Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 36
Reginn fasteignafélag
hefur á síðustu árum lagt
mikla áherslu á sjálfbærni
í rekstri félagsins og eigna
þess. Sunna Hrönn Sigmars-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá
Regin, segir grænar áherslur
fyrirtækisins uppsprettu fjöl-
margra viðskiptatækifæra.
„Við höfum ráðist í ýmsar aðgerðir
til að draga úr umhverfisáhrifum
fasteignafélagsins og hefur Reginn
unnið að fjölmörgum verkefnum
til að tryggja áframhaldandi þróun
í átt að sjálfbærni í rekstri,“ segir
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, sem
leiðir sjálfbærnimál Regins.
Sunna segir eina helstu sérstöðu
Regins gagnvart öðrum fasteigna-
félögum á Íslandi felast í því að
félagið sjái sjálft um daglegan
fasteignarekstur og viðhald fyrir
leigutaka sína í stórum eignum
eins og Smáralind, Höfðatorgi og
Egilshöll.
„Þar erum við að tala um hús-
vörslu, öryggismál, þrif og ræst-
ingar, orku, sorp, viðhald og svo
framvegis. Félagið sér um þennan
rekstur í einum þriðja hluta af fast-
eignum sínum og sú staða gerir það
að verkum að félagið er í einstakri
aðstöðu til að minnka neikvæð
umhverfisáhrif fasteigna í eigu
félagsins,“ greinir Sunna Hrönn frá.
Grænir leigusamningar
Lykilforsendu þess að hafa enn
meiri áhrif og ná til stærri hluta
eignasafnsins segir Sunna felast í
því að fá leigutaka í lið með félag-
inu og auka sjálfbærni í rýmum
leigutaka.
„Eftirspurn eftir auknu sam-
starfi leigusala og leigutaka um
sjálfbærari rekstur í leigurými er
sífellt að aukast, og staðfesta þjón-
ustukannanir Regins þá þróun.
Félagið er sannfært um að aukin
sjálfbærni í rekstri og grænar
áherslur félagsins séu uppspretta
fjölmargra viðskiptatækifæra og
að þarna verði til nýir leigutakar
og ný tækifæri.“
Hjá Regin er lögð sérstök áhersla
á sjálfbærni í þjónustu við við-
skiptavini og þróaðar hafa verið
ýmsar lausnir sem snúa að því.
„Meðal annars hefur verið ein-
blínt á lausnir, vörur og þjónustu
sem stuðla að sjálfbærari rekstri
og eru aukin tekjulind eða leiða
til sparnaðar fyrir viðskiptavini
og félagið, ásamt því að stuðla að
aukinni vellíðan í leigðum rýmum
Regins,“ upplýsir Sunna Hrönn.
Í takt við þessar áherslur hóf
Reginn í lok árs 2021 að bjóða við-
skiptavinum sínum upp á græna
leigusamninga.
„Með grænum leigusamningum
vill Reginn fá viðskiptavini í lið
með sér og auka sjálfbærni í eigna-
safni félagsins, með sameiginlega
hagsmuni að leiðarljósi. Grænn
leigusamningur er samkomulag á
milli leigusala og leigutaka um að
minnka kolefnisspor í hinu leigða
rými og bæta nýtingu auðlinda
ásamt því að stuðla að aukinni vel-
líðan starfsfólks,“ útskýrir Sunna.
Jákvæð og sjálfbær samvinna
Til að auðvelda viðskiptavinum
Regins vegferðina í átt að sjálf-
bærari rekstri hefur Reginn unnið
leiðbeiningar fyrir viðskiptavini
sína um hvernig hægt er að auka
sjálfbærni í rekstri fasteigna.
„Félagið aðstoðar síðan við-
skiptavini við að setja sér mark-
mið að aukinni sjálfbærni í hinu
leigða rými og vinna áætlanir um
aðgerðir til að ná settum mark-
miðum. Með þessu samstarfi nær
félagið til stærri hluta eignasafns
síns og miðlar bæði þekkingu og
reynslu til viðskiptavina sinna.
Afrakstur þessarar samvinnu er
því jákvæður fyrir báða aðila,
en umfram allt jákvæður fyrir
umhverfið,“ segir Sunna Hrönn. n
Reginn er í Hagasmára 1 í Kópa-
vogi. Sími 512 8900. Netfang:
reginn@reginn.is. Sjá nánar á
reginn.is
Sjálfbærnivegferðin býr til viðskiptatækifæri
Sunna Hrönn
Sigmarsdóttir er
framkvæmda-
stjóri Regins.
Hér stendur
hún í einni
glæsilegustu
hjólageymslu
landsins, sem er
við innganginn
Hagkaupsmegin
í Smáralind.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Hjónin Íris Ann Sigurðar-
dóttir og Lucas Keller eiga og
reka veitinga- og sælkera-
staðinn Coocoo’s Nest úti
á Granda og hinn frumlega
og skemmtilega bar Luna
Flórens. Hjónin kynntust á
Ítalíu á sínum tíma en Lucas
er frá Kaliforníu og var að
læra matreiðslu og Íris Ann
var að læra ljósmyndun og
sjónlist.
sjofn@frettabladid.is
Saman létu þau drauminn rætast
um að opna veitingastaðinn The
Coocoo’s Nest þar sem ástríða
þeirra og sköpun fær að njóta sín.
Saman eiga þau tvo dásamlega
stráka, Indigo og Sky. Sjálfbærni og
samfélagsábyrgð hefur ávallt verið
þeim hugleikin og þegar að rekstr-
inum kemur leggja þau sig fram um
að sýna ábyrgð í verki.
„Það er vissulega í mörg horn
að líta þegar kemur að sjálfbærni
og samfélagsábyrgð fyrirtækja og
alltaf svigrúm til að gera betur.
Stundum hugsa ég að líf okkar
væri auðveldara ef við værum ekki
svona samviskusöm hvað þetta
varðar. En það fylgir í raun ástríðu
okkar að gera hlutina vel og rétt,“
segir Íris og bætir við að frá upphafi
hafi þau ávallt haft ástríðu fyrir að
gera þessa hluti vel.
„Við erum mjög meðvituð um
hvaðan hráefnin okkar koma og
gerum okkar besta til að versla líf-
rænt og versla við minni birgja sem
eru einnig með svipaðar hugsjónir.
Eirný Sigurðardóttir, ostadrottning
og stofnandi Matarmarkaðar
Íslands, spilaði stórt hlutverk á
sínum tíma í að tengja okkur við
fólk hér heima sem er að gera stór-
kostlega hluti. Það er alveg hreint
magnað hvað það eru margir
bændur að rækta hér heima af
miklum metnaði, það væri gaman
að sjá þá fá meiri stuðning til þess
að hvetja það fólk áfram.“
Innblásturinn kemur frá Ítalíu
Þegar kemur að flokkun á rusli
hugsa Íris og Lucas út í hvert
smáatriði. „Við reynum einnig að
vanda okkur við að flokka allt rusl
vel. Við flokkum allt plast, pappír,
ál, lífrænan úrgang og fleira. Mark-
miðið er þó að vera með eins lítið
af lífrænu rusli og við getum og
við gerum það með því að nýta hrá-
efnin eins vel og hægt er. Með því
að vera með rétti dagsins er hægt
að finna upp á nýjum uppskriftum
til að nýta allan mat vel sem er
annars ekki á matseðli. Lucas, sem
er kokkur, vann á Michelin-stjörnu
veitingastað á Ítalíu, sem var einn
af fáum stöðum með stjörnu sem
framleiðir aðeins grænmetisfæði,
en á þeim stað var mikil áhersla á
að nýta allt hráefni og þaðan fékk
hann mikinn innblástur. Það snýst
um að hugsa stundum út fyrir
kassann og prófa nýjar uppskriftir
með það sem er til. Ég til að mynda
opna oft ísskápinn og finnst ekkert
vera til, svo kemur Lucas og býr til
þriggja rétta máltíð!“
Kostar meira að vera sjálfbær
„Það sem er erfiðast við að vera
sjálfbær er að það kostar meira en
ella. Bæði það að kaupa lífrænt og
að flokka rusl kostar töluvert meira
en að gera það ekki. Eflaust myndu
fleiri standa sig betur í þessum
málum ef það væri ekki raunin.
Það væri dásamlegt ef hægt væri
að styðja þau fyrirtæki sem sinna
þessum málum vel, eða búa til ein-
hvers konar hvatningarúrræði. En
þrátt fyrir aukakostnað held ég að
samfélagsábyrgð fyrirtækja skili
sér margfalt til baka. Við finnum að
okkar fastakúnnar þekkja það sem
við leggjum af mörkum og kjósa
að styðja okkur vegna þessa, það
skín alltaf í gegn. Við erum með
frábæran fastakúnnahóp sem við
sjáum að eru með sömu hugsjónir,
fólk sem vill gera vel fyrir sam-
félagið og kýs að hátta pening-
unum sínum þannig að styðja þau
fyrirtæki sem stuðla að því,“ segir
Íris að lokum. n
Nýta allan mat og búa til nýja rétti
Fjölskyldan er
samtaka í því
að fara vel með
jörðina.
MYND/AÐSEND
22 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR