Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 42
Mjólkursamsalan ein-
setur sér að starfa í sátt við
umhverfi sitt og náttúru
landsins hverju sinni. Með
stefnu sinni leitast fyrir-
tækið við að endurspegla
umhverfisvæn sjónarmið í
öllum skrefum virðiskeðj-
unnar og leggja þar með ríka
áherslu á bestu umgengni til
verndar umhverfinu og nátt-
úru landsins.
Á undanförnum árum hefur MS
tekið stór skref í átt að sjálfbærni,
með því að draga úr kolefnisspori
og hámarka nýtingu hráefna.
Ásamt því að hafa skipt yfir í
umhverfisvænni mjólkurumbúðir
og minnkað plastnotkun, hefur
fyrirtækið ráðist í stór fjárfest-
ingarverkefni í framleiðsluhluta
starfseminnar. „Fyrir tveimur
árum tókum við síðustu skrefin
í orkuskiptum hjá fyrirtækinu í
gufuframleiðslu. Mjólkursam-
salan slökkti á síðasta olíukatli
fyrirtækisins haustið 2020 og
þannig náðum við því markmiði
að öll gufa, sem er nauðsynleg til
mjólkurvöruframleiðslu, er nú
framleidd með endurnýjanlegri
orku. Mjólkursamsalan er eina
fyrirtækið í mjólkurframleiðslu
í heiminum sem nýtir alfarið
umhverfisvæna orku í vinnslu á
mjólkurafurðum, svo vitað sé,“
segir Margrét Gísladóttir, sérfræð-
ingur á hagsýslu- og samskipta-
sviði Mjólkursamsölunnar.
Etanólframleiðsla af stað í haust
Fyrir fimm árum var tekið risa-
skref í umhverfismálum tengdum
matvælaframleiðslu hér á landi
þegar opnuð var ný verksmiðja á
Sauðárkróki, Íslenskar mysuaf-
urðir, sem er í eigu Mjólkursamsöl-
unnar og Kaupfélags Skagfirðinga.
„Þá hófum við framleiðslu á pró-
teindufti úr um 50 milljón lítrum
af mysu sem áður var ónýtt.
„Stefnt er á að etanólframleiðsla úr
mjólkursykri muni einnig hefjast
þar með haustinu. Þá erum við í
raun farin að fullnýta hráefnið og
eina sem verður eftir við fram-
leiðsluna er vatn,“ segir Margrét.
Dregið úr matarsóun
Mjólkursamsalan hefur einnig um
árabil lagt áherslu á umhverfis-
vænar umbúðir og endurvinnslu
þeirra. Mjólkurfernur MS eru
umhverfisvænustu umbúðir sem
völ er á fyrir mjólk og bera 66%
minna kolefnisspor en áður. Var
Mjólkursamsalan fyrst fyrirtækja
sinnar tegundar til að nýta sér
þennan vistvæna valmöguleika
fyrir alla sína mjólk og það munar
um minna, þar sem fyrirtækið
pakkar árlega mjólk í 25 milljónir
mjólkurferna. Þá höfum við einnig
einbeitt okkur að því að minnka
matarsóun og merkjum nú fern-
urnar okkar „Best fyrir – oft góð
lengur“.
Matvörur sem eru merktar með
„best fyrir“ eru oft í lagi eftir þá
dagsetningu, svo lengi sem lykt
og bragð er í lagi og ef varan hefur
verið geymd rétt. n
MS leggur áherslu á umhverfisvæna framleiðslu
Margrét Gísla-
dóttir, sér-
fræðingur á
hagsýslu- og
samskiptasviði
Mjólkursam-
sölunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þá þyrfti hún að hafa sjálf-
bæra nýtingu og hringrásar-
hagkerfið að leiðarljósi, segir
Eva Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Podium ehf.
„Stærsta breytingastjórnunar-
verkefni okkar tíma er að tryggja
áframhaldandi tilveru okkar á
jörðinni, þar sem jafnvægi er á
milli lífsgæða og almennrar hag-
sældar. Þegar fjallað er um hagsæld
og lífsgæði þjóða er ekki nóg að
horfa eingöngu til efnahagslegra
þátta eins og vergrar landsfram-
leiðslu eða hagvaxtar. Mæla þarf
aðra þætti sem hafa áhrif á daglegt
líf fólks, eins og heilsu, húsnæði,
atvinnu, menntun, tekjur og
fleira.“ Þetta segir Eva Magnús-
dóttir, stofnandi og framkvæmda-
stjóri Podium ehf.
Eva hefur leitt stefnumótun og
innleiðingu stefnu með sjálfbærni
að leiðarljósi hjá fjölda fyrirtækja,
sveitarfélaga og félagasamtaka frá
2014. Podium veitir stjórnendum
ráðgjöf við að auka sjálfbærni í
rekstri og stuðst er við alþjóðlega
staðla og viðmið, svo sem eins og
GRI, UFS, UN Global Compact
og heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna.
Hagvöxtur á kostnað jarðar
„Ósjálfbær hagvöxtur er ekki
góð hugmynd sé hann fenginn á
kostnað jarðarinnar. Við þurfum að
huga vel að því hvaða áhrif aðgerðir
okkar hafa. Hugsum okkur ef jörðin
væri geimskip, þá þyrfti hún að
vera sjálfbær og það yrði að vera
jafnvægi á milli getu geimskipsins
til þess að styðja við líf íbúa þess og
væntinga þeirra. Þú færir ekki út í
búð í miðri geimferð – yrðir annað-
hvort að hafa allt til taks eða notast
við sjálfbæra nýtingu og hring-
rásarhugsun um borð.
Sjálfbærni og samfélagsleg
ábyrgð hafa úrslitaáhrif á framtíð
okkar á jörðinni. Ríkið, sveitarfélög,
fyrirtæki, félagasamtök og ein-
staklingar þurfa að taka höndum
saman og innleiða sjálfbærni í sitt
daglega líf. Samvinna er mikilvæg
á öllum stigum og gott dæmi er
samvinnuverkefni íslenskra stjórn-
valda, samráðshópur sem starfandi
er á vegum forsætisráðuneytis, og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um heimsmarkmiðin. Verkefnið
er stuðningsverkefni fyrir sveitar-
félög um innleiðingu heimsmark-
miðanna og felur meðal annars í
sér verkfærakistu um innleiðingu
heimsmarkmiðanna. Með slíku
samstarfi fá sveitarfélög ráðgjöf
og fagþekkingu og styðja hvert við
annað.“
Að virkja eða ekki virkja
Eva segir að sem betur fer séu fyrir-
tæki og mörg sveitarfélög á Íslandi
almennt að standa sig vel í sinni
sjálfbærnivegferð en að við þurfum
saman sem þjóð að taka á stóru
málunum sem eru orkuskiptin og
innleiðing hringrásarhagkerfisins
á öllu landinu. Við þurfum þannig
líka að finna þetta jafnvægi á milli
náttúruverndar og sjálfbærrar
nýtingar á auðlindum jarðar. Það
eru stóru málin sem við þurfum að
ná sátt um, segir hún. „Að virkja eða
ekki virkja.
Ég er svo lánsöm að hafa fengið
að fylgja mörgum metnaðarfullum
fyrirtækjum og sveitarfélögum á
þeirra sjálfbærnivegferð og mark-
miðasetningu. Vinnustofur þar
sem stjórnendur og starfsmenn,
kjörnir fulltrúar, skólafólk, börn og
unglingar koma saman og ákveða
framtíðina, getur verið mikil upp-
ljómun. Þegar unnið er með heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna
ríkir almenn sátt því það er enginn
sérstaklega ósammála um að þau
búi til betri heim,“ segir hún.
Miðlun og sjálfbærniáhætta
Að miðla því sem vel er gert getur
breytt áliti okkar á fyrirtækjum
og við höfum val sem neytendur
um hvert við beinum viðskiptum
okkar. Við þurfum að geta kynnt
okkur vel hvernig fyrirtækin
standa sig í sjálfbærnimiðlun.
Lagabreytingar um upplýsingagjöf
sjálfbærniupplýsinga, sem boð-
aðar hafa verið hjá ESB og kynntar,
munu að öllum líkindum hafa
áhrif hér á landi þegar þær taka
gildi. Þannig verður mögulegt að
mata inn sjálfbærniupplýsinngar
í evrópskan gagnagrunn og fyrir-
tæki verða skylduð til þess að nota
sjálfbærni staðla ESB. Lögin ná til
stærri hóps fyrirtækja og fyrir-
tækjunum ber að tilgreina áhrif sín
á umhverfi og samfélag og einnig
leggja áherslu á sjálfbærniáhættu.
Allflest íslensk stórfyrirtæki og
einhver minni miðla nú þegar sjálf-
bærniupplýsingum sínum á mjög
skilmerkilegan hátt í skýrslum.
Aftur á móti mættu fleiri fara í ítar-
legri greiningu á sjálfbærniáhættu
sinni. Það væri fróðlegt að sjá
þannig vinnu ná flugi í framtíðinni,
því það myndi leggja grunninn að
framtíðarmarkmiðum og enn ítar-
legri skýrslugjöf. n
Podium er með skrifstofu í Leir-
vogstungu 20 í Mosfellsbænum,
sími hjá Evu er 858 6301.
Ef jörðin væri geimskip
Eva Magnúsdóttir rekur ráðgjafarfyrirtækið Podium. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sjálfbærni og
samfélagsleg
ábyrgð hafa úrslitaáhrif
á framtíð okkar á jörð-
inni.
28 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR