Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 29
Landsbankinn hefur um
árabil verið leiðandi í sjálf-
bærum fjármálum hér á
landi. Bankinn hóf vegferð
sína fyrir rúmum áratug og
stendur framarlega í mála-
flokknum eins og niður-
stöður árlegrar úttektar
Sustainalytics á UFS-þáttum
bankans sýna.
„Síðasta ár var viðburðaríkt í
sjálf bærnimálum bankans,“ segir
Aðalheiður Snæbjarnardóttir,
sjálf bærnistjóri bankans. „Við
uppfærðum sjálf bærnistefnuna
okkar og gáfum út sjálf bæra fjár-
málaumgjörð sem myndar ramma
um fjármögnun bankans á
umhverfisvænum og félagslegum
verkefnum.
Bankinn byggir fjármálaum-
gjörðina á viðmiðum frá Alþjóða-
samtökum aðila á verðbréfamark-
aði (ICMA) um græn og félagsleg
skuldabréf og leiðbeiningum um
sjálf bær skuldabréf. Þá er einnig
byggt á f lokkunarkerfi Evrópu-
sambandsins og viðmiðum Sam-
einuðu þjóðanna um blá skulda-
bréf fyrir fjárfestingar sem efla
sjálf bærni í sjávarútvegi.“
Aðalheiður leggur áherslu á
mikilvægi þess að tryggja gagnsæi
og gæði með sjálfstæðri úttekt
á vinnu bankans. „Fjármálaum-
gjörðin okkar er t.d. tekin út, af
alþjóðlega matsfyrirtækinu Susta-
inalytics til að sannreyna að hún
uppfylli kröfur markaðarins fyrir
slíkar umgjarðir. Fjármálaum-
gjörðin er mikilvægt stýritæki í
sjálf bærum fjármálum bankans.
Við gáfum tvisvar út græn skulda-
bréf árið 2021 og fjármálaum-
gjörðin skilgreinir með skýrum
hætti hvaða verkefni uppfylla skil-
yrði grænnar fjármögnunar.“
Fjármálafyrirtæki
leika lykilhlutverk
Aðalheiður bendir á að fjármála-
fyrirtæki leiki lykilhlutverki til að
ná markmiðum Parísarsamkomu-
lagsins. „Það þarf fjármagn til
allra aðgerða. Auðvitað þarf meira
en bara peninga en það gerist
ekkert án fjármögnunar, hvorki
til góðs né ills. Þess vegna skipta
aðgerðir fjármálafyrirtækja núna
svo rosalega miklu máli – við
höfum bara til ársins 2030 til að
ná þeim viðsnúningi sem við
þurfum.
Fjármálafyrirtæki þurfa að taka
sjálf bærnimálin föstum tökum.
Mörg fjármálafyrirtæki eru
komin langt á þessari vegferð og
farin að bjóða upp á vörur til þess
að stuðla að minni losun. En það
er enn þá mikið verk fram undan
til að hægja á hlýnun jarðar, líkt
og niðurstöður síðustu tveggja
skýrslna IPCC hafa sýnt fram á.
Áhersla á gagnsæi og gæði í sjálfbærum fjármálum Aðalheiður Snæ-
bjarnardóttir,
sjálfbærnistjóri
Landsbankans.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARISjálfbær sparnaður
fyrir viðskiptavini
Loftslagsmálin eru helsta áskorun
samtímans og krefjast sameigin-
legs átaks. Við viljum bjóða við-
skiptavinum okkar upp á tækifæri
til að láta sparnaðinn sinn stuðla
að sjálfbærri þróun og kynntum
nýlega sjálfbæran sparireikning
fyrir einstaklinga. Pening-
arnir sem ég og þú leggjum inn á
reikninginn eru aðeins ávaxtaðir í
gegnum fjármögnun á verkefnum
sem stuðla að sjálfbærni, með
hliðsjón af fjármálaumgjörðinni.
Þetta er allt spurning um að gera
hluti sem skila sér í minni losun
koltvísýrings enda er bankinn að
vinna að markmiði Parísarsam-
komulagsins. Að draga úr losun er
það mikilvægasta sem við getum
gert til að tryggja lífsgæði mann-
kynsins til frambúðar,“ segir Aðal-
heiður.
Sjálfbærnisjóður með
áherslu á orkuskipti
Í lok janúar kynnti Landsbankinn
nýjan sjálf bærnisjóð sem hefur
það markmið að styðja verk-
efni sem stuðla að sjálf bærni og
hafa jákvæð áhrif á umhverfið.
Sjóðurinn styður sérstaklega við
verkefni sem snúa að orkuskipt-
um. „Orkuskiptin eru stóra málið
í dag og við viljum taka þátt í því.
Það var opnað fyrir umsóknir í
vikunni og umsóknarfrestur er
til 22. apríl. Við munum veita 10
milljónir króna árlega.
Markmiðið er að styðja við
lausnir og þróun til að hraða
orkuskiptum og ekki síður að geta
hjálpað til dæmis nemendum
og sprotafyrirtækjum með sín
verkefni. Sjóðurinn mun skoða
umsóknir frá bæði einstaklingum
og hópum sem eru að þróa lausnir
í orkuskiptum. Það er mjög margt
sem kemur til greina og við
hvetjum sem flest til að sækja
um.“
Sjálfbærnimerkið sendir
sterk skilaboð
Fyrirtæki eða verkefni sem verið
er að fjármagna geta sótt um að fá
sjálf bærnimerki bankans ef þau
uppfylla skilyrði sem sett eru fram
í sjálf bæru fjármálaumgjörðinni.
„Við erum mjög stolt af sjálf-
bærnimerkinu og finnum mikla
velvild fyrir því og eftirspurn. Það
er mikið að gera við að greina hæf
fyrirtæki og verkefni. Þetta er leið
fyrir fyrirtækin til að skila því út
á markaðinn að það sem þau séu
að gera sé raunverulega sjálf bært.
Sjálf bærni er svolítið tískuorð,
það eru allir að hugsa um það en
það er erfitt að miðla árangrinum.
Fyrirtæki sem fá merkið uppfylla
ströng skilyrði sem eru tekin út af
þriðja aðila,“ segir Aðalheiður. ■
Loftslags-
málin eru
helsta
áskorun
samtím-
ans og
krefjast
sameigin-
legs átaks.
kynningarblað 15FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR