Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 44
Sjálfbærni er mikilvægur
hluti af fjölbreyttri starfsemi
Eimskips. Agla Huld Þórar-
insdóttir sjálfbærnisérfræð-
ingur segir verkefnin bæði
spennandi og krefjandi.
Agla Huld Þórarinsdóttir er sjálf-
bærnisérfræðingur hjá Eimskip.
Hún tók við starfinu fyrir ári en
Agla hefur víðtæka reynslu eftir
rúmlega tuttugu ára starfsferil
innan fyrirtækisins og þekkir því
starfsemina mjög vel.
Agla segir Eimskip vera mjög
meðvitað um mikilvægi fyrir-
tækisins og ábyrgð.
„Við leggjum okkur fram við að
vera til fyrirmyndar og leiðandi
í sjálfbærnimálum, bæði gagn-
vart umhverfi og samfélagi. Við
leggjum mikla áherslu á að þekkja
þá áhættuþætti sem snúa að
sjálfbærni í okkar rekstri og við
vinnum markvisst að því að draga
úr þeim.“
Verðug markmið
í umhverfismálum
Eimskip leggur mikla áherslu á
umhverfismál og var fyrirtækið
eitt það fyrsta hér á landi til að
marka sér umhverfisstefnu.
„Á heimsvísu er talið að milli-
landaflutningar beri ábyrgð á um
3 prósentum af öllum útblæstri
koltvísýrings (CO2) í heiminum
en þó eru flutningar með gáma-
skipum taldir vera einn umhverfis-
vænsti flutningsmátinn sem er í
boði,“ segir Agla.
„Við höfum fundið fyrir auknum
áhuga viðskiptavina á að auka
hlutfall sitt í sjóflutningi. Sem
dæmi höfum við unnið með fær-
eyskum viðskiptavini í f lutningi á
ferskum fiski en fyrirtækið færði
alfarið vöruflutning sinn yfir í
sjóflutning og dró þannig verulega
úr kolefnisfótspori sínu án þess að
rýra gæði vörunnar.“
Árið 2015 undirritaði Eim-
skip yfirlýsingu um loftslagsmál
sem felur í sér að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda, lágmarka
neikvæð umhverfisáhrif með
markvissum aðgerðum og mæla
árangurinn.
„Við settum okkur það mark-
mið að minnka kolefnisspor okkar
um 40 prósent á flutta einingu
til ársins 2030. Þetta markmið
er undirliggjandi í allri okkar
starfsemi og er tekið tillit til þess í
ákvarðanatöku í rekstrinum,“ segir
Agla.
Eimskip fékk tvö ný skip inn í
rekstur sinn árið 2020, Dettifoss
og Brúarfoss, sem sérstaklega eru
útbúin til að minnka kolefnis-
spor í f lutningum. Agla segir það
einkar ánægjulegt að sjá bein áhrif
nýju skipanna á kolefnisfótspor
fyrirtækisins en þegar kolefnisfót-
sporið á hverja flutningseiningu er
skoðað er minnkunin um 18 pró-
sent frá árinu 2015 og hafa skipin
sitt að segja í þeirri tölu.
Agla segir Eimskip leggja áherslu
á grænar fjárfestingar og að ávallt
sé horft til umhverfisþátta við val á
nýjum tækjabúnaði.
„Bílarnir sem sölufulltrúar
okkar nota hér innanbæjar í
Reykjavík eru flestir rafbílar og
nýjustu gámalyftararnir okkar
eyða 25 prósent minna eldsneyti
en eldri tæki. Einnig náðist mikil-
vægt skref í minnkun kolefnisfót-
sporsins þegar allir hafnarkran-
arnir í stærstu höfnum okkar á
Íslandi voru rafvæddir. Verkefnið
var talsvert flókið og kom fjöl-
margt starfsfólk að verkefninu auk
samstarfsaðila.“
Agla segir eitt af stóru verk-
efnunum fram undan snúa að
landtengingu í Sundahöfn en með
landtengingu er hægt að leysa af
hólmi ljósavélar í nýjustu skip-
unum þegar þau liggja í höfn. Auk
þess að draga úr kolefnislosun í
höfn mun landtengingin einn-
ig hafa jákvæð áhrif á hljóðvist
á hafnarsvæðinu og fleiri þætti í
starfseminni.
„Með landtengingunni einni
reiknum við með að minnka
olíunotkun um 160 tonn á ári sem
jafngildir 24 hringjum í kringum
jörðina á fólksbíl,“ segir Agla.
Eimskip er með starfsemi víða
um heim og segir Agla mikilvægt
að sjálfbærnivinnan nái alla leið.
„Við leggjum mikla áherslu á
að ná utan um kolefnisfótsporið
okkar í heild en við höfum náð vel
utan um þessi mál hér á landi. Við
erum að vinna að mjög skemmti-
legu og jafnframt krefjandi
verkefni með erlendu skrifstof-
unum okkar varðandi að ná utan
um fótspor þeirra en við erum
með starfsemi í 20 löndum svo
verkefnið er ansi viðamikið. Við
byggjum á þeirri miklu þekkingu
sem við höfum öðlast hér á Íslandi
og miðlum henni áfram en löndin
eru mislangt komin í þessum
málum.“
Á vef Eimskips geta viðskipta-
vinir fyrirtækisins reiknað út
kolefnisfótspor í f lutningi með
reiknivél en Agla segir það sjálf-
sagða þjónustu nú þegar þessi mál
eru í slíkum forgangi víða.
„Við höfum þróað lausnir til að
auðvelda viðskiptavinum okkur
að ná utan um sitt kolefnisfót-
spor í f lutningum. Bæði bjóðum
við viðskiptavinum okkar að fá
nákvæmt yfirlit yfir sitt kolefnis-
spor í f lutningum, á sjó og í akstri
innanlands, en einnig er kolefnis-
reiknivél á vefnum okkar sem allir
geta nýtt sér. Með þessum lausnum
viljum við leggja okkar af mörkum
til að aðstoða fyrirtæki við að ná
utan um heildarmyndina í sínum
rekstri.“
Öryggi og vellíðan
starfsmanna í fyrirrúmi
Agla segir einn af mikilvægustu
þáttum starfsemi Eimskips vera
öryggi og vellíðan starfsmanna.
„Við leggjum mikla áherslu á
forvarnir og þjálfun starfsfólks og
reglulega fara fram öryggisæfingar.
Nýverið héldum við öryggisviku
þar sem heil vika var tileinkuð
öryggismálum en í þeirri viku
voru haldin námskeið, til dæmis
varðandi eldvarnir og skyndihjálp,
og einnig sameiginleg æfing með
Landhelgisgæslunni í björgun á
sjó.“
Það er að mörgu að huga
varðandi öryggis- og forvarnamál
hjá fyrirtæki eins og Eimskip en
Agla nefnir sem dæmi að nýlega
var fjárfest í nýjum slökkvibúnaði
til að slökkva elda í gámum um
borð í skipum fyrirtækisins.
„Þetta er mjög sérhæfður
búnaður en allt er þetta gert með
öryggi áhafna okkar og skipa að
leiðarljósi,“ segir Agla og bætir
við að nú sé unnið að því að setja
upp kerfi til að auðvelda starfs-
fólki að koma sjálft með tillögur
að umbótum í öryggismálum hvar
sem er í starfsemi Eimskips.
Í tæp tvö ár hefur starfsfólki í
höfuðstöðvum Eimskips verið
boðið upp á verkefnamiðað
vinnuumhverfi þar sem starfsfólk
getur valið sér vinnuaðstöðu sem
hæfir verkefnum hverju sinni en
Agla segir Eimskip hafa lagt upp
með fjölbreyttar áherslur til að
auka vellíðan starfsfólks.
„Við kynntum meðal annars
verkefni sem kallast „Focus Friday“
en markmiðið er að draga úr
fundarsetu á föstudögum og gefa
starfsmönnum aukið tækifæri
til að einbeita sér að einstökum
verkefnum og halda inn í helgina
með hreint borð. Þá eru jafn-
réttismál okkur afar hugleikin og
við þurfum að horfa á þau út frá
mörgum sjónarhornum. Við erum
svo lánsöm að hér starfar marg-
breytilegur hópur starfsfólks og
við horfum á jafnrétti frá mörgum
hliðum öðrum en kyni og þjóð-
erni.“
Öllum áskorunum fylgja tækifæri
„Það er okkur mikilvægt að vera til
fyrirmyndar í samfélaginu og við
viljum vera þátttakendur í þeim
breytingum sem eru fyrirsjáan-
legar í framtíðinni,“ segir Agla.
„Til að ná markmiðum okkar
varðandi minnkun kolefnisfót-
spors er nauðsynlegt að horfa til
orkuskipta, en við erum að vinna
að lausnum í þessum málaflokki
til framtíðar. Þegar litið er til
innanlandsflutninga er um að
ræða fjölbreytta framtíðarkosti
eins og vetni, rafmagn og metan.
Varðandi skipin þá er metanól
komið lengst í þróun en einnig
koma til greina orkugjafar eins og
vetni eða ammóníak. Á þessari
vegferð þarf að svara stórum og
mikilvægum spurningum; hvernig
munu innviðir þróast og verður
næga græna orku að fá á viðráðan-
legu verði?“
Agla tekur dæmi og segir vélar í
stærstu skipum Eimskips með afl
sem jafngildir um 20 megavöttum
á hvert skip og því má sjá að orku-
þörfin er gríðarleg.
„En við erum spennt að takast á
við þessar áskoranir þrátt fyrir að
verkefnið sé gríðarlega viðamikið.
Öllum áskorunum fylgja tækifæri
og við ætlum okkur að taka fullan
þátt í þeim breytingum sem eru í
vændum,“ segir Agla að lokum. n
Höfuðstöðvar Eimskips eru á
Sundabakka 2 í Reykjavík. Sími 525
7000. Sjá nánar á eimskip.is
Sjálfbærni yfir sjó og land
Agla Huld Þórarinsdóttir er sjálfbærnisérfræðingur hjá Eimskipi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Straumur er
stærsti gáma
krani landsins.
Hann stendur
í Sundahöfn í
Reykjavík og
eins og nafnið
gefur til kynna
er hann að
fullu rafknúinn.
MYND/EIMSKIP
Við leggjum okkur
fram um að vera til
fyrirmyndar og leiðandi
í sjálfbærnimálum, bæði
gagnvart umhverfi og
samfélagi.
Agla Huld Þórarinsdóttir
30 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR