Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 40
Rík áhersla á samfélagslega ábyrgð
Fannar, sem er gæða- og umhverfisstjóri, bendir á að Bláa lónið hafi veitt
fjárhagslega styrki til fjölda verkefna í samfélaginu og þannig eflt íþrótta-
starf, menningarviðburði og lýðheilsu hvers konar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Okkur er annt um
hvert annað hér í
Bláa lóninu og fyrir-
tækið leggur áherslu á
að öllum líði vel í
vinnunni. Þannig
tryggjum við best
vellíðan gesta okkar og
sköpum einstakar
minningar.
Bláa lónið er með stærstu
vinnuveitendum á Suður-
nesjum og einn vinsælasti
áfangastaður ferðamanna á
Íslandi. Fyrirtækið sem slíkt
finnur til samfélagslegrar
ábyrgðar gagnvart landi og
þjóð, að sögn Fannars Jóns-
sonar, gæða- og umhverfis-
stjóra Bláa lónsins.
Fannar segir að Bláa lónið leggi
ríka áherslu á að styðja vel við
samfélagsleg verkefni og geri það
með ýmsu móti.
„Við erum með virðisskapandi
rekstur sem byggist á fjölnýtingu
náttúruauðlinda í Svartsengi
sem voru upprunalega einungis
nýttar í framleiðslu á rafmagni og
hita fyrir nærsamfélagið. Þannig
stuðlum við að hringrásarhagkerfi
byggðu á virðingu fyrir náttúrunni
og umhverfinu,“ segir Fannar og
bætir við að það sé fyrir tilstilli
öflugs samfélags sem fyrirtæki
eins og Bláa lónið verður til og
getur dafnað jafn vel og það hefur
gert síðastliðna áratugi.
Ótvíræður árangur
Spurður á hvaða sviðum sam-
félagslegrar ábyrgðar Bláa lónið
hafi helst náð árangri, er Fannar
fljótur til svars. „Grímur Sæmund-
sen, forstjóri Bláa lónsins, stofnaði
fyrirtækið á sínum tíma til þess
að rannsaka undraverða eigin-
leika jarðsjávarins sem til féll í
Svartsengi í þeim tilgangi að hjálpa
fólki með húðvandamál,“ rifjar
hann upp. Hann segir að í þrjátíu
ára sögu Bláa lónsins hafi átt sér
stað samfelld rannsóknavinna í að
finna nýja eiginleika jarðsjávarins
og nýjar leiðir í að skilja og nýta
þennan einstaka lækningamátt
sem býr í honum til að auka vel-
líðan og heilsu fólks.
Fannar minnir á að Bláa lónið
reki einnig Lækningalind fyrir
fólk með sóríasis, þar sem þær
náttúrulegu meðferðir sem eru í
boði hafi hjálpað fólki að halda
niðri einkennum sjúkdómsins.
Síðastliðin ár hafi Bláa lónið boðið
þessa þjónustu meðferðargestum
og ríkinu að kostnaðarlausu.
„Við lítum á það sem samfélags-
lega ábyrgð okkar að veita þessa
þjónustu,“ útskýrir hann.
Styrkir grunnstoðir samfélagsins
Ásamt því að bjóða upp á fríar
meðferðir í Lækningalindinni þá
segir Fannar Bláa lónið hafa veitt
fjárhagslega styrki til fjölda ann-
arra samfélagsverkefna og þannig
eflt íþróttastarf, menningarvið-
burði og lýðheilsu hvers konar.
„Allt styrkir þetta grunnstoðir
samfélagsins,“ bendir hann á.
Fannar tekur fram að þann góða
árangur sem hafi náðst megi ekki
síst þakka öflugu og hugmynda-
ríku starfsfólki, sem komi að
stórum hluta úr nærsamfélaginu.
Það skipti öllu máli við að skapa
framúrskarandi upplifun og vel-
líðan gesta Bláa lónsins. „Okkur
er annt um hvert annað hér í Bláa
lóninu og fyrirtækið leggur áherslu
á að öllum líði vel í vinnunni.
Þannig tryggjum við best vellíðan
gesta okkar og sköpum einstakar
minningar,“ segir hann.
Innleiðing heimsmarkmiða
Sameinuðu þjóðanna
Á síðasta ári greindu fjölmiðlar
frá því að Bláa lónið hygðist inn-
leiða heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna.
Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna ganga út á sjálfbæra
þróun og krefjast þátttöku allra
þjóða og samstarfs ólíkra hags-
munaaðila til að öll heimsbyggðin
geti lifað við góð og varanleg
lífsgæði. Fannar segir heims-
markmiðin samræmast vel sýn
og stefnu Bláa lónsins um að bæta
heilsu og vellíðan fólks í sátt við
umhverfið.
„Fyrirtækið getur svo haft meiri
áhrif á sum markmið fremur en
önnur og í því skyni hefur það
unnið að forgangsröðun aðgerða
og vægi markmiða með starfsfólki
sínu,“ segir hann.
Hvernig hefur gengið að innleiða
þessi markmið og stefnið þið að því
að gera enn betur í þessum efnum?
„Eins og ég segi þá hafa áherslur
fyrirtækisins síðastliðin ár
fallið mjög vel að mörgum þessara
markmiða og því hefur innleiðing
gengið vel,“ svarar hann, „en til að
ná enn meiri árangri höfum við
tengt meginmarkmið og áherslur
fyrirtækisins fyrir 2022 við heims-
markmiðin í enn ríkari mæli og
munum halda þeirri vinnu áfram á
komandi árum.“
Fannar heldur áfram. „Við í Bláa
lóninu mætum öll í vinnuna til að
auka ánægju, vellíðan og heilsu
okkar gesta og reynum þannig
að hafa jákvæð áhrif á heiminn
sem við öll búum í. Ég held að við
getum nú verið sammála um að
það sé nokkuð sem við þurfum
öll á að halda, ekki hvað síst um
þessar mundir.“
Stöðugar umbætur
Þá getur Fannar þess að frá 2019
hafi Bláa lónið gefið út árlega sam-
félagsskýrslu þar sem útlistuð eru
nákvæmlega markmið fyrirtækis-
ins og árangur fyrri ára, markmið
komandi árs og langtímamarkmið
á öllum sviðum samfélagslegrar
ábyrgðar. Samfélagsskýrslan taki
mið af svokölluðum GRI stöðlum,
alþjóðlega viðurkenndum stöðlum
um miðlun upplýsinga um sam-
félagslega ábyrgð.
„Við vinnum ávallt að umbótum
í rekstri til að uppfylla þarfir og
væntingar okkar viðskiptavina,
sem eru í stöðugri framþróun,“
segir Fannar.
Hann undirstrikar mikilvægi
þess að samfélagið finni og skilji
samfélagslegan ávinning af vexti
og velgengni fyrirtækja innan
þess og það sé á ábyrgð fyrirtækja
að koma því til skila. Þess vegna
standi Bláa lónið fyrir útgáfu sam-
félagsskýrslnanna fyrrnefndu. „Ég
hvet alla til að kynna sér þessar
skýrslur,“ segir hann brosandi og
bætir við að hægt sé að nálgast þær
á heimasíðu fyrirtækisins, www.
bluelagoon.com.
Sumir eru þeirrar skoðunar að
samfélagsleg ábyrgð hafi aldrei
verið jafn mikilvæg og nú. Er
Fannar sammála því?
„Samfélagsleg ábyrgð hefur allt-
af verið mikilvæg en með aukinni
vitundarvakningu síðastliðinna
ára um málefni umhverfislegra og
félagslegra þátta þá hefur mikil-
vægi upplýsingaflæðis og aðgerða
í þeim málaflokkum aukist og nú
skipta þau orðið jafn miklu máli
og efnahagslegir þættir. Þessar
meginstoðir samfélagslegrar
ábyrgðar hafa einnig mikil áhrif á
orðspor og vörumerki fyrirtækja í
dag og til framtíðar.“
Fannar segir að Bláa lónið leggi
ríka áherslu á að styðja vel við
samfélagsleg verkefni og geri það
með ýmsu móti.
„Því þannig tryggjum við best
blómlega framtíð okkar allra og
bætum heilsu og vellíðan fólks í
sátt við náttúru,“ segir hann og
leggur áherslu á orð sín.
Er þetta langtímaverkefni?
Hann kinkar kolli. „Algjörlega,
og það er samofið stjórnkerfi Bláa
lónsins.“ n
Bláa lónið býður upp á Lækningalind fyrir fólk með sóríasis, sem er náttúruleg meðferð.
26 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR