Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 31
Sjálfbærni er ekki
lengur „mjúku
málin“ ef svo má að orði
komast. Öll fyrirtæki
þurfa að huga að sjálf-
bærni til þess að vera
samkeppnishæf þó
áherslan geti verið
mismunandi.
Samkvæmt könnun rann-
sókna- og ráðgjafarfyrir-
tækisins Verdantix er EY
leiðandi í sjálfbærniráðgjöf
á heimsvísu. Hjá EY starfa
um 315.000 manns um heim
allan og á Íslandi starfa um
80 manns við endurskoðun
og ráðgjöf.
Í ársbyrjun 2021 var sjálfbærni
ráðgjöf (e. Climate Change and
Sustainability Services – CCaSS)
stofnuð sem sér svið hjá EY á
Íslandi vegna aukinnar eftirspurn
ar á markaði eftir slíkri þjónustu
sem og markmiða EY varðandi
auknar sjálfbærniáherslur í rekstr
inum. Sjálfbærniráðgjöf er ört
vaxandi hjá EY á heimsvísu og er
það svið innan EY sem hefur verið
að stækka hvað mest.
Á því rúma ári sem sjálfbærni
ráðgjöfin hefur verið starfrækt
hefur landslagið breyst mikið og
áhugi fyrirtækja og stofnana á
málaflokknum að aukast samhliða
aukinni þekkingu og kröfum.
Sjálfbærniráðgjöf EY saman
stendur af reynslumiklum hóp á
sviði sjálfbærni, þeim dr. Snjó
laugu Ólafsdóttur sviðsstjóra,
Hólmfríði K. Árnadóttur, Gunn
ari F. Þorleifssyni og Rebekku R.
Jóhannesdóttur. Teymið vinnur
þétt með öðrum teymum þvert
yfir öll svið fyrirtækisins að sjálf
bærniverkefnum, með tilgang
EY að leiðarljósi, stuðlar að betri
heimi til að lifa og starfa í fyrir
starfsfólk, fyrir viðskiptavini sem
og fyrir samfélagið í heild sinni.
Fræðsla og skýr stefna
er fyrsta skrefið í sjálfbærni
Sjálfbærni er stórt hugtak og við
bjóðum upp á víðtæka þjónustu
bæði fyrir þau fyrirtæki sem eru að
taka sín fyrstu skref og þau sem eru
lengra komin. Við leggjum mikla
áherslu á að fræða stjórnendur og
starfsfólk um sjálfbærni áður en
við hefjum sjálfbærnivegferðina
því málaflokkurinn er nýr fyrir
mörgum og skilningur á helstu
hugtökum er mismunandi. Því er
mikilvægt að allir sem koma að
stefnumótuninni séu með sama
skilning áður en farið er í samtöl
um hvað sé mikilvægast, hver
markmiðin séu og skýr stefna
mörkuð.
Mörg fyrirtæki sem eru að
stíga sín fyrstu skref leggja mikla
áherslu á umhverfismálin enda
stöndum við frammi fyrir krefj
andi áskorunum á þeim vettvangi
sem blasa við okkur í samfélaginu.
Við hjá EY lítum þó svo á að skoða
þurfi og greina kjarnastarfsemi
fyrirtækis til þess að hafa sem
mest jákvæð áhrif. Með skýra sýn
á hvar áhrif fyrirtækja liggja út
frá kjarnastarfsemi geta fyrirtæki
og stofnanir beitt sér á sem skil
virkastan hátt. Oftar en ekki þegar
kjarnastarfsemi og grunnhags
munaaðilar eru greindir eru fleiri
brýn mál en eingöngu umhverfis
mál sem þarfnast athygli.
Ólík fyrirtæki
og fjölbreytt ráðgjöf
EY hefur aðstoðað fyrirtæki af
mismunandi stærðum og í fjöl
breyttum atvinnugeirum. EY hefur
viðamikla reynslu af stefnumótun,
innleiðingu sjálfbærnistefnu og
við gerð sjálfbærniskýrslna í sam
vinnu við fyrirtæki og stofnanir.
Einnig höfum við veitt ráðgjöf við
grænar fjárfestingar, uppfærslu og
gerð fjármálaramma og sértækar
skýrslur fyrir fjármálamarkaði.
Það er virkilega gaman að sjá
fyrirtæki í auknum mæli vera
að kortleggja og mæla kolefnis
sporið sitt og hefur okkar hlutverk
verið að leiðbeina fyrirtækjum að
greina bæði beina og óbeina losun
þvert á virðiskeðju fyrirtækja. Í
framhaldinu mælum við með að
fyrirtæki setji sér stefnu um að ná
fullu kolefnishlutleysi (e. Net zero
carbon emission). Þegar kolefnis
spor virðiskeðjunnar hefur verið
greint getum við aðstoðað fyrir
tæki að setja sér metnaðarfulla
stefnu út frá Science Based Targets
(SBT) um að draga úr losun og
kolefnisjafna á ábyrgan hátt og fá
það viðurkennt.
Í samstarfi við erlenda sérfræð
inga innan EY veitum við einnig
ráðgjöf til byggingaraðila og fyrir
tækja sem vilja votta byggingar
sínar með alþjóðlega vistvottunar
kerfinu LEED. Með þessu bætist í
f lóru vistvottana í íslenska bygg
ingariðnaðinum. Vottunin er fyrir
nánast allar tegundir bygginga og
veitir ákveðinn ramma fyrir heil
brigðar, skilvirkar og hagkvæmar
grænar byggingar. Vottunin nær
bæði yfir byggingar í notkun og
nýbyggingar, allt frá íbúðarhús
næði yfir í iðnaðarhúsnæði og
hverfisskipulag.
Hringrásarhagkerfið er svo ein
af þeim spennandi lausnum sem
við trúum að muni tengja saman
nýsköpun, fyrirtæki og samfélög
með því að draga úr sóun, fram
leiða nær kaupanda, hanna vörur
til að nýta oftar en einu sinni og
tryggja vörum, efnum og úrgangi
framhaldslíf. Okkar sérfræði
þekking hefur nýst fyrirtækjum og
stofnunum við að innleiða hring
rásarhagkerfið í virðiskeðjuna, í
framleiðsluna sem og í vöruþróun
og annarri nýsköpun.
Mjúku málin orðin nauðsynleg
Sjálfbærni er ekki lengur „mjúku
málin“ ef svo má að orði komast.
Öll fyrirtæki þurfa að huga að
sjálfbærni til þess að vera sam
keppnishæf þó áherslan geti verið
mismunandi. Fyrirtæki með
mengandi kjarnastarfsemi setja
í forgang þær UFSáherslur sem
þau geta breytt nú þegar en þau
þurfa að vera með í sinni stefnu að
fylgjast með eða taka þátt í inn
leiðingu á nýrri tækni og breyt
ingum. En auk þess vera með skýra
stefnu varðandi kolefnishlutleysi
með vottuðum kolefniseiningum.
Fyrirtæki sem eru með lágt kolefn
isspor geta haft önnur mikilvæg
áhrif á samfélag og nærumhverfi
og setja þá meiri fókus þar. Við
finnum fyrir því að þrýstingur frá
fjárfestum, neytendum og birgjum
er að aukast og er gerð krafa um
gagnsæi, traust og metnaðarfull
markmið í öllum UFSþáttum. Við
höfum öll séð það í fjölmiðlum að
orðsporsáhætta fyrirtækja er að
aukast og með því er hægt að færa
rök fyrir því að UFSþættir eru
orðnir nauðsynlegir fyrir áhættu
mat fyrirtækja.
Ef við horfum eingöngu á
umhverfismálin ætti lofts
lagsáhætta að vera tekin inn í
ákvarðanir allra stjórnenda.
Loftslagsáhætta er ekki einungis
af umhverfislegum afleiðingum
loftslagsbreytinga, heldur felur
einnig í sér áhættu af þeim hröðu
samfélagslegu breytingum sem
munu eiga sér stað á næstu árum
vegna loftslagsbreytinga. Fyrir
tæki þurfa að vera meðvituð um
hvar þessi áhætta liggur og hvernig
þau ætla að bregðast við henni. Þá
hafa kröfur hagaðila einnig aukist
umtalsvert á félagslega þætti og
stjórnarhætti fyrirtækja, til að
mynda út frá jafnrétti, mismunun,
gagnsæi og öryggismálum og er
mikilvægt að þetta sé allt skoðað
þegar sjálfbærnin er annars vegar.
Langhlaup en ekki spretthlaup
Tilskipanir Evrópusambandsins
eru alltaf að verða skýrari, yfir
gripsmeiri og stífari hvað varðar
umhverfismál og sjálfbærniupp
lýsingagjöf. Þó að þetta sé ekki enn
þá komið í lög á Íslandi, sjáum við
að þessar reglugerðir eru á leiðinni.
Nýr staðall um sjálfbærniupplýs
ingagjöf fyrirtækja fer að líta dags
ins ljós í Evrópu og er einnig verið
að þróa alþjóðlegan staðal fyrir
sjálfbærniupplýsingar að fyrir
mynd fjárhagslegra upplýsinga
gjafar. Samhæfðir staðlar munu
gera okkur kleift að bera saman
mismunandi fyrirtæki af meiri
vissu og taka upplýstari ákvarðan
ir. Í framhaldinu verður krafa um
að sjálfbærniupplýsingar skráðra
félaga verði endurskoðaðar af
óháðum aðila líkt og fjárhagsupp
lýsingar þeirra. Þó þessir staðlar
séu ekki tilbúnir þá hvetjum við
fyrirtæki til að byrja strax, því
það er ekki lengur spurning hvort
þeir koma heldur hvenær. Það er
mikilvægt að bregðast við kröfum
hagaðila og vera undirbúin undir
komandi lagalegar kröfur til þess
að tryggja framtíðar viðskipta
tækifæri og dragast ekki aftur úr.
Skilningurinn og þekkingin sem
þarf að vera til staðar innan fyrir
tækja verður ekki fengin á einni
nóttu – þetta er langhlaup, ekki
spretthlaup.
Byrja smátt en miða hátt
Það hefur sýnt sig að það er fjár
hagsleg áhætta að leggja ekki
áherslu á málaflokkinn. Farsæl
innleiðing sjálfbærni er lágmörk
un á áhættu og eykur gagnsæi til
hluthafa, eigenda, starfsfólks og er
öllum hagaðilum til góðs. Svo ekki
sé talað um plánetuna okkar því
ef náttúruleg verðmæti skerðast
verulega getum við ekki stundað
viðskipti, það segir sig sjálft.
Góð fyrstu skref væru að byrja
smátt en miða hátt, setja sér stefnu,
raunhæf og mælanleg markmið.
Fyrirtæki eru ólík og þar með er
sjálfbærnivegferð þeirra mismun
andi eftir kjarnastarfsemi. Sjálf
bærnistefnuna þarf að móta í takt
við fyrirtækið og innleiða hana svo
í alla anga fyrirtækisins. Mikilvægt
er að kynna sér málaflokkinn vel
og hvar áherslurnar liggja í mis
munandi atvinnugeirum. Þá er
gott að fara í greiningu á starfsemi
fyrirtækisins og skilgreina hvað er
mikilvægast fyrir starfsemi þess og
menningu. Eitt er þó mikilvægast
og það er að byrja. n
Nánari upplýsingar á ey.is.
Sjálfbærni
eykur verðmæti
Sjálfbærniráðgjöf EY samanstendur af þeim Hólmfríði K. Árnadóttur, Rebekku R. Jóhannesdóttur, Gunnari F. Þorleifssyni og dr. Snjólaugu Ólafsdóttur sviðsstjóra. MYND/ATLI MÁR HAFSTEINSSON
kynningarblað 17FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR