastjórinn okkar, Björk
Úlfarsdóttir, er að fara að kynna
fyrir hinum Colas fyrirtækjunum í
Evrópu hvernig við endurvinnum
malbik. Við höfum náð að byggja
upp gífurlega mikla þekkingu hér
á landi sem önnur Colas fyrirtæki
leita til,“ segir Harpa.
Framtíðin hjá Colas
Colas samsteypan hefur sett sér
það markmið að draga úr losun í
allri samsteypunni um 30% fyrir
árið 2030.
„En við hér á Íslandi höfum sett
stefnuna á að vera kolefnishlutlaus
árið 2030. Við teljum að við getum
efnt það loforð með orkuskiptum í
framleiðslu annars vegar og þróun
vara með tilliti til kolefnislosunar
hins vegar. Colas Ísland stendur
framarlega í umhverfismálum við
framleiðslu, þar sem við nýtum
íslenska rafmagnið, en við erum
þó enn að keyra stöðvar á skipa-
gasolíu og dísilolíu sem við viljum
losa okkur alfarið við. Steinefnin
þarf nefnilega að hita upp í 200
gráður við malbiksframleiðslu og
það er gert með brennurum. Við
höfum skoðað marga möguleika í
þeim efnum en ekki fundið hinn
eina rétta enn og erum því enn að
leita að framtíðarorkugjafa fyrir
stöðvarnar. Björk, rannsókna-
stjórinn okkar, hefur þegar komið
á samtali við birgja fyrirtækisins
um það hvernig draga megi úr
kolefnisspori þeirra vara sem við
framleiðum, þetta er verkefni sem
öll virðiskeðjan þarf að koma að.“
Colas samsteypan horfir til
framtíðar og er farin að huga að því
til dæmis hvað gerist þegar orku-
notkun með olíu dregst saman í
heiminum.
„Bikið sem við notum í malbik
er aukaafurð við olíuvinnslu og
því er framtíðin sú að draga muni
verulega úr aðgengi að biki. Þess
vegna er Colas samsteypan þegar
komin á fullt í nýsköpun og hefur
þegar kynnt fyrstu vöruna sem
gæti tekið við af biki þegar þar að
kemur. Þó svo að Colas sé rúm-
lega 90 ára fyrirtæki þá leggur það
alltaf áherslu á að halda í grunn
sinn sem nýsköpunarfyrirtæki,
það hefur verið styrkleiki fyrir-
tækisins hingað til og mun vera
áfram í gegnum allar þær breyting-
ar sem fram undan eru í heiminum
á næstu áratugum.“ n
Stefna markvisst að kolefnishlutleysi
Harpa Þrastar-
dóttir, umhverf-
is-, öryggis- og
gæðastjóri hjá
Colas á Íslandi,
segir fyrirtækið
leggja mikla
áherslu á sjálf-
bærni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Við hér á Íslandi
höfum sett stefn-
una á að vera kolefnis-
hlutlaus árið 2030. Við
teljum að við getum efnt
það loforð með orku-
skiptum í framleiðslu
annars vegar og þróun
vara með tilliti til kol-
efnislosunar hins vegar.
Harpa Þrastardóttir
kynningarblað 13FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR