Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 43
Við fögnum einnig
sjálfbærum skref-
um hjá samkeppninni
enda er þetta ekki
keppni.
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Íslandsbanki vill vera
hreyfiafl til góðra verka og
þessi stefna mótar alla starf-
semi bankans, bæði grunn-
starfsemi hans og allar
hliðar rekstursins. Bankinn
vonast til að Ísland verði
leiðandi í sjálfbærni og segir
að fjármagnseigendur geti
haft mikil áhrif með því að
styðja sjálfbær verkefni.
„Það eru þrjú ár síðan bankinn fór
í mikla stefnumótunarvinnu og
kynnti í kjölfar hennar nýja stefnu
þar sem yfirlýst hlutverk bankans
er að vera hreyfiafl til góðra verka.
Þetta er svo búið að verða hálfgerð-
ur tískufrasi síðan og fleiri hafa
notað hann, sem er bara frábært,
við sjáum að áhuginn á sjálfbærni
er að aukast dag frá degi,“ segir
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir,
forstöðumaður stefnumótunar
og sjálfbærni hjá Íslandsbanka.
„En hjá okkur er þetta annars
vegar skírskotun í grunnstarfsemi
banka, að taka á móti sparnaði og
lána hann út til arðbærra og virðis-
skapandi verkefna, en svo erum
við líka að vísa í aukna sjálfbærni
í öllu okkar starfi. Þannig að þetta
snýr bæði að því sem við gerum
dags daglega og að langtímasýn
okkar.
Við leggjum mjög ríka áherslu á
að við náum mestum árangri með
því að virkja sem flesta starfsmenn
bankans. Við erum 700 og þetta er
eitt af stærri fyrirtækjum landsins
og okkar markmið er að 100%
starfsmanna vinni í aukinni sjálf-
bærni hluta af tíma sínum. Þannig
að í stað þess að vera með sérstök
stöðugildi sem snúa að þessu eru
allir að sinna þessu á sínu sviði,“
útskýrir Kristrún. „Þannig eru þeir
sem starfa í innkaupum til dæmis
að huga að sjálfbærni í innkaupum
og þeir sem eru í útlánum að hugsa
um sjálfbærni í verkefnunum sem
er verið að fjármagna.“
Sjálfbærni er ekki keppni
„Okkur finnst mjög gaman að fá
mælingar sem sýna að við séum
framarlega, til dæmis erum við
með hæstu einkunn sem hefur
verið gefin í sjálfbærniáhættumat-
inu hjá Reitum og í fyrra fengum
við líka Kuðunginn, umhverfis-
viðurkenningu frá umhverfis- og
auðlindaráðuneyti, fyrir starf í
umhverfismálum út frá því sem
við erum að gera með lánasafnið,“
segir Kristrún. „Samkvæmt nýlegri
Gallupkönnun á meðal 300 stærstu
fyrirtækja landsins voru líka fleiri
sem nefndu Íslandsbanka sem
leiðandi í sjálfbærni, heldur en alla
hina bankana samanlagt.
Að sjálfsögðu finnst okkur
gaman að það sé tekið eftir því að
við séum framarlega í sjálfbærni-
málum en við fögnum einnig sjálf-
bærum skrefum hjá samkeppninni
enda er sjálfbærni ekki keppni, við
viljum sjá Ísland ná árangri og þar
eru fjármagnseigendur og fjár-
málageirinn í lykilstöðu. Við getum
sett pressu og búið til jákvæða
hvata sem ýta undir sjálfbærar
fjárfestingar. Þannig eru lífeyris-
sjóðirnir til dæmis að fara að veita
600 milljörðum í sjálfbær verkefni
á næstu árum,“ segir Kristrún.
„Við fögnum samkeppni á þessu
sviði og viljum sjá Ísland framar-
lega í sjálfbærnimálum almennt.
Ekki myndi skemma fyrir að sterk
ímynd Íslands sem sjálfbærs lands
myndi laða að erlent fjármagn í
auknum mæli. Það er til mikils að
vinna fyrir okkur í þeim efnum og
yrði mikil lyftistöng fyrir íslenskt
efnahagslíf.“
Hægt að hafa mikil áhrif með
lánastarfsemi
„Þetta er kannski svolítil klisja, en
sjálfbærni er vegferð. Við erum
alltaf að læra meira og fá betri
gögn, mælingar og samanburð og
setja markið hærra,“ segir Krist-
rún. „En út frá umhverfismálum
hefur rekstur bankans verið
kolefnishlutlaus síðan árið 2019
og í fyrra tókum við ákvörðun um
að stefna að fullu kolefnishlutleysi
fyrir árið 2040, ekki bara í rekstri,
heldur líka í útlánum og fjár-
festingum.
Við erum nýbúin að klára
mælingar á kolefnisspori lána- og
eignasafnsins og út frá því vitum
við að kolefnisfótspor þess á
einum degi er svipað og kolefnis-
fótspor reksturs bankans á heilu
ári. Þetta undirstrikar það sem
við vissum, að það eru tækifæri til
að vera raunverulegt hreyfiafl og
hjálpa viðskiptavinum okkar að ná
árangri á þeirri eigin sjálfbærni-
vegferð,“ segir Kristrún. „Það mun
krefjast mikilla fjárfestinga að ná
markmiðum Íslands í orkumálum.
Við tölum mikið um orkuskiptin
en þau verða ekki raunveruleg
fyrr en búið er að ráðast í fjár-
festingar og auka aðgengi að orku
svo við getum orðið óháð jarðefna-
eldsneyti.“
Ísland í dauðafæri að verða
meira leiðandi í sjálfbærni
„Við erum mjög ánægð með hvar
við stöndum og stolt af þeirri
vegferð sem við höfum verið á.
Þegar við berum okkur saman
við banka í nágrannalöndunum
sjáum við líka að það er stundum
styrkleiki að vera lítill banki, við
getum brugðist hraðar við og tekið
ákvarðanir hraðar, því það er gott
aðgengi að stjórnendum,“ segir
Kristrún. „Okkur finnst því Ísland
vera í dauðafæri til að vera þekkt
fyrir að vera leiðandi á sviði sjálf-
bærni.
Það hefur gengið vel að auka
sjálfbærni í rekstrinum og núna er
stóra verkefnið að hafa áhrif út á
við og við vorum fyrsti bankinn til
að birta fjármálaramma, leikreglur
varðandi hvað má kalla sjálfbær
útlán, og sá rammi hefur hjálpað
okkur að forgangsraða. Eitt af verk-
efnunum er að veita 40 milljörðum
til viðbótar í sjálfbær útlán,“ segir
Kristrún. „Við finnum líka að það
er samkeppni á þessu sviði því
fleiri fjárfestar eru að sækja í sömu
útlán, sem er bara hið besta mál,
því hvatar til fyrirtækja til að fara
út í sjálfbærar fjárfestingar eru
sannarlega af hinu góða.
Á næstunni munum við líka
fara í loftið með sjálfbæra banka-
reikninga sem bætast við aðra
sjálfbæra sparnaðarmöguleika,
en við bjóðum líka upp á grænan
skuldabréfasjóð og þrjá erlenda
sjóði með sjálfbærniáherslum,“
segir Kristrún. „Við finnum fyrir
auknum áhuga á því að láta
sparnaðinn ávaxtast vel á sama
tíma og krónurnar geta verið
hreyfiafl til góðra verka.“
Skortur á gögnum er áskorun
„Ein af áskorununum sem við
glímum við er skortur á gögnum.
Við erum alltaf að reyna að taka
upplýstar ákvarðanir og velja hvar
við setjum orkuna og það er sumt
sem einfaldlega eru ekki til gögn
um á Íslandi. Það kom mér á óvart
hvað við vitum lítið um kolefnis-
fótspor sumra hluta, til dæmis af
byggingaframkvæmdum,“ útskýrir
Kristrún. „Í mörgum löndum í
kringum okkur fær íbúðarhúsnæði
ákveðna orkueinkunn og það er
vont að ekki sé boðið upp á staðl-
aðar mælingar á þessu hér.
Um leið erum við alltaf að
minna okkur á að það þarf ekki að
vera fullkomin til að hafa skoðun
eða bretta upp ermarnar og grípa
til aðgerða. Við þurfum að þora að
tala um hvað skiptir máli og vera
auðmjúk gagnvart því að þurfa
stundum að leiðrétta okkur og
vera opin fyrir nýjum upplýsing-
um,“ segir Kristrún. „Við megum
ekki lamast af loftslagskvíða eða
láta óvissuna stoppa okkur, enda
verður sjálfbærniverkefnið aldrei
alveg búið eða fullkomið og við
verðum aldrei með öll svör.
Eitt af því sem við erum að gera
er að veita kúnnum okkar fræðslu
og við héldum fræðsluviðburð í
haust fyrir lítil og meðalstór fyrir-
tæki varðandi að allir geti tekið
þátt í sjálfbærnivegferðinni. Það
þarf ekki að vera stórt fyrirtæki
eða með starfsmenn sérstak-
lega í sjálfbærni til að leggja sitt
af mörkum,“ segir Kristrún. „Við
finnum að áhugi viðskiptavina
er að aukast og margir sækja sér
fræðslu.“ ■
Öll starfsemi Íslandsbanka styður sjálfbærni
Kristrún Tinna
Gunnarsdóttir,
forstöðumaður
stefnumótunar
og sjálfbærni
hjá Íslands-
banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Lán sem falla undir iðnað og samgöngur ollu 54% af útblæstri bankans en
voru ekki nema 6% af heildarútlánum á þarsíðasta ári. Útblástur vegna hús-
næðislána var hins vegar einungis 0,5% af heildarútblæstri en nam 37% af
heildarútlánum. Það sem skilar mestum tekjum er því ekki það sem hefur
stærsta kolefnisfótsporið. MYND/AÐSEND
kynningarblað 29FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR