Fréttablaðið - 25.03.2022, Qupperneq 41
Loftslagsmál eru orkumál og
orkufyrirtæki í heiminum
munu leika lykilhlutverk
í lausn loftslagsvandans.
Til að bregðast við breyttu
umhverfi lagðist Lands-
virkjun í heildstæða stefnu-
mótun á árunum 2020–2021.
Ný stefna fyrirtækisins
kjarnar áherslu fyrirtækisins
á loftslagsaðgerðir og sjálf-
bærni í stóru og smáu.
Þórólfur Nielsen, forstöðumaður
stefnumótunar og sjálfbærni hjá
Landsvirkjun, segir að framtíðar-
sýn orkufyrirtækis þjóðarinnar sé
„sjálfbær heimur, knúinn endur-
nýjanlegri orku“. „Hlutverk okkar
er að hámarka verðmæti þeirra
endurnýjanlegu orkulinda sem
fyrirtækinu er trúað fyrir, með
sjálfbærni og hagkvæmni að
leiðarljósi,“ segir hann. „Úr þessu
má lesa að við hjá Landsvirkjun
ætlum að taka virkan þátt í að ýta
heiminum í átt að sjálfbærni og
viljum vanda okkur og gera það
á réttan hátt. Við ætlum okkur
leiðandi hlutverk við að stuðla að
orkuskiptum og kolefnishlutleysi
og viljum gera það í eins víðtækri
sátt og frekast er unnt við bæði
náttúru og menn.“
Ósjálfbær orkunotkun
Þórólfur segir að heimurinn standi
á tímamótum og orkunotkun
mannkyns sé ósjálfbær. „Rúmlega
tveir þriðju af losun gróðurhúsa-
lofttegunda í heiminum koma
frá orkuvinnslu vegna brennslu
jarðefnaeldsneytis og á því þarf að
verða breyting. Þjóðir heims ætla
að halda hnattrænni hlýnun innan
við 1,5°C og við þurfum að halda
betur á spöðunum ef það á að nást.
Við þurfum að breyta neysluvenj-
um okkar, auka orkunýtni, hætta
að brenna olíu, kolum og gasi og
margfalda hlut endurnýjanlegrar
orku.“
Hann segir að Ísland ætli ekki
að skila auðu. „Stjórnvöld hafa sett
okkur metnaðarfull markmið.
Við stefnum að kolefnishlutleysi
fyrir árið 2040 og að hætta alfarið
olíu- og bensínnotkun fyrir sama
tíma. Verkefnið snýr fyrst og síðast
að bílum, skipum og flugvélum og
er stórt og flókið. Við búum þó að
dýrmætri reynslu af fyrri orku-
skiptum þegar við hættum að nýta
mengandi orkugjafa til húshitunar
og raforkuframleiðslu og tókum í
staðinn að nýta innlenda endur-
nýjanlega orku. Sú framsýni sem
við sýndum á þessum tíma hefur
ekki einungis skilað óumdeildum
loftslagsávinningi heldur hefur
hún einnig byggt ríkulega undir
þau lífskjör sem við í dag erum
vön. Ísland á raunhæft tækifæri til
að verða fyrsta þjóð heims sem er
alfarið óháð jarðefnaeldsneyti og
um leið alfarið orkusjálfstæð.“
Nýverið skilaði vinnuhópur
á vegum umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytisins grænbók
um stöðu og áskoranir í orku-
málum með vísan til markmiða
og áherslna stjórnvalda í loftslags-
málum. Í grænbókinni kemur fram
að ef ná eigi þeim loftslagsmark-
miðum sem stjórnvöld hafa sett þá
þarf að taka frekari skref í orku-
öflun. Þórólfur bendir á að í græn-
bókinni séu orkuskiptin ein og
sér sögð kalla á 16 TWst í aukinni
orku fram til 2040 og aukin orku-
þörf almennings og atvinnulífs er
metin aðrar 8 TWst á því tímabili.
„Samanlagt er þetta meira en öll
raforkuvinnsla á Íslandi í dag,“
segir hann. „Hver nákvæmlega
orkuþörfin verður mun framtíðin
ein leiða í ljós. Það sem er þó ljóst
er að orkuþörfin er veruleg og
orkufyrirtækin munu verða í lykil-
hlutverki þegar kemur að því að ná
loftslagsmarkmiðum Íslands.“
Þörf á víðtækri sátt
Þórólfur segir blasa við að verk-
efnið sé stórt. „Það blasir einnig
við hversu mikilvægt það er að ná
eins víðtækri sátt og hægt er um
hvernig við nálgumst verkefnið,“
segir hann. „Það að flytja okkar
losun til annarra landa gerir ekki
gagn. Við verðum að feta meðalveg
loftslagsaðgerða, náttúruverndar
og þess að styðja við lífskjör í
landinu. Pólitísk forysta í mark-
miðasetningu og nálgun okkar
Íslendinga á verkefnið er mikilvæg
sem aldrei áður. Í þessu tilliti er
rétt að minnast á að stjórnvöld
hafa gefið út að lög um verndar- og
orkunýtingaráætlun verði endur-
skoðuð frá grunni á kjörtímabilinu
með það að markmiði að tryggja
nýtingu orkuauðlinda með hag-
kvæmum og sjálfbærum hætti. Það
er von Landsvirkjunar að sú endur-
skoðaða löggjöf og í framhaldinu
vönduð framkvæmd þeirra laga
muni hjálpa okkur Íslendingum að
byggja undir sem víðtækasta sátt
og varða veginn fram á við í góðu
jafnvægi loftslagsaðgerða, náttúru-
verndar, efnahags og lífskjara.“
Ný svið styðja við stefnu
Eins og Þórólfur nefndi í upphafi
lagðist Landsvirkjun í heildstæða
stefnumótun. Til að styðja við þá
stefnu og tryggja að fyrirtækið
nái þeim árangri sem að var stefnt
voru gerðar víðtækar skipulags-
breytingar hjá fyrirtækinu. „Nýtt
svið samfélags og umhverfis var
sett á laggirnar til að lyfta betur
upp og samræma frekar áherslur
fyrirtækisins í þessum málum og
situr framkvæmdastjóri sviðsins í
framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Sviðið styður við aðrar einingar
fyrirtækisins í vegferð okkar að
enn aukinni samfélagslegri ábyrgð,
virkara samtali og samstarfi,
grænni rekstri og kolefnishlut-
leysi. Við gerum okkur fulla grein
fyrir því að beislun endurnýjan-
legra auðlinda kallar á inngrip í
náttúruna og við ætlum okkur að
vanda okkur og gera hlutina vel. Þá
ætlum við að vera enn virkari þátt-
takandi í þeim samfélögum sem
við störfum,“ segir Þórólfur.
Hann segir að stefna fyrirtækis-
ins leggi einnig áherslu á skapandi
samstarf. Í nýju skipuriti var því
orkutengdri nýsköpun búið gott
rúm á nýju sviði viðskiptaþróunar
og nýsköpunar. „Við höfum þegar
stofnað til fjölda samstarfsverk-
efna um orkutengda nýsköpun
sem við erum mjög spennt fyrir
en þar má nefna Eim, sem hefur
bætta nýtingu orkuauðlinda og
aukna nýsköpun í orkumálum á
Norðausturlandi að leiðarljósi,
Orkídeu, sem ýtir undir framgang
hátæknimatvælaframleiðslu og líf-
tækni á Suðurlandi með sjálfbæra
verðmætasköpun að leiðarljósi, og
Bláma, sem stuðlar að nýsköpun
og orkuskiptum á Vestfjörðum
með áherslu á sjótengda starfsemi.
Í þessu tilliti má einnig nefna að
Landsvirkjun var á meðal stofnað-
ila að rannsóknarsetri um sjálf-
bærni við Háskólann í Reykjavík
en setrið sinnir menntun og rann-
sóknum á nýtingu endurnýjan-
legrar raforku og áhrifum hennar
á umhverfi og samfélag, þvert á
fræðasvið háskólans.“
Þórólfur segir að hjá Landsvirkj-
un stefni starfsfólk sífellt að því að
bæta sig og ná settum markmið-
um. „Því til staðfestingar höfum
við tengt fjármögnun fyrirtækisins
saman við markmið okkar í sjálf-
bærni. Þannig er öll fjármögnun
fyrirtækisins síðustu ár græn eða
sjálfbærnitengd og vaxtakjör á
sjálfbærnitengdu lánunum okkar
taka mið af skilgreindum mark-
miðum okkar á sviði sjálfbærni.
Við erum sérstaklega stolt af braut-
ryðjendastarfi okkar á þessu sviði
en nefna má að við vorum fyrsti
útgefandi grænna skuldabréfa á
Íslandi árið 2018 og einn af fyrstu
útgefendum grænna skuldabréfa
á lokaða bandaríska skuldabréfa-
markaðinum. 27% af allri okkar
fjármögnun eru í dag ýmist græn
eða sjálfbærnitengd.“
Landsvirkjun er tilbúin fyrir
spennandi framtíð. „Undanfarinn
áratug eða svo höfum við lagt ríka
áherslu á að treysta efnahag fyrir-
tækisins og höfum náð þeim mark-
miðum sem við settum okkur,“
segir Þórólfur. „Við höfum aukið
við orkuvinnslu fyrirtækisins og
bætt nýtingu kerfisins. Við höfum
aukið á fjölbreytni viðskipta okkar
og endursamið við viðskiptavini
um raforkuverð sem er samkeppn-
ishæft fyrir báða aðila. Þá höfum
við greitt niður skuldir og stöndum
í dag jafnfætis systurfyrirtækjum
okkar á Norðurlöndum hvað
varðar aðgengi að fjármagni og
lánshæfi. Allt þetta hefur dregið
úr áhættu í okkar rekstri og aukið
svigrúm okkar, meðal annars til
arðgreiðslna og frekari öflunar
endurnýjanlegrar orku. Við búum
í dag að sterkum efnahag og höfum
skýra stefnu í umhverfis- og sam-
félagsmálum. Við erum því tilbúin
að taka að okkur leiðandi hlutverk
í vegferð okkar allra að sjálfbærari
heimi, knúnum endurnýjanlegri
orku,“ segir Þórólfur Nielsen, for-
stöðumaður stefnumótunar og
sjálfbærni hjá Landsvirkjun. n
Við ætlum að gera hlutina vel
„Við ætlum að taka virkan þátt í að ýta heiminum í átt að sjálfbærni,“ segir Þórólfur Nielsen, forstöðumaður hjá Landsvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hver nákvæmlega
orkuþörfin verður
mun framtíðin ein leiða
í ljós. Það sem er þó
ljóst er að orkuþörfin er
veruleg og orkufyrir-
tækin munu verða í
lykilhlutverki þegar
kemur að því að ná
loftslagsmarkmiðum
Íslands.
kynningarblað 27FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR